Austri


Austri - 18.12.1986, Qupperneq 13

Austri - 18.12.1986, Qupperneq 13
Egilsstöðum, jólin 1986. AUSTRI 13 Árið 1881 flutti nýr prestur í Þingmúla. Hann var séra Páll Páls- son frá Hörgsdal á Síðu. Skaftfell- ingur að ætt og uppruna. Hann kom frá Stafafelli í Lóni, en þar hafði hann verið prestur í þrjú ár. Þegar hann tók við í Þingmúla, var þar lítil timburkirkja aðeins 15 ára gömul, byggð 1865 og þá mikið farin að láta á sjá. Árið 1885 var hún eina kirkjan í Suður-Múla- prófastdæmi sem fékk einkunnina „lakleg“ og þarf „að endurbyggj- ast“. En þá átti hún aðeins 760,- kr. í sjóði. Við munum eftir altari úr þeirri kirkju, blámáluðu með hvítum listum. Á þessum tíma var Þing- múlakirkja í umsjá og ábyrgð prestanna. Þeir innheimtu sóknar- gjöldin og sáu um viðhald og endurnýjun kirkjuhússins. Árið 1886 ákvað séra Páll að byggja nýja kirkju og hefst handa með því að tryggja sér efni og smiði. Enda þótt kirkjan ætti reka á Ólafssandi við Héraðsflóa, virðist ekki hafa verið tiltækt efni í kirkju- grindina. Allt efni pantaði því séra Páll hjá Otto Wathne, kaupmanni á Seyðis- firði og gerði um efniskaupin sér- stakan samning, sem kaupmaður stóð við að fullu og öllu, betur þó, því flutningur efnisins frá Seyðis- firði á Hniteyri við Reyðarfjörð, beint á móti Búðareyri, kostaði aðeins 100 kr. eða helmingi minna en um var samið. Þaðan var það flutt á hestum yfir Þórdalsheiði. Sem yfirsmið kirkjunnar réði séra Páll Níels Jónsson frá Sauð- haga á Völlum, sem vann við smíð- ina í 49 daga. En annar smiður við kirjuna var mikill vinur og nágranni séra Páls, Arnfinnur Jónsson á Arnhólsstöðum. Hann vann við kirkjusmíðina í 63 daga og hafði auk fæðis 2,75 kr. á dag, en yfir- smiðurinn 3,00 kr. Þriðji smiðurinn var Jón Runólfsson í Litla-Sand- felli með 2.00 kr. á dag. Auk þess lét séra Páll vinnumenn sína hjálpa til við bygginguna með flutning á efni og fleiru, en ekki tók hann fyrir það nema 40,00 kr., sem nánast hefur ekki verið neitt og var það kannski fyrirboði þess örlætis til hennar, þegar hafist var handa um viðgerð löngu seinna. Alls var kostnaður við kirkjubygginguna 2.257,75 kr. Enda þótt smíðinni væri ekki að fullu lokið var kirkjan vígð fyrsta sunnudag í aðventu. Vígsluna fram- kvæmdi séra Páll sjálfur, því pró- fasturinn séra Jónas Hallgrímsson á Hólmum var lasinn og treysti sér ekki að fara gangandi yfirfjöll, eins og hann kemst að orði í bréfi til biskups 3. janúar 1887. Fyrir efnið í Þingmúlakirkju veðsetti séra Páll kirkjuna og ef til vill munu sumir halda að af þessu tiltæki sé forvitnileg saga, en svo er nú ekki. Eitt er þó víst að Páll baktryggði með sinni eigin lífsábyrgð að upp- hæð kr. 4.000,00 og greiðir Otto Wathne skuldina að fullu 13. janúar 1888. Næsta sumar þann 27. júlí 1887 vísiteraði prófasturinn kirkjuna og lýsti henni all nákvæmlega. Þá fögnuðu sóknarbörn í Þingmúla- kirkju vafalaust fallegasta húsi í Skriðdal. — BJÖRN BJARNASON: Þingmúlakirkja 100 ára Ávarp flutt eftir hátíðarmessu 31. ágúst 1986 Ekki naut séra Páll þess lengi að þjóna í kirkjunni sinni. Hann drukknaði í Grímsá undan Ketils- stöðum niðdimmt haustkvöld á af- mælisdaginn sinn þann 4. október 1890 aðeins 54 ára gamall. Þegar séra Magnús Blöndal Jónsson kom í Þingmúla árið 1891 Orgel var keypt 1922 og sóttu það á sleða út í Egilsstaði rétt fyrir jól, Runólfur Jónsson í Litla-Sand- felli og Ármann á Vaði. Árið 1927 tók söfnuðurinn við kirkjunni af séra Sigurði Þórðarsyni. Áfram var reynt að hlynna að kirkjunni og umhverfi hennar. Ofn Þingmúlakirkja. var kirkjan ómáluð innan, en sú málning sem prýddi hana lengst var máluð af Jóni Jónassyni málara og kaupmanni á Seyðisfirði. Jón var að mála upp í Vallanesi hjá séra Magnúsi 1916 og eru þá miklar líkur til að hann hafi fengið Jón til að fara upp í