Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 34
Re k s t r a r k o s t n a ð u r sjálf bærra bygginga er allt að 10 prósentum lægri á ársgrundvelli og meirihluti fjárfesta telur verðmæti slíkra bygginga vera á bilinu 3 til 10 pró- sentum hærra, að því er fram kemur í alþjóðlegri könnun sem verkfræði- stofan Mannvit átti aðild að. Lægri rekstrarkostnaður birtist meðal annars í skilvirkari orkunotkun og aukið verðmæti fasteignanna stafar meðal annars af meiri eftirspurn leigutaka eftir sjálf bærnivottuðu húsnæði. Rannsóknin sem um ræðir var samstarfsverkefni Mannvits og dönsku verkfræðistofunnar Ram- bøll. Könnunin var send út til aðila á byggingarmarkaði á Norðurlönd- unum og í Bretlandi. „Við fengum svör frá 18 lykilaðilum í byggingar- iðnaðinum á Íslandi í þessari könn- un, sem er ágætt hlutfall miðað við þann fjölda sem er á markaðnum í raun og veru. Á tæpu ári sem er liðið síðan við gerðum könnunina hefur viðhorfið hins vegar breyst hratt,“ segir Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur hjá Mann- viti. „Þegar ég byrjaði að ræða þessi mál við viðskiptavini árin 2016 og 2017 var bara skellt á mig. Að flestra mati áttu sjónarmið um sjálf bærni bygginga ekki við á Íslandi og var þar gjarnan vísað í hversu ódýrt og hreint rafmagnið er á Íslandi. Hins vegar er fleira undir en orkunotkun, til að mynda hvernig farið er með úrgang, bæði við framkvæmdir og síðan við rekstur byggingar, orku- notkun, viðbyggingu, efnisval, til dæmis hversu mikið kolefni er bundið í byggingarefnum og svo framvegis. Svo koma þarna líka inn sjónarmið um vistgæði, innivist og vellíðan þeirra sem nota bygg- inguna,“ segir Sandra. „Fyrst og fremst nýtast vottunar- kerfin sem gæðakerfi fyrir bygg- ingariðnaðinn. Erlendis erum við að sjá að verðmæti sjálf bærnivottaðra bygginga er meira en annarra, ein- faldlega vegna þess að mörg fyrir- tæki gera þá kröfu að húsnæði sem er notað undir starfsemi þeirra sé sjálf bærnivottað.“ Sjálf bærnivottun fyrir nýjar byggingar felur í sér ákveðinn kostnað í upphafi, en Sandra segir að stofnkostnaður bygginga geti verið um einu til þremur prósentum hærri að meðaltali ef gæta á fyllstu sjálf bærnisjónarmiða, samkvæmt erlendum rannsóknum. Hún bendir hins vegar á að meira virði fast- eigna, hærri leigutekjur og lægri rekstrarkostnaður bæti það upp á skömmum tíma. Rannsóknin leiddi í ljós að sjálf- bærni er að verða hið nýja viðmið í byggingariðnaðinum hjá nágranna- þjóðum okkar, þar sem rúmlega 57% aðspurðra töldu að meira en helmingur framtíðarverkefna yrðu tengd sjálf bærni. Sandra segir að Ísland sé aðeins á eftir öðrum Norðurlöndum og Bretlandi í þess- um efnum: „Í öðrum löndum sjáum við að eftirspurn sjálfbærnivottaðs húsnæðis er einfaldlega að stuðla að hærra leiguverði. Það hefur síðan sýnt sig að slíkt skilar sér í meira verðmæti fasteignanna. Ég myndi segja að við séum svona fimm til tíu árum á eftir Norðurlöndunum í þessum efnum. Kosturinn er hins vegar sá að við getum hreyft okkur miklu hraðar. Orkan er til að mynda þegar hrein hér á Íslandi.