Fréttablaðið - 12.09.2020, Page 44
Búmenn hsf
Húsnæðissamvinnufélag
Lágmúla 7
108 Reykjavík
Sími 552 5644
bumenn@bumenn.is
www.bumenn.is
AÐALFUNDUR
Búmanna hsf.
Aðalfundur Búmanna hsf., verður haldinn mánudaginn
5. október 2020 og hefst hann kl. 14.00 í Gullteig B
á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.
Í samræmi við 13. gr. samþykkta Búmanna verður
félagsmönnum sem búa í meira en 200 km. aksturs-
fjarlægð frá tilgreindum aðalfundarstað gefinn kostur
á að mæta og taka þátt í aðalfundinum í gegnum
fjarfundarbúnað á fjarfundarstað.
Fjarfundarstaður verður á Hótel Kea, Hafnarstræti
87-89 á Akureyri. Nánar vísast til reglna um
rafræna þátttöku á félagsfundum Búmanna sem eru
aðgengilegar á vef Búmanna www.bumenn.is.
Innskráning á fundinn á aðalfundarstað og fjarfundar-
stað hefst kl. 13.00 og eru félagsmenn hvattir til að
mæta tímanlega til skráningar.
Aðalfundurinn er opinn öllum félagsmönnum
Búmanna og hafa þeir málfrelsi, tillögurétt og
atkvæðisrétt á fundinum. Hver félagsmaður má fara
með umboð frá einum öðrum félagsmanni.
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er til 21. septem-
ber 2020. Framboðum skal skila á netfangið
gunnarkr@bumenn.is.
Dagskrá aðalfundar Búmanna er í samræmi við
samþykktir félagsins sem hér segir:
1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og
fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræður
um hana.
3. Framlagning ársreikninga, umræða og afgreiðsla.
4. Ákvörðun um hvernig ráðstafa skuli rekstraraf-
gangi eða bregðast við ef tap verður á rekstri
félagsins.
5. Kynning á ákvörðun stjórnar um fjárhæð félags-
gjalda, inntökugjalda, þjónustugjalda og annarra
gjalda sem ákveðin er af stjórn félagsins sam-
kvæmt samþykktum þess.
6. Ákvörðun gjalds í viðhaldssjóð félagsins.
7. Ákvörðun í framlag til varasjóðs félagsins.
8. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
9. Kosning formanns til eins árs.
10. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
11. Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs.
12. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
13. Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs og
tveggja skoðunarmanna og eins til vara, alla til
eins árs.
14. Kosning þriggja manna kjörnefndar.
15. Önnur mál sem tiltekin eru í fundarboði.
16. Önnur mál.
Stjórn Búmanna hsf.
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumannsins á
Norðurlandi vestra.
Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu
umdæmi, eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á
um. Auk hefðbundinna verkefna sýslumannsembætta þá annast Sýslumaðurinn á
Norðurlandi vestra framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt
staðfestri skipulagsskrá og rekstur innheimtumiðstöðvar. Sýslumenn bera faglega,
fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri embætta sinna í samræmi við lög
og önnur stjórnvaldsfyrirmæli. Gera má ráð fyrir að næstu árum verði unnið að
nokkuð umfangsmiklum breytingum á mörgum verkefnum sýslumanna, vinnulagi
við þau og verkaskiptingu á milli embætta. Sýslumenn þurfa að eiga náið samstarf
sín á milli og vinna með ráðuneytinu að þessum breytingum, ásamt ýmsum um-
bótaverkefnum vegna örra tæknibreytinga hjá hinu opinbera, í samræmi við stefnu
ríkisins.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/2014, um
framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Reynsla af stjórnun með mannaforráð
• Góð þekking og yfirsýn á verkefnum sýslumanna æskileg
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar í embættið til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið
frá og með 1. janúar 2021.
Um laun og starfskjör sýslumanns fer samkvæmt 39. gr. a. laga nr. 70/1996, um rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri
í síma 545 9000.
Umsóknir skulu berast í gegnum starf(hja)dmr.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til 1. október nk.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfnis-
kröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni
sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 3. gr. laga nr.
50/2014 og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á faglega
eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf sýslumanns.
Embætti sýslumannsins
á Norðurlandi vestra laust til umsóknar
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R