Fréttablaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 30
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Líðan mæðra
mótar heilsu
barna þeirra
Tvær nýjar rannsóknir gefa til kynna
að andleg heilsa verðandi og ný-
bakaðra mæðra hafi mikil áhrif á and-
lega og líkamlega heilsu barna þeirra.
Vellíðan getur styrkt þau og vanlíðan
gert þau viðkvæmari fyrir álagi.
Niðurstöður hinnar rannsóknarinnar voru að börn mæðra sem þjáðust af þunglyndi eða kvíða væru viðkvæmari
fyrir álagi. Rannsakendur óttuðust að það gæti leitt til andlegra erfiðleika síðar á ævi barnanna. MYND/GETTY
Rannsóknir sýna að líðan verðandi mæðra hefur veruleg áhrif á heilsu barna
þeirra. Góð andleg líðan hefur
jákvæð áhrif á heilsu ungbarna en
vanlíðan mæðranna virðist gera
börnin viðkvæmari fyrir álagi.
Um tvær aðskildar rannsóknir er
að ræða, en önnur þeirra var unnin
við Charité-háskólasjúkrahúsið
í Berlín og birtist í ritrýnda sál-
fræðitímaritinu American Journal
of Psychiatry. Niðurstaða hennar
er að andleg vellíðan mæðra lengi
litningsenda, sem eru frumur
sem vernda enda litninga við
frumuskipti. Þetta er talið hægja á
öldrun frumna og geta bætt heilsu
barnanna til lengri tíma litið.
Það er margt sem getur haft áhrif
á þroska barns á meðgöngunni en
hingað til hafa rannsakendur aðal-
lega skoðað áhrif neikvæðra þátta
og lítið kannað áhrif jákvæðra
þátta. Ýmislegt getur haft áhrif á
litningsenda, en talið er að lengri
litningsendar tengist auknum
lífslíkum og vinni gegn ýmsum
aldurstengdum sjúkdómum.
Rannsakendur sýndu fram á að
geta móður til að takast á við álag
á meðgöngunni tengdist lengd
litningsenda. Þeim mun jákvæðari
og andlega stöðugri sem móðir var
á meðgöngunni, þeim mun lengri
voru litningsendar barns hennar.
Rannsakendurnir segja að
þetta undirstriki mikilvægi and-
legrar heilsu verðandi mæðra hvað
varðar framtíðarþroska og heilsu
barna þeirra, sem og mikilvægi
þess að þungaðar konur fái aukinn
andlegan og félagslegan stuðning.
Vanlíðan skapar óöryggi
Niðurstaða í annarri rannsókn,
sem var gerð við háskólann í
Heidel berg, var að börn þung-
lyndra eða kvíðinna mæðra sýni
sterkari sálræn einkenni álags
þegar þau taka staðlað álagspróf en
börn mæðra sem hafa ekki glímt
við slíkt.
Samskipti móður og ungbarns
eru gríðarlega mikilvægur hluti af
heilbrigðum þroska, sérstaklega á
fyrstu mánuðum ævinnar. Sumar
mæður, sérstaklega ef þær þjást af
þunglyndi, kvíða eða fæðingar-
þunglyndi, eiga erfitt með að eiga
við neikvæða hegðun ungbarna
og það er talið skapa óöryggi hjá
börnunum þegar þau eldast. Slík
geðræn vandamál eru mun algeng-
ari á meðgöngu og eftir barnsburð
en annars og hrjá 10-20% kvenna á
því tímabili ævinnar.
Áhrif afskiptaleysis mæðra voru
sýnd í frægri rannsókn frá 8. ára-
tug þar sem mæður voru beðnar
um að eiga létt samskipti við
börnin sín í smá tíma, sýna þeim
svo engin viðbrögð í smástund og
haga sér svo aftur venjulega. Þegar
börnunum voru ekki sýnd nein
viðbrögð sýndu þau neikvæðari
tilfinningar og höfðu líka minni
félagsleg samskipti en annars.
Sterkari viðbrögð við álagi
Þessi aðferðafræði var notuð aftur
í nýju rannsókninni, þar sem
niðurstöðurnar sýndu að þegar
móðir sýnir engin viðbrögð og
veitir barninu ekki athygli, hefur
það meiri áhrif á börn mæðra sem
voru þunglyndar eða kvíðnar.
Hjartsláttur þeirra jókst meira en
barna sem áttu mæður sem höfðu
ekki glímt við slíkt, en munurinn
var átta slög á mínútu. Mæður
þessara barna töldu þau líka erfið-
ari í skapi. Rannsakendur óttast að
þetta gæti leitt til andlegra erfið-
leika þegar barnið vex úr grasi.
Rannsóknin náði til 50 mæðra
og barna þeirra, 20 þeirra höfðu
þjáðst af þunglyndi eða kvíða í
kringum fæðingu barna sinna og
30 höfðu ekki gert það. Enn um
sinn er því bara um bráðabirgða-
niðurstöður að ræða og það þarf
að endurtaka rannsóknina með
stærra úrtaki. Rannsakendur segja
að það sé næsta skrefið.
Niðurstöður annarrar rannsóknarinnar voru að andleg vellíðan móður
lengdi litningsenda barns hennar. Lengri litningsendar eru taldir hægja á
öldrun frumna og gætu bætt heilsu barnanna til lengri tíma litið. MYND/GETTY
Rannsakendurnir
segja að þetta
undirstriki mikilvægi
andlegrar heilsu verð-
andi mæðra hvað varðar
framtíðarþroska og
heilsu barna þeirra.
TILBÚIN TIL DRYKKJAR
STOÐMJÓLK
FYRIR ½ ÁRS TIL 2 ÁRA
OPTIBAC
FYRIR BÖRN
Hentar vel börnum sem eru með
meltingarvandamál s.s. kveisu,
hægðatregðu eða bakflæði
Styrkir mótstöðuafl líkamans
og getur dregið verulega úr
líkum á því að börn fái
öndunarfærasýkingar
Blandan er einstaklega mild þó
hún sé áhrifarík og hana má
gefa börnum frá fæðingu
6 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RFYRSTU ÁRIN