Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 8
Húsnæði í Víðinesi með 30 herbergjum Nánari upplýsingar eru á reykjavik.is/leiga Reykjavíkurborg býður til leigu Víðines á Álfsnesi, sem eru þrjú samtengd hús með um 30 stórum herbergjum, ásamt þjónusturýmum og eldhúsi. Eitt húsið er á tveimur hæðum en hin eru á einni hæð, alls rúmir 2.000 fermetrar. Leigutími verður ótímabundinn með 12 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Boðið er til á skoðunarferðar um eignina miðvikudaginn 23. september, kl. 15-16. Tilboðum um leiguverð ásamt upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu hússins skal skila í lokuðu umslagi merkt „Víðines leiga“ í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14 fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 9. október 2020. Hús til leigu Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu í listakosningu í VR við kjör fulltrúa félagsins á 44. þing Alþýðusambands Íslands 2020. Kjörnir verða 91 fulltrúar og 30 til vara. Framboðslistar, með fyrirliggjandi samþykki allra sem á listunum eru, ásamt meðmælum 300 fullgildra félagsmanna VR, þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, fyrir kl. 12 á hádegi 21. september næstkomandi. Kjörstjórn VR VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK SÍMI 510 1700 WWW.VR.IS HEILBRIGÐISMÁL Ekki hefur tekist að ráða fagfólk í transteymi Barna- og unglingageðdeildar Landspítal- ans, BUGL, þrátt fyrir að búið sé að auglýsa stöður. Teymið hefur ekki verið starfrækt frá áramótum þó að kveðið sé á um það í lögum. Birna Björg Guð munds dóttir, einn stofn enda Trans vina, hags- muna sam taka for eldra og að stand- enda trans barna og ung menna á Ís landi, segir að lítið hafi gerst frá því í febrúar er samtökin afhentu heil brigðis ráð herra, for stjóra Land- spítalans og land lækni undirskriftir þar sem krafist var aukins fjármagns og að nýtt teymi yrði skipað. „Við höfum fundað með BUGL, þau eru öll af vilja gerð en það sækir enginn um, ef einhver sækir um, þá vantar þau aukna menntun eða sætta sig ekki við launin,“ segir Birna. „Þetta er dagvinna, sem þýðir að það eru engar álagsgreiðslur eða hlunnindi. Það eru dæmi um að hjúkrunarfræðingar vilji ekki sækja um vinnu á deildinni þar sem þeir myndu lækka svo mikið í launum. Þetta er hræðileg staða.“ Í fyrra voru um 500 börn í þjón- ustu hjá BUGL, rúmlega 50 af þeim eru trans. Sá hópur fær áfram þjónustu á BUGL, en án fagþekk- ingar. Birna segir ástandið hræða hana mikið. „Þetta er hópur sem þarf virkilega á þjónustu teymisins að halda. Það er hræðilegt þegar þessi börn þurfa að fara í gegnum rangan kynþroska, sjálfsvígstíðnin er há, það vill enginn strákur byrja á blæðingum.“ Linda Kristmundsdóttir, forstöðu- maður kvenna- og barnaþjónustu á aðgerðasviði Landspítala, segir að auglýst verði áfram eftir starfsfólki. Frá því um áramótin hafa trans börn fengið þjónustu á göngudeild BUGL. „Þar er vel haldið utan um málin þeirra með almennu starfs- fólki göngudeildar, þó að það sé ekki sérstakt transteymi,“ segir Linda. Er BUGL einnig í samstarfi við innkirtlalækna á Barnaspítala, sem hafa þekkingu á hormónalyfjum og fleiru. „Það hefur tekist að halda þjónustunni eins góðri og hægt er miðað við kringumstæðurnar.“ Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki BUGL hefur starfsmanna- veltan verið mjög mikil meðal fag- fólks. Fáir hafa sérþekkingu á mál- efnum trans barna. „Önnur teymi BUGL, þar á meðal átröskunarteymi og taugateymi, eru í sama vanda, það hefur gengið aðeins betur þar sem það eru fleiri sem hafa þekkingu á því. Það eru mjög fáir með þekkingu á málefnum trans barna,“ segir Linda. Dóttir Birnu þarf sem betur fer ekki á þjónustu BUGL að halda. „Ég finn svo til með hinum foreldr- unum, þeim sem þurfa að sitja sjálfs- vígsvaktina. Við foreldrar viljum bara að börnin okkar lifi, um það snýst þetta. Við viljum heldur ekki ala upp sjúklinga.“ arib@frettabladid.is Fá ekki fagfólk í transteymið Transteymi BUGL hefur ekki verið starfrækt frá áramótum. Ekki hefur tekist að ráða fagfólk í teymið. Foreldri trans barns segir stöðuna slæma. Rúmlega 500 börn voru í þjónustu hjá BUGL í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þetta er hópur sem þarf virkilega á þjónustu teymisins að halda. Birna Björg Guð munds dóttir, einn stofn enda Trans vina REYKJAVÍKURBORG Borgarlögmaður telur að Minjastofnun gæti hvorki að stjórnsýslulögum né meðalhófs varðandi áform um að friðlýsa svæði við Þerneyjarsund, þangað sem Björgun ehf. er ætlað að flytja. Þá hafi stofnunin ekki kannað hvort vægari úrræði en friðlýsing komi til greina. Friðlýsing sé ekki nauðsynleg því fyrirhugað athafna- svæði muni ekki raska menningar- sögulegum minjum. Hagsmunir minjaverndar séu hverfandi, miðað við þá fjárhagslegu og samfélagslegu hagsmuni sem búa að baki athafna- og hafnarstarfsemi á svæðinu. Þetta kemur fram í áliti Ebbu Schram borgarlögmanns á undir- búningi tillögu um friðlýsinguna. Segir þar að fyrirætlanirnar leiði til að notkunarmöguleikar svæðisins takmarkist verulega. Sama gildi um möguleika varðandi lagningu Sundabrautar. Í því ljósi sé mikil- vægt að Minjastofnun gæti meðal- hófs. Brýnt sé að fá álit Vegagerðar- innar. Sömuleiðis um Sorpu, en sigvatni frá svæði Sorpu í Álfsnesi er leitt í gegnum hreinsivirki og lagnir út í Þerneyjarsund. Reykjavíkurborg veitti Björgun vilyrði um lóðina í fyrrasumar eftir mikla undirbúningsvinnu. Minjastofnun hefur verið á móti þeirri ákvörðun frá fyrstu tíð og því hyggst stofnunin freista þess að friðlýsa svæðið til að koma í veg fyrir áformin. – bþ Takmarkar Sundabraut Ebba Schram, borgarlögmaður 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.