Fréttablaðið - 16.09.2020, Síða 8
Við erum á miklu
meiri hraða en
fortíðin og afleiðingin
verður að öllum líkindum
mjög alvarleg.
Barbel Honisch jarðefnafræðingur
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Fermingarskraut í úrvali!
■ Myndaveggir
■ Nammibarir
■ Kortakassar
■ Servíettur
■ Borðrenningar
■ Blöðrur (fyrir loft/helíum)
■ Blöðrubogar/lengjur/hringir
(fyrir loft)
■ Súkkulaðiegg í þemalitum
veislunnar
■ Kerti
■ Og margt fleira
■ Veggborðar þar sem hægt er að raða bókstöfum saman
í hvaða orð sem er, t.d. nafn fermingarbarns,
„Ferming“, „Myndaveggur”, „Kort”, „Nammibar”
Vöruúrvalið er að finna á facebook síðu Partýbúðarinnar
DANMÖRK Meðferð sem geðsjúkur
maður var beittur á geðsjúkrahúsi
í Danmörku árið 2013 braut gegn
ákvæði Mannréttindasáttmála
Evrópu um bann við pyndingum
og ómannúðlegri meðferð. Þetta er
niðurstaða Mannréttindadómstóls
Evrópu, sem birt var í gær.
Maðurinn var ólaður fastur við
rúm í 23 klukkustundir samfellt en
í niðurstöðu MDE segir að um allra
lengsta tímabil slíkrar þvingunar
sé að ræða sem komið hafi til kasta
dómsins.
Með vísan til sögu ofbeldisfullrar
hegðunar sjúklingsins gerði dóm-
stóllinn ekki athugasemd við að
hann hefði verið ólaður niður, í því
skyni að tryggja öryggi starfsfólks
og annarra sjúklinga. Hins vegar
hefðu innlendir dómstólar brugð-
ist skyldu sinni til að meta önnur
atriði eins og hvort nauðsynlegt
hefði verið að beita þvinguninni
svo lengi sem raunin varð, en fyrir
liggur að maðurinn var orðinn
rólegur mörgum klukkustundum
áður en losað var um höftin.
Var danska ríkið dæmt til að
greiða kærandanum tíu þúsund
evrur í bætur og fjögur þúsund
evrur til viðbótar í málskostnað. – aá
Ómannúðlegt
að óla mann
niður í 23 tíma
UMHVERFISMÁL Ný rannsókn á
vegum Columbia-háskóla í New
York sýnir að koltvísýringslosun
manna hefur langtum meiri áhrif
á loftslagið en eldfjallavirkni gerði
á miklu virkni skeiði fyrir um 55
milljónum ára. Rannsóknin var
gerð með því að efnagreina skeljar
smádýra í hafinu og bera saman við
steingervinga.
„Við viljum skilja hvernig kerfi
jarðarinnar bregðast við mikilli
losun koltvísýrings núna. Það
tímabil sem við skoðuðum er ekki
fullkomlega sambærilegt en það
er það næsta sem við höfum í jarð-
sögunni. Við sjáum að loftslagið
breytist mun hraðar í dag,“ segir
Laura Haynes, aðstoðarprófessor
við Columbia.
Tímabilið sem um ræðir er á
mörkum paleósens og eósens. Þetta
eru um 100 þúsund ár sem voru þau
heitustu á nýlífsöld sem hófst fyrir
65 milljónum ára og stendur enn
yfir. Í upphafi þessa tímabils hófu
eldfjöll heimsins að spýja miklu
magni kolefnis út í andrúmsloftið,
sérstaklega á norðurhveli jarðar og
í Ameríku. Meðalhitastig jarðar-
innar hækkaði alls um 8 gráður
á Celsíus. Hafa ber þó í huga að
heitara var á jörðinni fyrir þessa
hlýnun en nú er.
Helstu áhrifin sem þessi eldfjalla-
virkni hafði var útdauði fjölda dýra
og jurtategunda, sérstaklega í haf-
inu. En eins dauði er annars brauð
og ýmsar aðrar lífverur styrktust og
þeim fjölgaði í kjölfarið. Til dæmis
svif og forfeður okkar, prímatarnir.
Haynes og félagar notuðu skelj-
aðar smálíf verur, sem kallast
foraminfera, til þess að gera sam-
anburð á tveimur tímabilum jarð-
sögunnar. Lífverurnar voru ræktað-
ar í sýrðum sjó og magn bórs mælt
í skeljunum. Þetta var svo borið
saman við steingerða foraminfera
sem hafa legið á botni Kyrrahafs og
Atlantshafs í 55 milljónir ára.
