Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 40
Spurningar og ólík
sjón armið eru eitur í
beinum hinna „réttlátu“ sem
hafa höndlað sannleikann í
eitt skipti fyrir öll.
Óli Björn Kára-
son, formaður
efnahags- og
viðskipta-
nefnda
Alþingi
10.09.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 16. september 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
SKOÐUN
Er æskilegt að lífið sé laust við allt mótlæti? Þjóðfélagsum-ræða um sum lagafrumvörp
er nokkuð yfirborðskennd. Rætt
er um tæknileg atriði og hin ýmsu
hagrænu áhrif sem breytingunum
fylgja en minna fer fyrir umræðu
um gildin og samfélagssýnina sem
búa að baki. Þetta á sérstaklega við
hlutdeildarlán félagsmálaráðherra
sem hafa nýlega hlotið brautar-
gengi á Alþingi.
Ekki misskilja mig sem svo að
hagrænu áhrifin skipti engu máli.
Varasamt er að auðvelda lántöku á
sama tíma og vextir eru í sögulegu
lágmarki. Það er ekki að ástæðu-
lausu að Seðlabankinn minnti
á gömlu 90 prósenta lánin og
afleiðingar þeirra í umsögn sinni
um frumvarpið. Hlutdeildarlánin
munu án efa skapa meiri spennu
á húsnæðismarkaði. En í þessum
efnum þarf að huga að fleiru.
Séreignarsamfélagið, þar sem
millistétt og tekjulægri njóta
búsetuöryggis og eignamyndunar,
er eftirsóknarvert af ýmsum ástæð-
um. Ein er sú að slíkt samfélag gerir
manneskjunni kleift að uppfylla
hina aldagömlu þrá eftir því að eiga
fremur en að leigja. Önnur ástæða
er að séreignarsamfélagið elur af sér
tvær mikilvægar dyggðir: eljusemi
og sparsemi. Það er reisn yfir því
að kaupa fasteign eftir að hafa lagt
hart að sér í vinnu og neitað sjálfum
sér um efnisleg gæði.
Hlutdeildarlán virka þannig að
ríkið veitir 20 prósenta lán á hag-
stæðum kjörum á móti einungis
fimm prósenta eiginfjárframlagi
lántaka.
Þetta frumvarp afhjúpar lítil-
fenglega sýn á mannlegt samfélag.
Skilaboðin eru þessi: Ef þú uppfyllir
vesældarskilyrði ráðuneytisins
þá þarftu ekki að vinna bug á
aðstæðum þínum með eljusemi
og sparsemi. Þú þarft ekki að þróa
með þér öfundsverð persónuein-
kenni til þess að ná háleitu mark-
miði. Farðu auðveldu leiðina og
skráðu þig í ríkisprógrammið.
Hlutdeildarlánin svala þorsta
samtímans í að fá allt sem allra
fyrst. Þau eru uppskrift að þrótt-
litlu og veikburða samfélagi.
Ekki er þar með sagt að ríkið hafi
engu hlutverki að gegna. Sannar-
lega geta skapast aðstæður, bæði í
þjóðlífi og atvinnulífi, sem krefjast
inngripa af hálfu ríkisins. Vandinn
er sá að margir stjórnmálamenn
starfa eftir sömu lögmálum og gilda
um straum. Þeir leita leiðar hins
minnsta viðnáms.
Þegar hagsmunahópar búa til
vanda úr engu hafa ráðherrar mála-
flokksins ekki í sér að andmæla. Og
ef vandinn er vissulega til staðar
hafa þeir ekki kjark til þess að
ráðast á rótina. Framboðsskortur
á húsnæðismarkaði leiðir til frum-
varps um sérstök ríkislán. Umsvif
Ríkisútvarpsins leiða til þess að
einkareknir fjölmiðlar eru gerðir að
bótaþegum. Og svo framvegis.
Lítilfengleg sýn
á samfélag
SÉRHÖNNUM OG SÉRMERKJUM STARFSMANNAGJAFIR
MEÐ UPPLIFUN AÐ ÞÍNU VALI
Hafðu samband og við útbúum persónulega starfsmannagjöf
með kveðju frá fyrirtækinu, í þeim verðflokki sem þú óskar.
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
GEFÐU
STARFSFÓLKI
UPPLIFUN
Í ÖSKJU
Eyja fjárfestingafélag, sem er í eigu hjónanna Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, tapaði 689 milljónum
króna árið 2019. Árið áður hagnaðist félagið um
288 milljónir króna, samkvæmt ársreikningi.
Eigið fé fjárfestingafélagsins var 2,3 milljarðar
króna við árslok og eignir þess voru um fjórir
milljarðar króna. Skuldir við tengda aðila námu
1,5 milljörðum króna.
Tap Eyju í fyrra má annars vegar rekja til að áhrif
dóttur- og hlutdeildarfélaga drógu afkomuna niður um
334 milljónir króna. Sá liður var jákvæður um 582 millj-
ónir árið áður. Hins vegar til þess að niðurfærðar
kröfur námu um 286 milljónum króna. Sá liður
var neikvæður um 150 milljónir árið áður.
Verðmætasta eign Eyju er félag sem áður hélt
utan um eignarhlut hans í Domino’s á Íslandi.
Dótturfélagið, Eyja fjárfestingafélag II, er bókfært
á 1,4 milljarða króna í ársreikningnum.
Eyja á meðal annars í Snaps, Joe and the Juice
á Íslandi, Gló og Brauð og co. Í fyrra átti félag-
ið helmingshlut í Jómfrúnni, en seldi hlut sinn í
sumar til Jakobs Einars Jakobssonar sem á nú veitinga-
staðinn að fullu. – hvj
Eyja tapaði 689 milljónum króna
Birgir Þór
Bieltvedt.