Fréttablaðið - 16.09.2020, Síða 56
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Bjarna
Karlssonar
BAKÞANKAR
Ég vil þakka gæðingum Bisk-upsstofu meint frumhlaup þeirra í stóra Trans-Jesú
málinu. Það var fjarska hressandi.
Uppnám úr öllum áttum og föður-
legar afsökunarbeiðnir kirkju-
þings gera málið enn skemmti-
legra. Nú vita öll að þjóðinni
stendur ekki á sama um Jesú.
Í ljósi dagsins er vert að muna að
á meðan engar lýsingar má finna í
ritningunni er varði útlit meistar-
ans og ekki annað eftir honum haft
um kynferðismál en þá almennu
sýn að sá höndli sem höndlað fái,
þá geymir hefðin beinar lýsingar
á fjölskyldu Jesú sem pólitísku
f lóttafólki í Egyptalandi. Þegar
þessi orð eru rituð höfum við eina
slíka fjölskyldu á meðal okkar,
hjónin Doaa og Ibrahim ásamt
börnum sínum fjórum. Texti guð-
spjallanna geymir líka afgerandi
skilaboð um börn: Hver sem tekur
við einu barni í mínu nafni tekur
við mér, mælir meistarinn. Hann
varar fólk við því að koma illa fram
við börn og staðhæfir með hótandi
orðfæri að hvert barn eigi sér engil
á himni. Að kristnum skilningi
eru börnin hinir sönnu dómarar
heimsins. Viljir þú þekkja sjálfa(n)
þig skalt þú skoða þig með augum
þeirra barna sem eiga heilsu sína
og öryggi undir þér komið. var
Jesús að segja.
Málefni egypsku f lóttafjöl-
skyldunnar varðar ekki bara
þau sem persónur. Núna speglast
íslenskt þjóðfélag í augum þessara
barna. Börn byrja alltaf ósjálfrátt
að elska og treysta umhverfi sínu.
Skilaboð Jesú eru skýr: Þú ert það
sem þú ert í vitund þeirra barna
sem fara að elska þig og treysta
þér. Vilji íslensk þjóð eitthvað
með Jesú hafa, f leira en að sússa
sig á honum, hvet ég okkur til að
skilja að Trans-Jesú pæling allra
alda er sú að Guð býr í líkömum.
Í dag birtist hann okkur í fjórum
egypskum börnum.
Jesús
OPIÐ mán.–lau. kl. 11–18
Stóraukið úrval af gömlu!
BÓKAMARKAÐUR
ÁRMÚLA 42
NÓA
TRÍTLAR
VEGAN - 150 G
249
KR/STK
1660 KR/KG
Fyrir svanga
ferðalanga
Svona á sjónvarp
að vera
Heilar þáttaraðir
og úrval kvikmynda
Nýir áhugaverðir
íslenskir þættir
Sjónvarp Símans
appið
Talsett barnaefni
í hæsta gæðaflokki
Kvikmyndir fyrir
alla fjölskylduna
Enski boltinn
á Síminn Sport
Sjónvarp Símans
Premium
Það bera sig allir vel í Sjónvarpi Símans Premium!
Helgi Björns, Venjulegt fólk snýr aftur og ferskir
sjónvarpsþættir á færibandi í allan vetur. Hellingur
af nýju barnaefni og Enski boltinn rúllar á ný.
Horfðu á Sjónvarp Símans Premium í sjónvarpi
og snjalltækjum, hvar og hvenær sem er. Pantaðu áskrift á siminn.is
ÞAÐ ER
KOMIN HELGI
Hefst næsta
laugardagskvöld
Hefst í október