Komust vísindamennirnir að
því að á umræddu tímabili hefði
koltvísýringur aukist um 60 pró-
sent í hafinu, að mestu leyti vegna
eldgosanna. Höfin súrnuðu og voru
mjög súr um árþúsund. Að öllum
líkindum hafa f lestar djúpsjávar-
lífverur drepist. Þetta gerðist hins
vegar mjög hægt.
Í dag súrnar hafið hins vegar mun
hraðar en á þessu mikla virkni-
tímabili. Það tók mannkynið
aðeins nokkra áratugi að auka kol-
tvísýring í hafinu jafn mikið og tók
eldfjöllin árþúsund að gera.
Barbel Honisch, jarðefnafræð-
ingur hjá Columbia, bendir á að
lífverur geta aðlagast breytingum
gerist þær nógu hægt en hraðinn
sé áhyggjuefni. „Við erum á miklu
meiri hraða en fortíðin og af leið-
ingin verður að öllum líkindum
mjög alvarleg,“ segir hún.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Hafið súrnar á methraða
Mannkynið losar langtum meiri koltvísýring en eldfjöll norðurhvels jarðar gerðu á miklu virknitímabili
í jarðsögunni fyrir 55 milljónum ára. Ný rannsókn á skeljum smádýra sýnir að hafið súrnar nú hratt.
Lyftu höndum gegn kynbundnu ofbeldi
Femínískir aktívistar héldu áfram mótmælum sínum á mannréttindaskrifstofu Mexíkó í Mexíkóborg í gær. Lyftu þær höndum til að skora á stjórn-
völd að beita sér gegn kynbundnu of beldi í landinu. Beindu þær sjónum sérstaklega að málum kvenna sem hafa horfið og kvenna sem hafa látið
lífið af völdum heimilisof beldis. Rúmt ár er liðið frá því að femíníska hreyfingin í Mexíkó skaust fram á sjónarsviðið í landinu. MYND/EPA
RÚSSLAND Rússneski stjórnarand-
stæðingurinn Alexei Navalní gat í
gær andað allan daginn án aðstoðar
öndunarvélar. Birti hann mynd af
sér á sjúkrahúsinu í Berlín í Þýska-
landi á Instagram. „Ég andaði alveg
sjálfur, ekki einu sinni með slöngu
í hálsinum. Það var mjög þægilegt.
Það er merkilegt að geta andað,
mæli með því,“ sagði hann og sló á
létta strengi.
Navalní veiktist alvarlega í síð-
asta mánuði um borð í f lugvél á
leið frá Síberíu til Moskvu. Talið er
að eitrað hafi verið fyrir Navalní
með taugaeitrinu Novichok, er um
að ræða sérstaka útgáfu af eitrinu
og hafa spjótin helst beinst að Vlad-
ímír Pútín Rússlandsforseta. Hafa
Þjóðverjar kallað eftir skýringum.
Pútín hefur staðfastlega neitað
að standa að baki eitrun, hafi raun-
verulega verið um eitrun að ræða.
Athygli vekur að Pútín hefur aldr-
ei á neinum tímapunkti sagt nafn
Navalnís upphátt. Segja Rússar að
þeir eigi ekkert Novichok, í gær
gaf Sergei Naryshkin í skyn við
fjölmiðla að kalla ætti frekar eftir
skýringum frá Þjóðverjum.
Læknar í Rússlandi sögðu að
engin merki væru um að eitrað
hefði verið fyrir Navalní, stjórnvöld
gáfu leyfi til að flytja hann til Þýska-
lands. Þar var eitrunin staðfest.
Navalní hyggst snúa aftur til Rúss-
lands þegar hann er heill heilsu.
– ab
Navalní andar sjálfur án aðstoðar
Alexei Navalny birti þessa mynd á Instagram í gær.
Í S R A E L S a mei nuðu a r abí sk u
furstadæmin, Ísrael og Barein
undirrituðu samkomulag um að
koma á stjórnmálasambandi á
milli ríkjanna. Samkomulagið var
undirritað í Washington í gær að
Donald Trump Bandaríkjaforseta
viðstöddum.
Eru nú fjögur Arabaríki með
stjórnmálasamband við Ísrael,
bætast löndin í hóp Egyptalands
og Jórdaníu. Hefur nú verið opnað
á viðskipti milli þjóðanna. Stjórn-
völd í Palestínu hafa mótmælt sam-
komulaginu harðlega. Trump gaf til
kynna að f leiri ríki hefðu áhuga á
sams konar samkomulagi. Með
þessu er talið að Bandaríkin hafi
styrkt stöðu sína gegn Íran. – ab
Undirrituðu
samkomulag
Fulltrúar landanna við Hvíta húsið í
Washington í gær. MYND/AFP
1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð