Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 16.09.2020, Qupperneq 46
Í öðrum tungumálum er talað um fæðingardag, þá er ekki verið að mæla eitt og eitt ár af manni og minna á endalokin. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Jenný Júlíusdóttir Árhvammi, Öxnadal, lést í faðmi fjölskyldunnar 9. september. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 18. september kl. 10.30. Vegna aðstæðna verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni, en athöfninni verður streymt á facebook: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju-beinar útsendingar. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahlynningu á Akureyri, reikningur 162-05-62158, kt. 570397-2819. Guðmundur Heiðmann Heiðar Karl Unnur Elva Hlíf Jón Þórir Þórarinn Heiðmann Sigríður Jóna Ingvi Rúnar Rannveig Björg Ólöf Sveinbjörn Júlíus Geir Selma Guðmundur Arnar Ingibjörg ömmubörn, langömmubörn. Ástkær systir okkar, mágkona og móðursystir, Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari, Grænuhlíð 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 9. september. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju, föstudaginn 18. september klukkan 14. Að auki verður útförinni streymt á eftirfarandi hlekk: www.livestream.com/luxor/kolbrun Þeim sem vilja minnast Kolbrúnar er bent á Styrktarreikning Ljóssins. Eva Guðrún Gunnbjörnsdóttir Örn Elvar Arnarson Stefán Kristján Gunnbjörnsson Steinunn Margrét Larsen Páll Jóhannsson Jóhannes Arnar Larsen Rannveig Skúla Guðjónsd. Friðrik Rafn Larsen Íris Mjöll Gylfadóttir Linda Rut Larsen Eiður Ingi Sigurðarson Freyja Guðrún Mikkelsdóttir, Eldgrímur Kalman og Gunnbjörn Ernir Atlas Arnarsynir Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn MAXIMILIAN HELGI ÍVARSSON lést þriðjudaginn 8. september Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 18. september klukkan 13. Einlægar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug. Ívar Erlendsson Joanna Marcinkowska Stefan Erlendur Ívarsson Alexandra Helga Ívarsdóttir Tinna Ívarsdóttir Ewa Marcinkowska Stefan Marcinkowski og fjölskyldur. Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, Maximilian Helgi Ívarsson lést þriðjudaginn 8. september. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju föstud ginn 18. september, klukkan 13. Einlægar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug. Ívar Erlendsson Joanna Marcink wska Stefan Erlendur Ívarsson Alexandra Helga Ívarsdóttir Tinna Íva sdóttir Ewa Marcinkowska Stefan Marcin owski og fjölskyldur. Elsku afi okkar, tengdafaðir og langafi, Hákon Guðmundur Torfason lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, sunnudaginn 13. september. Útför hans fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi, mánudaginn 21. september, klukkan 13.00. Hákon Hallgrímsson Hrefna Guðmundsdóttir Unnur Hallgrímsdóttir Þór Hallgrímsson Sandra Heimisdóttir Hallgrímur Þór Ingólfsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Jónsdóttir Hulduhlíð 44, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 18. september, kl. 13.00. Jón Jónsson Trausti Jónsson Gísli Jónsson Jóhann Jónsson Jakobína V. Guðmundsdóttir Jón Guðmundur Jónsson Ingibjörg Hólm Einarsdóttir og fjölskyldur þeirra. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Árni Halldórsson skipstjóri og útgerðarmaður á Eskifirði, andaðist 9. september. Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju, laugardaginn 19. september kl. 14. Kristín A. Árnadóttir Halldór Árnason Björn Árnason Sigrún Árnadóttir Guðmundur Árnason Auður Sigrúnardóttir Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, Evu Bjargar Skúladóttur náms- og starfsráðgjafa, Hólatúni 13, Akureyri. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnlaugur Þorgeirsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ólafía Lárusdóttir lést á Landspítalanum, miðvikudaginn 2. september. Útför hennar fer fram frá Áskirkju, föstudaginn 18. september kl. 15. Allir velkomnir en einnig verður streymt frá athöfninni https://www.facebook.com/groups/olafialarusdottir Eiríkur Ellertsson Jóhannes Ellert Eiríksson Jódís Ólafsdóttir Lárus E. Eiríksson Gróa Karlsdóttir Kristín Eiríksdóttir Trond Solberg Guðlaug Eiríksdóttir Ólafur Stefánsson Ragnhildur Eiríksdóttir Þorgrímur Þráinsson barnabörn og barnabarnabörn. Arthúr Björgvin Bollason rithöfundur á sjötugsaf-mæli í dag  og segir það bara ánægjulegt. „Ég er hins vegar ósáttur við orðið afmæli. Í öðrum tungumálum er talað um fæðingardag, þá er ekki verið að mæla eitt og eitt ár af manni og minna á endalokin. Sam- kvæmt íslenskunni er sjötugur maður líka kominn á áttræðisaldur. Þetta angrar mig málfræðilega og heimspeki- lega en ekki persónulega. Ég er hress til líkama og sálar og þá skiptir árafjöldinn engu máli.“ Í Berlín, þar sem Arthúr Björgvin er búsettur, er 30 stiga hiti og glamp- andi sól, „smá sumarauki,“ kallar hann það og er ekki á heimleið. „Það er álíka erfitt fyrir Íslendinga að komast heim frá Þýskalandi og fyrir Ísleif Gissurar- son biskup árið 1056, eins og fram kom í morgunútvarpinu,“ útskýrir hann. Alltaf að skrifa? „Já, frá því ég byrjaði að yrkja lausavísur, fjórtán, fimmtán ára hef ég verið heillaður af orðum og skrifa nú jöfnum höndum á íslensku og þýsku. Er með tvær í smíðum á þýsku og búinn með fjórar, ein þeirra fjallar um bókmenntir Íslands og landslag. Denis Schack, sem stýrir bókmenntaþætt- inum Druckfrisch, tók viðtal við mig í heita læknum í Landmannalaugum. Ég var að mestu ber en hann í jakkafötum með slaufu. Á bókamessum kemur fólk upp að mér og spyr: „Ert þú ekki nakta skáldið í læknum?“ Hvernig á svo að halda upp á daginn? „Það stóð til að við Svala og börnin okkar tvö yrðum á Havaí hjá systur minni og fjölskyldu, en úr því varð ekki núna. Ætlum þess í stað á lítinn veit- ingastað sem jafnframt er bókasafn og tileinkaður austurríska rithöfundinum Joseph Roth. Þar munum við njóta góðs matar innan um allar bækurnar.“ gun@frettabladid.is Nakta skáldið í læknum Það angrar Arthúr Björgvin Bollason málfræðilega og heimspekilega – en ekki per- sónulega, að eiga afmæli. Ekki síst þegar það felur í sér að komast á áttræðisaldur. „Ég er á Íslandi af og til þegar allt er eðlilegt,” segir Arthúr Björgvin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI  Merkisatburðir 1408 Síðustu heimildir um norrænt fólk á Grænlandi geta um brúðkaup í kirkjunni í Hvalsey þennan dag. 1936 Vísindamaðurinn Jean-Baptiste Charcot ferst ásamt 37 öðrum skipverjum þegar rannsóknaskipið Pourquoi- pas? ferst í ofviðri í skerjagarðinum við Álftanes á Mýrum. 1940 Tvær áhafnir íslenskra skipa, Arinbjörns hersis og Snorra goða, bjarga um 400 manns af franska flutninga- skipinu Asca, sem farist hafði á Írlandshafi eftir árás þýskrar flugvélar. 1944 Sprengjuflugvél frá bandaríska flughernum, með tíu manna áhöfn, brotlendir ofarlega á norðanverðum Eyjafjallajökli. Áhöfnin nær að ganga niður af jöklinum við illan leik og komast til byggða. 1963 Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandaríkjanna, kemur til Íslands í opin- bera heimsókn og er vel tekið. 1989 Erró, Guðmundur Guðmundsson listmálari, gefur Reykjavíkurborg tvö þúsund listaverk eftir sig og er safninu komið fyrir á Korpúlfsstöðum. 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.