Fréttablaðið - 16.09.2020, Side 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Inulin trefjar má finna í lauk, blaðlauk, hvítlauk, banönum, spergli og í kaffifíf li (síkoríu),
en Inulin er einmitt unnið úr
honum. Inulin, eins og aðrar
vatnsleysanlegar trefjar, verða
seigfljótandi og eru taldar geta
örvað vöxt æskilegra baktería í
ristlinum með því að vera fæða
(e. prebiotics) fyrir þær. Þær eru
því góður áburður fyrir góðu
gerlana í þörmunum.
Ónot, hægðatregða eða
óreglulegar hægðir
Meltingarónot, hægðatregða og
vandamál tengd því, eru allt of
algeng og geta haft slæm áhrif á
heilsufar okkar. Trefjar í formi
bætiefna geta verið lausn fyrir
marga, en trefjaneysla Íslendinga
er of lítil. Ráðlögð neysla trefja er
að minnsta kosti 25-35 grömm á
dag, en síðustu tölur sem til eru
um meðal trefjaneyslu Íslendinga
finnast í neyslukönnun frá 2010-
2011 og er meðal trefjaneysla
okkar 17 grömm á dag.
Melting, blóðrásarkerfi
og óheilbrigð innri fita
Inulin er 100% náttúrulegt og
hefur það verið rannsakað tölu-
vert. Hér eru nokkrir áhugaverðir
punktar um þessar einstöku
trefjar:
n Inulin getur bætt meltinguna
og getur, með nægilegu vökva
magni, auðveldað hægðalosun.
n Inulin getur eflt fjölgun vin
veittra gerla í þörmunum. Talið
er að hátt hlutfall þessara
gerla hjálpi til við niðurbrot á
trefjum, fóðri þarmaveggina
og geti einnig haft góð áhrif á
ónæmiskerfið.
n Inulin er talið hafa jákvæð áhrif
á (heildar) kólesteról og þríglýs
eríð í blóði.
Innri fita er hættuleg fita sem
við sjáum ekki, en hún umlykur
líffæri okkar og getur valdið okkur
heilsutjóni ef það er of mikið af
henni. Inulin er talið hjálpa til við
niðurbrot á þessari fitu.
Þegar þessar trefjar koma í
þarmana, verða til ýmiss konar
fitusýrur sem taldar eru hafa góð
heilsufarsleg áhrif á okkur. Þetta
eru til dæmis asetat, proprionate
og butyrate fitusýrur, sem geta
hjálpað til við niðurbrot á innri
fitu og auðveldað upptöku á stein-
efnum eins og kalki, magnesíum,
fosfór, kopar, járni og sinki.
Auðvelt í notkun
Inulin er auðvelt í notkun. Það er
í duftformi og einfalt að hræra til
dæmis út í glas af vatni og skella
í sig. Einnig má setja það í boost,
grauta eða strá yfir morgunkorn
eða jógúrt. Það er bragðlaust og
sumir skella því jafnvel í kaffiboll-
ann sinn. Það tekur trefjarnar smá
tíma að drekka í sig vökva og verða
seigfljótandi.
Hanna Þóra Helgadóttir matar-
bloggari, sem sérhæfir sig í lágkol-
vetna og ketóuppskriftum, deildi
með okkur þessari bragðgóðu
uppskrift að trefjaríka hrökkkex-
inu sínu þar sem hún notar einmitt
Inulin trefjar.
Inulin trefjakex
1 egg
2 msk. Inulin trefjar
2 dl hörfræ
½ dl möndlumjöl
Himalaja-salt (magn eftir smekk –
gott að hafa smá saltað)
Öllu blandað saman í skál og
smurt þunnu lagi á bökunar-
pappír.
Bakið í 12-15 mínútur á 180
gráðum á blæstri þar til stökkt.
Slökkvið á ofninum og leyfið
kexinu að þorna inni í ofninum í
nokkrar mínútur.
Hægt er að fylgjast með Hönnu
Þóru á Instagram – hannathora88.
Inulin fæst í verslunum Krónunnar
og í flestum apótekum.
Inulini í duftformi má bæta út í drykki og út á grauta. Hanna Þóra notar
Inulin í hrökkkex sem einfalt og fljótlegt er að baka.
Femarelle vörurnar eru nátt-úruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna
hormónabreytinga. Rannsóknir
sýna að þær geta slegið á einkenni
breytingaskeiðs og unnið gegn
beinþynningu.
Fann fljótlega mikinn mun
Stefanía Emma Ragnarsdóttir er
ein af fjölmörgum konum sem
nota Femarelle með góðum
árangri. Hér deilir hún með okkur
sinni reynslu: „Ég byrjaði að nota
Femarelle vegna þess að ég
svitnaði mikið á nóttunni, sem
skerti svefninn. Ég var búin að
finna fyrir þessum einkennum
lengi og ætlaði að fara til læknis,
en sá þá Femarelle auglýst og
ákvað að prófa fyrst náttúrulega
lausn. Ég fann mjög fljótlega
mikinn mun á mér. Nú, mörgum
árum seinna, held ég áfram að taka
Femarelle og líður miklu betur,
enginn sviti og ágætur svefn. Ég
mæli með Femarelle fyrir allar
konur.“
Hormónar og beinþynning
Beinþynning í tengslum við tíða-
hvörf leiðir í mörgum tilfellum
af sér beinbrot og er það talin
alvarleg ógn í vestrænum þjóð-
félögum þar sem meðalaldur
fer sífellt hækkandi. Fyrstu tvo
áratugi ævinnar byggjum við upp
beinin okkar og upp úr 30 ára
aldri fer smám saman að draga úr
beinþéttninni. Vegna minnkandi
estrogenframleiðslu hjá konum
eru þær mun útsettari fyrir bein-
þynningu heldur en karlar.
Femarelle Unstoppable
Helsta innihaldsefnið í Femarelle
vörunum kallast DT56a en þetta
er efnasamband unnið úr óerfða-
breyttu soja. Femarelle Unstopp-
able er hannað fyrir konur sem
eru hættar á breytingaskeiðinu, en
það er samsett úr einstakri blöndu
efna sem inniheldur efnasam-
bandið DT56a ásamt B2-vítamíni,
Bíótíni (B7-vítamín), D3-vítamíni
og kalki.
D-vítamín tekur þátt í að
viðhalda heilbrigðum beinum
og minnkar því líkurnar á því
að konur detti vegna lélegrar
líkamsstöðu og slakra vöðva.
Einnig stuðlar blandan kalk og
D-vítamín sameiginlega að minna
tapi á þéttni steinefna í beinum
hjá konum eftir tíðahvörf, en
lítil þéttni steinefna í beinum er
áhættuþáttur í beinbrotum vegna
beinþynningar. Auk þessa leggja
efnin sitt af mörkum í eðlilegu við-
haldi slímhúðar, húðar og starf-
semi taugakerfisins, ásamt því að
viðhalda eðlilegum hárvexti og
góðri andlegri heilsu. Femarelle®
er framleitt með sérstökum
aðferðum og engum kemískum
efnum er bætt við í framleiðslu-
ferlinu.
Fyrir konur frá 30 ára aldri
Femarelle vörurnar eru fáanlegar í
þremur gerðum sem henta konum
Betri lífsgæði eftir nokkrar vikur
Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar mis
munandi, þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum.
Stefanía Emma
hefur notað
Femarelle með
góðum árangri.
Hún mælir með
Femarelle fyrir
allar konur.
Prófaðu að setja
bragðlausu Inulin
trefjarnar í kaffið.
Innri fita er hættu-
leg fita sem við
sjáum ekki, en hún
umlykur líffæri okkar
og getur valdið okkur
heilsutjóni ef það er of
mikið af henni.
á mismunandi stigum tíðahvarfa,
en þau hefjast yfirleitt upp úr
þrítugu þó svo að einkenna verði
ekki vart strax. Femarelle getur
slegið á þau einkenni sem talin
eru upp hér að framan og í ljósi
þess að beinþéttni fer minnkandi
um svipað leyti og hormóna-
breytingar hefjast, getur inntaka
á Femarelle verið ágætis forvörn
fyrir einkenni breytingaskeiðsins,
ásamt því að minnka verulega
líkur á beinþynningu.
Sölustaðir: apótek, heilsuhús og
heilsuhillur verslana.
Ég fann fljótlega
mikinn mun á mér.
Nú mörgum árum
seinna held ég áfram að
taka Femarelle og líður
miklu betur, enginn sviti
og ágætur svefn.
Stefanía Emma Ragnarsdóttir
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R