Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 44
Búmenn hsf Húsnæðissamvinnufélag Lágmúla 7 108 Reykjavík Sími 552 5644 bumenn@bumenn.is www.bumenn.is AÐALFUNDUR Búmanna hsf. Aðalfundur Búmanna hsf., verður haldinn mánudaginn 5. október 2020 og hefst hann kl. 14.00 í Gullteig B á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík. Í samræmi við 13. gr. samþykkta Búmanna verður félagsmönnum sem búa í meira en 200 km. aksturs- fjarlægð frá tilgreindum aðalfundarstað gefinn kostur á að mæta og taka þátt í aðalfundinum í gegnum fjarfundarbúnað á fjarfundarstað. Fjarfundarstaður verður á Hótel Kea, Hafnarstræti 87-89 á Akureyri. Nánar vísast til reglna um rafræna þátttöku á félagsfundum Búmanna sem eru aðgengilegar á vef Búmanna www.bumenn.is. Innskráning á fundinn á aðalfundarstað og fjarfundar- stað hefst kl. 13.00 og eru félagsmenn hvattir til að mæta tímanlega til skráningar. Aðalfundurinn er opinn öllum félagsmönnum Búmanna og hafa þeir málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundinum. Hver félagsmaður má fara með umboð frá einum öðrum félagsmanni. Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er til 21. septem- ber 2020. Framboðum skal skila á netfangið gunnarkr@bumenn.is. Dagskrá aðalfundar Búmanna er í samræmi við samþykktir félagsins sem hér segir: 1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræður um hana. 3. Framlagning ársreikninga, umræða og afgreiðsla. 4. Ákvörðun um hvernig ráðstafa skuli rekstraraf- gangi eða bregðast við ef tap verður á rekstri félagsins. 5. Kynning á ákvörðun stjórnar um fjárhæð félags- gjalda, inntökugjalda, þjónustugjalda og annarra gjalda sem ákveðin er af stjórn félagsins sam- kvæmt samþykktum þess. 6. Ákvörðun gjalds í viðhaldssjóð félagsins. 7. Ákvörðun í framlag til varasjóðs félagsins. 8. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 9. Kosning formanns til eins árs. 10. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára. 11. Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs. 12. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna. 13. Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs og tveggja skoðunarmanna og eins til vara, alla til eins árs. 14. Kosning þriggja manna kjörnefndar. 15. Önnur mál sem tiltekin eru í fundarboði. 16. Önnur mál. Stjórn Búmanna hsf. Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Auk hefðbundinna verkefna sýslumannsembætta þá annast Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og rekstur innheimtumiðstöðvar. Sýslumenn bera faglega, fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri embætta sinna í samræmi við lög og önnur stjórnvaldsfyrirmæli. Gera má ráð fyrir að næstu árum verði unnið að nokkuð umfangsmiklum breytingum á mörgum verkefnum sýslumanna, vinnulagi við þau og verkaskiptingu á milli embætta. Sýslumenn þurfa að eiga náið samstarf sín á milli og vinna með ráðuneytinu að þessum breytingum, ásamt ýmsum um- bótaverkefnum vegna örra tæknibreytinga hjá hinu opinbera, í samræmi við stefnu ríkisins. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014, um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði. Aðrar hæfniskröfur eru: • Reynsla af stjórnun með mannaforráð • Góð þekking og yfirsýn á verkefnum sýslumanna æskileg • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg • Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg • Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg Dómsmálaráðherra skipar í embættið til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. janúar 2021. Um laun og starfskjör sýslumanns fer samkvæmt 39. gr. a. laga nr. 70/1996, um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri í síma 545 9000. Umsóknir skulu berast í gegnum starf(hja)dmr.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfnis- kröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014 og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf sýslumanns. Embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra laust til umsóknar Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja. 14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.