“ Séu svör þátttakenda í könnun- inni á Íslandi og í öðrum löndum borin saman, sést að afstaðan hér á landi sker sig úr. Íslenskir svarendur svöruðu þannig miklu frekar að hærri fjárfestingakostnaður, skort- ur á pólitískri hvatningu og skortur á eftirspurn sjálf bærra fasteigna, kæmi í veg fyrir að sjálf bærnimál væru tekin til gagngerrar hugleið- ingar við hönnun, framkvæmd og rekstur fasteigna. Sandra nefnir að sjálf bærnivott- un bygginga hafi þau áhrif gagn- vart eigendum þeirra að hægt er að gefa út græn skuldabréf með veði í byggingunum. Sífellt f leiri fjárfest- ingasjóðir hafa sett sér markmið um ákveðið hlutfall grænna fjár- festinga í sínum eignasöfnum og því eru þessi svokölluðu grænu skulda- bréf að seljast á betri kjörum fyrir lántakendur, vegna aukinnar eftir- spurnar í slíka fjármálagjörninga. „Reykjavíkurborg er að vinna í því að votta allar sínar byggingar í samræmi við sína umhverfisstefnu og sama má segja um framkvæmda- sýsluna. Smáralindin var einnig vottuð nýlega, en það gerir eiganda fasteignarinnar kleift að gefa út grænt skuldabréf á móti henni. Fjár- festar eru stöðugt að horfa til þess að hafa sín eignasöfn með grænni vottun af einhverju tagi, meðal ann- ars vegna þess að þær eru öruggari fjárfestingar til frambúðar. Olíu- vinnsla er þannig miklu áhættu- samari fjárfesting en orkuvinnsla úr endurnýjanlegum orkugjöfum, meðal annars með tilliti til slysa- tíðni og loftslagsbreytinga,“ segir Sandra. Sjálfbærnivottun bygginga getur aukið verðmæti þeirra Rekstrarkostnaður bygginga sem hlotið hafa sjálfbærnivottun er lægri. Eftirspurn eftir slíku húsnæði getur jafnframt aukið verðmæti þess, að því er kemur fram í nýrri rannsókn. Fyrirtæki á Norðurlöndum og Bretlandi setja sér nú mörg reglur um að nota einungis húsnæði sem hlotið hefur sjálfbærnivottun. Þórður Gunnarsson thg@frettabladid.is Smáralindin fékk nýlega sjálfbærnivottun, en Reginn er eigandi fasteignarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Eftirspurn grænna skuldabréfa eykst Fyrst tók að kræla á grænum skuldabréfum árið 2008 þegar Alþjóðabankinn gaf út skulda- bréfaflokk að jafnvirði 1,3 milljarða dollara. Afrakstur út- boðsins var svo nýttur í verkefni sem sögð voru umhverfis- og samfélagslega ábyrg. Síðan þá hefur þessi sami skuldabréfa- flokkur vaxið mjög og stendur nú í 12,6 milljörðum dollara, en að sögn Alþjóðabankans hefur ávallt verið umframeftir- spurn eftir við hverja útgáfu. Meðal þeirra sem fjárfest hafa í grænum skuldabréfum Alþjóða- bankans eru lífeyrissjóðir og eignastýringafyrirtæki. Í kjölfar samþykktar Parísar- sáttmálans árið 2015 kom síðan aukinn kraftur í útgáfu grænna skuldabréfa, einkum og sér í lagi í Evrópu. Samkvæmt skýrslu frá sænska bankanum SEB var heild- arvirði útistandandi grænna skuldabréfa yfir 800 milljarðar dollara undir lok síðasta árs. Spáði bankinn því að þess væri ekki lengi að bíða að heildarvirði grænna skuldbréfa á heimsvísu myndi skríða yfir 1.000 milljarða dollara markið. Ég myndi segja að við séum svona fimm til tíu árum á eftir Norðurlönd- unum í þessum efnum. Sandra Rán Ás- grímsdóttir Arnarla x, stærsta la xeldi landsins, tapaði 30 milljón-um norskra króna, jafnvirði um 449 milljóna króna, á öðrum fjórðungi, fyrir skatta og f jár- magnsliði (EBIT). Til samanburðar hagnaðist laxeldið um 26 milljónir norskar, á sama mælikvarða á sama tíma fyrir ári. Þetta kemur fram í uppgjöri norska laxeldisins SalMar sem á meirihluta í Arnarlaxi. Á fyrri helmingi ársins tapaði Arnarlax níu milljónum norskra króna, jafnvirði 135 milljóna króna, samanborið við 51 milljónar norskra króna hagnað, jafnvirði 766 milljóna króna, á sama tíma fyrir ári. Kjartan Ólafsson, stjórnarfor- maður Arnarlax, segir að afkoman á fyrri hluta ársins litist af miklum kostnaði sem rekja megi til affalla á seiðum sem sleppt var árið 2018, en talsverð afföll urðu í byrjun árs af völdum vetrarsára. Jafnframt hafi vinnslan legið niðri í júní á meðan unnið var að aukinni afkastagetu á Bíldudal. „Við bindum miklar vonir við uppskeru sem hefst á næstu vikum,“ segir hann en þeim seiðum var sleppt í fyrra. Fram kemur í uppgjörinu að 90 prósent af sölunni í apríl og maí hafi verið þegar verð á eldislaxi var lágt. „Söluverð afurða var heldur lágt en ástandið á helstu mörkuðum er við- kvæmt og dreifileiðir mun snúnari en áður var. COVID-19 hefur gert það að verkum að f lugsamgöngur eru skertar og stopular,“ segir Kjartan. Hann segir að heimsfaraldurinn hafi sömuleiðis áhrif á sölu á eldis- laxi, því hótel og veitingahús víða um heim „eru í öldudal eins og þekkt er þessi misserin“. Kjartan segir að eftirspurn eftir eldislaxi sé mikil í smásölu. „Hágæðamatvæli eins og ferskur lax aðlagast aðstæðum og finna sér smám saman nýjar leiðir að neytandanum. Þessi misserin einbeitum við okkur að því að ná betur utan um rekstur og kostnað,“ segir hann. – hvj Arnarlax tapaði 450 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hagnaður Snaps jókst í 17,2 milljónir króna árið 2019. Árið áður tapaði veitinga- staðurinn 344 þúsund krónum. Fram hefur komið í fjölmiðlum að það ár hafi af koman litast tals- vert af því að ábyrgð á leigu hjá Cafe Paris hafi verið gjaldfærð hjá Snaps fyrir 28 milljónir króna. Velta Snaps dróst saman um átta prósent á milli ára og nam 558 milljónum króna árið 2019. Launakostnaður nam 54 pró- sentum af tekjum en var 46 pró- sent árið áður. Laun og launatengd gjöld jukust um sjö prósent á milli ára og námu 300 milljónum. Starfsmannafjöldi var óbreyttur á milli ára og var 60, samkvæmt ársreikningi 2019. Arðsemi eiginfjár var 30 pró- sent á árinu 2019. Eigið fé var 66,1 milljón við lok árs og eiginfjár- hlutfallið var 42 prósent. Snaps er í eigu félags á vegum hjónanna Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur. Fram kemur í ársreikningnum að velta veitingastaðarins hafi dregist saman um 35 prósent á fyrstu sjö mánuðum ársins 2020 vegna tímabundinnar lokunar á veitingastöðum, samkomu- takmarkana og tveggja metra reg lu nnar. St jór nendu r haf i brugðist við þessum aðstæðum meðal annars með því að nýta sér úrræði stjórnvalda, eins og hægt sé og með hliðsjón af þeim, ágætri stöðu félagsins í árslok 2019 og hagræðingaraðgerðum telja stjórn og stjórnendur að félagið muni verða rekstrarhæft um fyrirsjáanlega framtíð, segir í ársreikningi. – hvj Hagnaður hjá Snaps jókst í 17 milljónir króna Snaps hefur ekki farið varhluta af COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 54% var launakostnaður sem hlutfall af tekjum Snaps árið 2019. Hlutfallið fór vaxandi en það var 46 prósent árið áður. Starfsmannafjöldi var óbreyttur en launakostn- aður jókst um sjö prósent. 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.