Fréttablaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.09.2020, Blaðsíða 20
Ég held það sé jákvætt að bankinn hafi það mikinn trúverðug- leika að tilkynning um gjaldeyriskaupaáætlun, sem er ekkert sérstaklega stór í sniðum, hafi svo mikil áhrif. Agnar Tómas Möller, sjóðsstjóri hjá Kviku banka ✿ Gengi ISK gagnvart EUR 145 150 155 160 165 170 apríl 2020 maí 2020 júní 2020 júlí 2020 ágúst 2020 sept. 2020 Í ljósi þess hvað gjaldeyrisforði Seðlabankans er stór getur Seðlabankinn haft mikil áhrif með væntingastjórnun án þess endilega að þurfa að nota mikið af forðanum, segir Agnar Tómas Möller, sjóðs- stjóri hjá Kviku banka í samtali við Markaðinn. Seðlabankinn upplýsti eftir lokun markaða síðasta fimmtudag að hann myndi frá og með þessari viku vera reiðubúinn til að selja allt að 240 milljónir evra, jafnvirði 40 milljarða króna, í reglulegum við- skiptum við viðskiptavaka stóru bankanna á gjaldeyrismarkaði, til ársloka 2020. Mun Seðlabankinn selja þeim þrjár milljónir evra hvern viðskiptadag. Tilkynning Seðlabankans kom eftir að ljóst var að samkomulag Seðlabankans við lífeyrissjóði, um að þeir gerðu hlé á gjaldeyris- kaupum sínum, yrði ekki framlengt þegar það rennur út næsta fimmtu- dag. Markmiðið er að auka dýpt markaðarins, sem hefur að undan- förnu einkennst af lítilli veltu, og bæta verðmyndun. Gengisveiking upp á 3,6 prósent frá því í byrjun ágúst þurrkað- ist nærri út eftir að tilkynnt var um reglubundna gjaldeyrissölu. Krónan styrktist um 1,5 prósent eftir tilkynninguna og degi síðar, á föstudaginn í síðustu viku, seldi Seðlabanki Íslandi gjaldeyri fyrir 2,9 milljarða króna til þess að styðja frekar við gengið. Erna Björg Sverrisdóttir, aðal- hagfræðingur Arion banka, segir að útspil Seðlabankans hafi ekki komið á óvart, í framhaldi af frétt- um um að samkomulag við lífeyris- sjóðina verði ekki framlengt. Það sé í takti við þær yfirlýsingar sem hafa komið frá Seðlabankanum um gengi og gjaldeyrisinngrip. „Fyrst um sinn studdi þetta við gengi krónunnar og ég sé ekki betur en að það sé einmitt eitt af því sem Seðlabankinn vill, enda telur hann að krónan sé orðin of veik miðað við undirliggjandi efnahagsstærð- ir og framleiðslugetu,“ segir Erna Björg. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í viðtali við Fréttablaðið í síð- ustu viku að gengi krónunnar væri orðið mjög lágt miðað við eðlilegt framleiðslustig í efnahagslífinu. Hann sagðist telja að ferðaþjónust- an myndi koma mjög fljótt til baka um leið og slakað yrði á sóttvarna- aðgerðum, rétt eins og gerðist í júlí og ágúst. „Þetta er því tímabundið ástand,“ útskýrði seðlabankastjóri. Ekki allir lífeyrissjóðir töldu sig bundna af samkomulaginu við Seðlabankann auk þess sem skuldbindingar þeirra við erlenda framtakssjóði hafa kallað á gjald- eyriskaup. Þá hefur umtalsverð sala erlendra fjárfesta á íslenskum ríkis- skuldabréfum sett þrýsting á gengi krónunnar. Agnar Tómas bendir á að hreyf- ingar á gengi krónunnar byggist oft á sálfræði. „Þegar krónan virkar veik og f læðið á markaðnum er einhliða, er hætta á að fyrirtæki og fjár- festar hagi ákvörðunum sínum í samræmi,“ segir Agnar. Hann telur líklegt að framvirkir samningar innf lytjenda og frestun útf lutn- ingsfyrirtækja á að skipta gjaldeyri í krónur, hafi spilað inn í gengis- veikingu sumarsins. Sýnir mikinn trúverðugleika Skrúfuáhrif á gjaldeyrismarkaði geta byrjað að grafa undan verð- bólguvæntingum en verðbólgan stendur nú í 3,2 prósentum, sem er nokkuð yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans. Agnar segir mikilvægt að Seðla- bankinn beiti gjaldeyrisforðanum til að bregðast við. Gengisstyrking síðustu daga sýni að bankinn þurfi ekki að nota mikið af forðanum til þess að hafa áhrif með væntinga- stjórnun. „Ég held það sé jákvætt að bank- inn hafi það mikinn trúverðugleika að tilkynning um gjaldeyriskaupa- áætlun, sem er ekkert sérstaklega stór í sniðum, hafi svo mikil áhrif,“ segir Agnar og bætir við að langtíma verðbólguvæntingar hafi lækkað mikið í kjölfar tilkynningar Seðla- bankans. Tíu ára verðbólguálag hafi lækk- að úr 2,85 prósentum í 2,55 prósent og framtíðarverðbólguvæntingar, það er, væntingar um verðbólgu í 5 ár eftir 5 ár, sem Seðlabankar horfa almennt mikið til, hafi fallið úr 2,55 prósentum í 2,15 prósent sem er undir verðbólgumarkmiði. Erna Björg tekur í sama streng og segir að Seðlabankinn hljóti að vera nokkuð ánægður með áhrifin sem þessi tilkynning hefur haft hingað til. „Maður veltir auðvitað fyrir sér hvort tilkynningin hafi jafnvel haft meiri áhrif en Seðlabankinn átti von á. Svona miklar sveif lur milli daga ríma að minnsta kosti ekki við yfirlýst markmið um að auka stöðugleika á markaðinum. Gengisstyrkingin, sem á einum degi þurrkaði nánast út gengisveikingu ágústmánaðar, kemur sér hins vegar vel fyrir Seðlabankann, sem er á verðbólgumarkmiði.“ Ekki verið að breyta leiknum Í viðbrögðum gjaldeyrismiðlunar Landsbankans, sem voru send til viðskiptavina síðasta f immtu- dag og Markaðurinn hefur undir höndum, segir að inngrip Seðla- bankans á gjaldeyrismarkaði hafi að undanförnu verið svo regluleg að ekki hafi verið hægt að kalla þau tilfallandi. „Það er ekki hægt að hengja þetta lengur á ákveðna útlendinga, það hreinlega vantar bara gjald- eyri í vöru- og þjónustuviðskipti. Seðlabankinn er ekki með þessu að breyta leiknum, hann er í raun bara að útvega svipað magn og hann hefur gert síðustu 2 mánuði. Það magn hefur dugað til að hægja á veikingu,“ segir í skeyti gjaldeyris- miðlunar Landsbankans. „Þetta getur róað einhverja og getur jafnvel búið til styrkingu á rólegum útf læðistímum. Það sem er miklu áhugaverðara er að fylgjast með Seðlabanka Íslands í óregluleg- um aðgerðum. Þurfa dagsveiflurnar að verða meiri til þess að hann mæti með óregluleg inngrip?“ Þá bendir gjaldeyrismiðlunin á að hagkerfið hafi verið fast í „krón- ísku útf læði“ og þar af leiðandi veikingu íslensku krónunnar. Ekki sé ástæða til að reikna með að það breytist. „Í stað þess að geta treyst á jafna og þétta veikingu, hafa líkur á til- fallandi styrkingardögum aukist.“ Þarf ekki mikið til að stýra væntingum Reglubundin gjaldeyrissala Seðlabanka Íslands hefur stutt við gengi krónunnar og lækkað langtíma verðbólguvæntingar. Sjóðsstjóri hjá Kviku segir að Seðlabankinn þurfi ekki að nota mikið af gjaldeyrisforðanum til að stjórna verðbólguvæntingum. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Mikil þörf á viðskiptaafgangi Innlán lífeyrissjóða hjá inn- lendum fjármálafyrirtækjum hafa aukist um 50 milljarða króna frá byrjun árs. Upphæðin nam 153 milljörðum króna í janúar en var komin í 203 milljarða króna í júlí samkvæmt nýjustu tölum Seðlabanka Íslands. Uppsöfnun innlána má meðal annars rekja til uppgreiðslna á sjóðsfélagalánum og samkomulagsins við Seðla- banka Íslands. Eignir sjóðanna nema hátt í 190 prósentum af þjóðarfram- leiðslu og hlutfall erlendra eigna er um 33 prósent. Agnar Tómas bendir á að flestir sjóðir ætli að hækka hlutfallið í um 40 pró- sent og auk þess renni um 300 milljarðar í sjóðina á ári í formi ið- gjalda, afborgana og fjármagns- tekna. „Ég tel líklegt að lífeyrissjóðir muni vilja fjárfesta stórum hluta af þeim fjármunum erlendis. Líklega munu því á bilinu 100 til 150 milljarðar á ári um næstu ár leita frá lífeyriskerfinu í erlendan gjaldeyri. Það er um um 3 til 5 prósent af landsframleiðslu og því ljóst að þjóðarbúið mun þurfa að viðhalda talsverðum viðskiptaafgangi bara til að geta staðið undir því útflæði.“ Ekki allir lífeyrissjóðir töldu sig bundna af samkomulaginu við Seðlabankann auk þess sem skuldbindingar þeirra við erlenda framtakssjóði hafa kallað á gjaldeyriskaup. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.