Fréttablaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 12
Ef ESB sér ekki
ljósið þá er það
vitað hvað mun gerast, ef
ekkert annað fylliefni er
komið og þá erum við í
slæmri stöðu.
Ingi Sigurðsson
ENSKI BOLTINN Félögunum í ensku
B-deildinni í knattspyrnu karla
hefur verið veitt heimild til þess að
hleypa stuðningsmönnum sínum
aftur inn á leiki liðanna.
Það verða hins vegar einungis
1.000 áhorfendur leyfðir á hverjum
leik fyrir sig og munu sóttvarnaað-
gerðir verða í hávegum hafðar. Félög
sem eru staðsett á þeim svæðum þar
sem útgöngubann er í gildi munu
ekki fá leyfi til þess að opna leik-
vanga sína fyrir stuðningsmönnum.
Stefnt er að því að hleypa fólki
á leiki í ensku úrvalsdeildinni í
byrjun október næstkomandi og er
verið að skipuleggja þessa dagana
hvernig staðið verði að málum í
þeim efnum, þegar þar að kemur.
Þær áætlanir fengu bakslag á
dögunum þar sem kórónaveiru smit
jókst umtalsvert. Forsvarsmenn
ensku úrvalsdeildarinnar hafa sent
breskum stjórnvöldum bréf þar sem
fram kemur að félögin tapi rúmum
17 milljörðum á mánuði á meðan
leikið er fyrir luktum dyrum. – hó
Hleypa þúsund
áhorfendum
inn á vellina
ENSKI BOLTINN Pierre-Emerick
Aubameyang, fyrirliði karlaliðs
Arsenal í knattspyrnu, hefur skrifað
undir nýjan samning við félagið.
Nýi samningurinn sem hefur verið
í burðarliðnum í þó nokkurn tíma
gildir til ársins 2023.
Þessi 31 árs gamli framherji kom
til Arsenal frá Borussia Dortmund
árið 2018, en hann er nú fyrirliði
liðsins. „Ég hef áhuga á því að verða
goðsögn hjá Arsenal og þess vegna
skrifaði ég undir þennan samning,"
sagði Aubameyang eftir að hafa
undirritað samninginn.
Aubameyang skoraði 22 mörk
í ensku úrvalsdeildinni á síðasta
tímabili, en hann varð næstmarka-
hæsti leikmaður deildarinnar.
Hann var á skotskónum og skoraði
eitt marka Arsenal þegar liðið lagði
Fulham að velli, 3-0, í fyrstu umferð
deildarinnar um síðustu helgi.
Alls hefur Gaboninn skorað 72
mörk í 111 leikjum í öllum keppnum
fyrir Arsenal á þeim þremur leik-
tíðum sem hann hefur leikið með
liðinu. Næsti leikur Arsenal er á
laugardaginn þegar liðið fær West
Ham United í heimsókn. – hó
Fyrirliði Arsenal
verður um kyrrt
FÓTBOLTI ECHA, stofnun á vegum
Evrópusambandsins, hefur haft
til skoðunar frá árinu 2019 mögu-
legt bann við notkun núverandi
fylliefna á gervigrasvöllum frá og
með árinu 2028 vegna mögulegra
umhverfisáhrifa. Ákvörðun á að
liggja fyrir árið 2022. Knattspyrnu-
samböndin á Norðurlöndunum
hafa tekið höndum saman vegna
málsins enda fjölmargir gervigras-
vellir í löndunum. Á Íslandi eru 35
gervigrasvellir í fullri stærð og 163
minni gervigrasvellir. „Menn geta
alveg haft skoðanir á grasi og gervi-
grasi en við vitum hvað gervigras
hefur gert fyrir þróun á fótboltan-
um hér,“ segir Ingi Sigurðsson, for-
maður mannvirkjanefndar KSÍ, sem
kom fyrir stjórn KSÍ og kynnti þetta
mögulega bann á síðasta fundi sam-
bandsins.
Ingi segir að málið eigi sér tölu-
verðan aðdraganda og stofnunin
beini ekki spjótum sínum að fót-
boltanum heldur míkróplasti
almennt. „Þetta verkefni ECHA
er ekkert sérstaklega tengt knatt-
spyrnu, heldur um míkróplast
almennt og þar koma þessi fylliefni
til sögunar.“
Ingi veit ekki til þess að einhverjir
séu að finna upp umhverfisvænna
fylliefni þó að hann voni að það
komi fyrr en síðar, enda sé það
vilji bæði hans og KSÍ að vera sem
umhverfisvænast. „Það er búið að
reyna önnur fylliefni og því miður
eru engin önnur sem uppfylla þau
gæði sem þurfa að vera. Þess vegna
erum við, knattspyrnusamböndin
á Norðurlöndum, að benda á hinn
kostinn, sem er að gefa einhvern
aðlögunartíma. Svíarnir hafa
verið mjög duglegir í því að útbúa
umhverfi vallanna sinna þannig
að fylliefnin fari sem minnst út af
vellinum.
