Fréttablaðið - 12.09.2020, Side 29
Melissa Dream er vísinda-lega samsett jurtablanda, hönnuð til að stuðla að
djúpri slökun og værum svefni.
Blandan inniheldur jurtir, amínó-
sýrur, vítamín og steinefni sem
hafa ekki sljóvgandi áhrif.
Svefninn er okkur gríðarlega
mikilvægur til þess að við getum
tekist á við eril dagsins og staðist
þá streitu sem fylgir daglega lífinu.
Svefninn er að stærstum hluta eins
upp byggður og á sama formi hjá
öllum sem sofa eðlilega og ótruflað.
Álitið er að REM-svefn og djúp-
svefn séu mikilvægustu svefnstigin
en þau ætti að ná yfir um það bil
45-50% af öllum nætursvefni.
Fullorðinn einstaklingur þarf að
meðaltali 7-8 klukkustunda svefn
og ef það gengur ekki eftir getur það
haft neikvæð áhrif á almenna líðan,
fjölskyldu-, félags- og atvinnulíf.
Loksins góður nætursvefn
Soffía Káradóttir notar Melissa
Dream og ber því vel söguna:
„Ég hef lengi verið með fótaóeirð
sem hefur aukist með árunum og
mér hefur reynst erfitt að sofa nógu
vel vegna þess. Eftir að ég byrjaði
að taka Melissa Dream hefur þetta
algjörlega breyst. Ég tek tvær töflur
fyrir svefninn og innan hálftíma
er öll óeirð farin og ég fæ góðan
nætursvefn. Að mínu mati eru
þetta töfratöflur sem ég gæti ekki
verið án og hef ég nú tekið Melissa
Dream reglulega í nokkur ár.“
Orsakir svefnleysis
Af hverju sofnum við ekki, erum
andvaka eða vöknum upp um
miðjar nætur og getum ekki sofnað
aftur? Það eru fjölmargar ástæður
fyrir því að við getum ekki sofnað
eða sofið þannig að við hvílumst
og vöknum endurnærð. Vakta-
vinna, ferðalög, kvíði og áhyggjur
eru algeng orsök svefnleysis en
ýmsir sjúkdómar geta einnig haft
mikil áhrif á svefninn. Streita er
mjög algeng orsök en það er allt of
algengt að fólk vinni of mikið, sé
með fjárhagsáhyggjur, vanti hreyf-
ingu og/eða eigi í erfiðum sam-
böndum, hvort sem er við maka,
vini eða aðra. Mataræði, upptaka
næringarefna og venjur geta líka átt
stóran þátt í svefnleysi.
Einbeitingarskortur og offita
Langvarandi röskun á svefni og
svefnmynstri getur haft mjög alvar-
legar heilsufarslegar afleiðingar í
för með sér. Einkenni svefnleysis
eru meðal annars þreyta yfir dag-
inn, skapsveiflur og jafnvel þung-
lyndi og kvíði. Einbeiting versnar,
slysahætta eykst og ýmis andleg og
líkamleg vandamál. Sum einkenni
geta líka dregið þann dilk á eftir sér
að þau ýti undir frekara svefnleysi
sem þýðir að við erum komin í
vítahring sem þarf einhvern veginn
að rjúfa.
Vilt þú sofa betur?
Það er ýmislegt sem hægt er að gera
til að vinna bug á svefnleysi og gott
að byrja á því að breyta einföldum
hlutum í nærumhverfi okkar ef það
á við. Gott getur verið að borða ekki
tveimur til þremur tímum áður en
lagst er til hvílu og passa að drekka
ekki of mikinn vökva, bæði til að
gefa meltingarfærunum pásu og að
losna við klósettferðir. Ekki taka
tölvur eða síma með í rúmið og lág-
marka alla notkun rafmagnstækja
í svefnherberginu sem á að vera vel
loftað, myrkvað og hljóðlátt. Nátt-
úruleg bætiefni reynast mörgum
vel og hefur Melissa Dream alveg
slegið í gegn. Þetta bætiefni hefur
meðal annars fengið viðurkenn-
ingu frá National Nutrition í
Kanada í flokki bestu fæðubótar-
efna gegn streitu.
Amínósýra sem
stuðlar að slökun
Melissa Dream inniheldur
sítrónumelissu sem hefur verið
notuð í aldaraðir meðal annars
til að bæta svefn. Þar er einnig að
finna L-theanine, amínósýru sem
finnst í svörtu og grænu tei og hafa
rannsóknir* sýnt að hún hefur
bein áhrif á heilann þar sem hún
stuðlar að slökun án þess að hafa
sljóvgandi áhrif. Melissa Dream
inniheldur einnig fjölda vítamína
og steinefna, þar á meðal:
B-6 vítamín sem stuðlar að því að
halda reglu á hormónastarfsemi.
B-12 sem stuðlar að eðlilegri
starfsemi taugakerfisins sem og
eðlilegri sálfræðilegri starfsemi
ásamt B1, B2, og B3.
Magnesíum sem stuðlar að
eðlilegri vöðvastarfsemi sem og
viðhaldi eðlilegra beina.
Svefnleysi getur þó verið alvar-
legra vandamál en svo að einföld
ráð dugi. Þá er best að ráðfæra sig
við lækni. Þess ber þó einnig að
geta að rannsóknir hafa sýnt að
bestur árangur næst með hugrænni
atferlismeðferð (HAM) sem er
nokkurra vikna námskeið sem fólk
getur sótt.
Fótaóeirðin er alveg horfin
og ég fæ góðan nætursvefn
Soffía Káradóttir hafði lengi verið með fótaóeirð sem jókst með árunum og hún átti erfitt með
að sofa vegna þess. Eftir að hún byrjaði að taka inn Melissa Dream er vandamálið úr sögunni.
Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að vinna bug á svefnleysi og gott að byrja á einföldum breytingum.
KETÓ PAKKANUM
HÁMARKAÐU ÁRANGURINN MEÐ
Ketógenískt mataræði (KETÓ) er
lágkolvetna- og fituríkt mataræði. Það
felur í sér að draga úr kolvetnaneyslu og
skipta henni út fyrir fitu.
Keto pakkinn inniheldur tvær vörur,
KRILL OIL OG KETO ÞVAGSTRIMLA, ásamt
fróðleik og uppskrift frá Hönnu Þóru
matarbloggara sem geta hjálpað þér að
ná góðum árangri.
Fæst: í Fjarðarkaup og Nettó
KRILL OIL
– öflugustu omega-3
fitusýrurnar og
nauðsynlegar á ketó.
KETÓ þvagstrimlar
– greina fljótt og
auðveldlega hvort lifrin
sé að framleiða ketóna og
hvort líkaminn sé kominn
í ketósu.
Ég tek tvær töflur
fyrir svefninn og
innan hálftíma er öll
fótaóeirð farin og ég fæ
góðan nætursvefn.
Soffía Káradóttir
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0