Þingmúla til að mála kirkjuna. Jón málaði kirkjuna mjög vel, ljósbláa með gylltum listum. Altari, predikunarstól, innihurðir og bekki ljós eikarmálað og entist sú málning til 1969 og er altari og stóll óbreytt enn. Altaristafla var máluð 1916 og er ekki ólíklegt að séra Magnús hafi þekkt Þórarin B. Þorláksson list- málara og fengið hann til að mála hana og sett hana strax í kirkjuna. Ekki er vitað hvenær járn var sett á kirkjuna, en lokið var við það 1929, þá sett á vesturstafn. settur í hana 1930 og steypt sáluhlið 1931. Gróðursett tré í elsta hluta kirkjugarðs 1941 og um hann sett varanleg girðing 1968. Upphaf að viðgerð á kirkjunni var að við tókum járn af veggjum hennar um 1970. Nokkru seinna hóf ég örstutta umræðu um Þing- múlakirkju á héraðsfundi á Egils- stöðum. Þann 16. september 1974 færði prófastur séra Sigmar Torfa- son okkur upphaflega lýsingu af kirkjunni og var það dýrmætt. Þann 23. mars 1975 ákvað sóknar- nefnd að hefjast handa um viðgerð með því að leggja frarrí nokkurt fé til efniskaupa, því kirkjan átti ekk- ert í sjóði. Við höfðum samband við biskup- inn herra Sigurbjörn Einarsson og benti hann okkur á Bjarna Ólafs- son lektor, sem kom til okkar í kirkjuna einn kaldan júnímorgun Óska öllum Fáskrúðsfirðingum svo og öðrum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þakka viðskiptin á síðasta ári. Fjarðarnesti Fáskrúðsfirði og lagði á ráðin um viðgerð. Þann 3. september 1975 hefst viðgerð sem var mjög aðkallandi, því kirkjan var mjög fúin og sigin. Rétt fyrir jól 1977 í leiðinlegri tíð var hún máluð innan og raflýst. Þá fékk hún tvær stórar gjafir frá ein- staklingum, 170,000,00 kr. ogfleiri gleðjandi atvik gerðust. Um þau jól var líka spilað á nýviðgert orgel sem kom úr viðgerð frá Reykjavík. Þá prýddi líka skírnarfontur, sem gefinn var kirkjunni 1972. Árið 1980 var kirkjan máluð utan og lauk þá hinni eiginlegu viðgerð. Síðan hefur hún verið máluð bæði innan og utan. Gert var við sáluhlið, lagað bílastæði og reist fánastöng. Einnig gefið ljós í kirkjugarð og lagður góður vegur heim að bæ og kirkju. Síðast í sumar var svo byggt skýli við kirkju- dyr og þakka ég Bjarna Ólafssyni fyrir teikninguna og öðrum sem hjálpuðu til. Ég þakka af heilum hug fyrir alla vinnuna, allar gjafirnar og góðvild- ina og fyrir það getum við skilað kirkjunni skuldlausri nú. Fólkinu í Þingmúla vil ég færa innilegar þakkir, bæði lífs og liðnu, fyrir margvíslega aðhlynningu við prest, söfnuð og litlu kirkjuna. Okkur verður hugsað til prests- ins séra Páls Pálssonar frá Hörgsdal á Síðu og fjölskyldu hans, sem gerðust góðir Skriðdælingar. Hann hvatti til búmenningar, starfs og dáða. Hann hafði málleysingja sem vinnufólk og tók að sér mállaus börn og ungmenni, til að kenna þeim táknmál. Mannmargt hefur oft verið í Þingmúla, ekki síst þegar kirkjan var byggð og er trúlegt að þær sem í bænum unnu hafi sýnt ástúð og mildi, ef þerra þurfti tár af augum eða skipta á milli munna, sem kannski hefur stundum verið lítið. Nánast er kirkjan í dag eins og ríún var byggð fyrir 100 árum, nema járn á þaki í staðinn fyrir spón. í þessari kirkju hafa prestar sagt mörg dýrðleg orð og hér hafa fallið saknaðartár á sorgarstund. Hér hef ég séð glitra tár gleði við skírnir og fermingar og geislandi bros við hjónavígslur. Við höfum sótt hingað styrk og huggun ég finn og skynja að bless- un hvílir yfir þessum stað. Við gleðjumst hér í kirkjunni hans séra Páls og þökkum. Við fögnum í litlu kirkjunni okkar. Þakka heimildir séra Gísla Brynjólfssyni og fleirum. Björn Bjarnason Starfsfólki og viðskiptavinum sendum við okkar bestu óskir um gleðileg jól gott og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Trésmiðja Fljótsdalshéraðs Fellabæ © 97-1700 -1329 -1450

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.