Þannig að þau haldist innan vall-
arins, fari ekki út í fötum og skóm
iðkenda – eins og mörg heimili á
landinu kannast við og þaðan inn
í þvottavélina. Þetta vill ESB losna
við. Mig minnir að það sé í Kalmar
sem búið er að útbúa völl þannig það
eru skorður utan við hann þannig
að möguleikinn er minnkaður að
míkróplastið yfirgefi völlinn og fari
út í umhverfið. Ef ESB sér ekki ljósið
þá er vitað hvað mun gerast, ef ekk-
ert annað fylliefni er komið og þá
erum við í slæmri stöðu,“ segir Ingi.
Í bréfi sem knattspyrnusambönd
Norðurlanda sendu ECHA sam-
eiginlega var lögð áhersla á þá stöðu
sem er uppi á Norðurlöndum með
tilkomu gervigrasvalla og hvaða
afleiðingar bann á slíkum völlum
myndi hafa á knattspyrnuiðkun á
Norðurlöndum. Ingi segir að fyrst
núna sé kominn tímarammi og
menn þurfi að taka höndum saman,
sé aldrei að vita nema nýtt fylliefni
komi til.
„Það er spurning hvað gerist
þegar menn þurfa að tala enn betur
saman því nú er kominn einhver
tímapunktur. Árið 2022 verður
þessi ákvörðun tekin og við vitum
núna hvað við höfum langan tíma
Þetta er hápólítískt mál og það
þarf að upplýsa marga en vonandi
gera allir sér grein fyrir hversu
miklar afleiðingar þetta getur haft
hér á landi.
Það er byrjað að telja niður og
allir þurfa að fara upp á tærnar
þannig að það verði ekki neitt
bann.“ benediktboas@frettabladid.is
ESB vill banna míkróplast á
gervigrasvöllum árið 2028
Stofnun á vegum Evrópusambandsins hefur haft til skoðunar mögulegt bann við notkun núverandi
fylliefna frá og með árinu 2028. Ákvörðun verður tekin árið 2022. Knattspyrnusambönd Norðurlanda
hafa tekið höndum saman enda mikið hagsmunamál. Málið er hápólitískt og tók stjórn KSÍ málið fyrir.
Valsmenn þurfa að skipta um gervigrasið eftir tímabilið enda orðið gamalt. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að
karla- og kvennaliðin komist á toppinn. Fylliefnið gæti þurft að vera af nýrri tegund. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Gary Lineker skrifaði
undir nýjan fimm ára samning
við BBC og mun halda áfram sem
stjórnandi fótboltaþáttarins Match
of the day. Hann stýrði þættinum
fyrst árið 1999.
Lineker tekur á sig 23 prósenta
launalækkun og samkvæmt frétt-
um ytra hefur hann samþykkt að
passa sig betur á samfélagsmiðlum,
en Lineker er einn allra skemmti-
legasti Twitter-notandinn þegar
kemur að fótbolta.
Nýr framkvæmdarstjóri BBC,
Tim Davie, tilkynnti um samning-
inn í gær og minnti á að samfélags-
miðlanotkun starfsmanna BBC
væri undir sífelldri skoðun.
Lineker var með 1,75 milljónir
punda í árslaun og er því með 1,35
milljónir í árslaun með nýja samn-
ingnum. Það gerir um 236 milljónir
króna samkvæmt gengi gærdagsins.
Morgunþáttastjórnandinn Zoe Ball
er því launahæsti starfsmaður BBC,
en hún tók við stjórnartaumunum
morgunþáttarins í fyrra. Af tíu
launahæstu starfsmönnum BBC eru
fjórar konur.
Lineker tísti um samninginn og
sagðist vorkenna þeim sem þola
ekki að sjá hann á skjánum enda
samningurinn langur. – bb
Lineker áfram með Match of the day
Gary Lineker hefur séð um vin-
sælasta fótboltaþátt Bretlands í
hartnær 20 ár. MYND/GETTY
Lineker spilaði 80
landsleiki fyrir England og
skoraði 48 mörk. Hann lék
með Leicester, Everton,
Barcelona og Tottenham.
Hann hefur séð um Match of
the day síðan 1999.
1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT