Austri


Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 17

Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 17
Egilsstöðum, jólin 1986. AUSTRI 17 Ekta stuðlaberg við brúnina á Litlanesfossi, sem er næstur neðan við Hengifoss, en það telja margir eitt hið fegursta hér á landi, þótt Jónas geti þess ekki í dagbók sinni. „Trapberggangurinn", við Hölkná, skammtfyrir innan Brekku, sem Jónasfann 5. okt. 1842 og taldi mjög mikilvægan til skilnings á jarðsögu svœðisins, (Gamall nátthagi hægra megin). sjálfur og sendi því skilríkan mann þangað, eftir að hafa uppfrætt hann, hvernig haga skyldi sýnatöku af þeim lögum, sem tilheyra surtar- brandsmynduninni þarna. Átti hann að merkja þau á staðnum í röð neðan frá og upp eftir. Reyndar færði hann mér sýnin og sendi ég þau til Háskólasafnsins. Af þeim má sjá, að ekki þarf lengur að efast um samsvörun surtarbrandsmynd- unarinnar á þessum stöðum og þar sem við Steenstrup könnuðum hana á Norður- og Vesturlandi. Sérstak- lega líkist þessi surtarbrandur þeim norðlenska, þar sem lögin með gróðurleifunum eru lítið áberandi, en millilög af sandi og leir (án plöntufara) eru yfirgnæfandi. Þriðjudaginn 4. október, var ég orðinn svo hress, að ég gat tekist á hendur rannsóknarferð í hið mikla klettagil, sem Hengifossárgil kallast, og ég hafði áður skoðað lauslega [sjá dagbókina 30. sept.], til að kanna surtarbrandsmyndun- ina þar. Við þessa rannsókn hef ég sann- færst enn frekar um það, að surtar- brandslögin eru samsvarandi um allt landið. Þótt gilið sé ærið djúpt, er heildarmyndunin samt ekki gegn- skorin þannig , að hægt sé með einstökum handsýnum sem þar voru tekin, að sannfæra þá sem eru fjarverandi um að hún liggi á mörkum eldri og yngri sprungu- hraunanna (Klöftlava). Neðstu lögin sem þarna koma í Ijós, eru nefninlega aðeins hin dæmigerðu sandtúfflög. sem allsstaðar fylgja surtarbrandinum á Norðurlandi og sumsstaðar á Vesturlandi. Trap- bergið (Trappen) liggur enn dýpra. Prufur voru teknar þarna og sendar. Miðvikudaginn 5. október, fór ég í rannsóknarferð meðfram efsta hluta Lagarfljóts, til að kanna hvort trappið kæmi einhversstaðar fram í dalbotninum, eða í hinum bröttu bökkum við Fljótið. Ég sé ekki betur, en ég hafi einnig að þessu sinni, verið svo heppinn að hitta á mörkin milli þessara jarð- laga. Það var á stað einum, skammt fyrir innan Brekkubæinn, þar sem lítil þverá er Hölkná (Höltná) kallast, hefur grafið sér djúpa gil- skoru, næstum niður í sömu hæð og yfirborð Fljótsins. Öðru megin við gilið er sprunguhraunskambur [berggangur], sem strax við fyrstu sýn virðist gersamlega frábrugðinn hinum yngri grágrýtiskömbum. Nánari könnun sýndi að þetta er virkilega trapberggangur, sem sýn- ist einhverntíma hafa skagað upp úr umhverfi sínu, áður en hann kaffærðist af yngri sprunguhraun- straumum. Nú hefur þessi árspræna grafið hann aftur fram í dagsljósið. Margar prufur voru teknar á þessum stað, en bergtegundin er vissulega svo dæmigerð, að varla mun nokkur jarðfræðingur, sem kunnugur er aðstæðum hérlendis og nýjustu skoðunum varðandi hin ýmsu tímabil, geta villst á þeim. (Fimmtudaginn 6. og föstudag- inn 7. október, hefur Jónas tekið sér hvíld frá rannsóknarferðum). Laugardaginn 8. október, fór ég enn eina rannsóknarferð í Hengifossárgilið, þar sem ég vildi nota tækifærið til að kynnast sem best aðstæðum við surtarbrands- myndunina þarna. Af þessari ferð er helst að segja: Surtarbrandsmyndunin er þarna sérlega viðamikil og hallar henni allmikið inn í fjallið. Lögin eru álíka mörg og mismunandi og ég hef mest séð annarsstaðar, en þau eru líka, sem fyrr segir, ákaflega fátæk af jurtamótum og lítið í þeim af surtarbrandi. Þrjú mismunandi flögubergslög (Skiferlag) eru sér- staklega athyglisverð á þessum stað. Þau eru öll ofan við surtar- brandinn og eru því meðal hinna yngstu í syrpunni. Það neðsta er mjög þétt og fíngert, dökkbrúnt leirlag, sem á pörtum hefur fengið svo sérkenni- lega líkingu við basalt [stuðlaberg] í smáum stíl, að slíkt mun vera fá- gætt og varla þekkjast annarsstað- ar. Langar raðir af súlum í hinum fjölbreytilegustu og glæstustu stell- ingum, skiptast hér á við hella og skúta, en þetta líkist mest litlu mál- verki, því að þessar fíngerðu „leir- basaltsúlur" eru sjaldan lengri en 1/2 tomma og 1-2 línur á þykkt. Næsta lag er þó ekki síður merki- legt af '<nu tagi. Það er örþunnt (1/2-1/n .ommu) lag af hraunbráði (Dyndlava), með afar hrjúfu yfir- borði, og koma ájöfnur þess fram sem alls konar furðulegt útflúr. Þarna er aftur hraunstraumur í dvergvaxinni mynd, eða í samsvar- andi mælikvarða og „stuðlabergs- lagið“ sem ég gat um. Enn hærra uppi er allþykkt lag af grænleitu og töluvert grófkornóttu sandtúffi, skammt fyrir neðan hina miklu hamraveggi sem yngri sprunguhraunin hafa myndað í lok tímabilsins. Lag þetta hefur sums- staðar ummyudast í sandblandaðan leirmassa, með bitru bragði sem minnir á brennisteinssýru. í þessum massa hafa svo myndast allstórir hnyðlingar, þéttir í sér og flysjast utan af þeim í hvolflaga lögum. Þeir gætu vel verið úr gipsi, en eru þó svo einkennilegir útlits, að freistandi væri að telja þá vera nýja steintegund. Sýni voru tekin af þessum lögum til nánari rann- sóknar og send Háskólsafninu. Sunnudaginn 9. október, frétti ég frá verslunarstaðnum Eskifirði, að kaupskipið sem ég ætlaði með til Kaupmannahafnar, myndi brátt verða ferðbúið, og yrði ég því að vera kominn þangað fyrir 14. október. Fór égþví samdægurs af stað út í Vallanes, þar sem ég gisti. Þá leið hafði ég farið áður, og sagt þá frá því helsta, sem þar er að sjá. Innan við botn þess langa stöðu- vatns, Lagarfljóts, sem er kallað fljót í nokkuð óvenjulegri merk- ingu, er víðlend slétta, sem árnar úr Norður- og Suðurdalnum liðast um. Flóðslétta þessi er eingöngu mynduð af framburði vatnanna ofan úr fjöllunum, sem í rás tím- anna hefur fyllt upp innsta hluta stöðuvatnsins. Svipaðar aðstæður eru við botn Eyjafjarðar og víðar á íslandi. Hér væri vissulega ágætt tækifæri til að kanna hvernig fremsta kanti slíkrar framburðarsléttu hallar, eftir því sem hann færist framar, en það myndi aftur auka skilning okkar á þeim halla sem oft er svo áberandi í fornum sand- og leir- lögum. Ekki gat ég þó framkvæmt þá athugun, þar sem mig vantaði bát til þess. Hér lýkur frásögn Jónasar af ferðum hans um Fljótsdalinn , en næsta dag fór hann frá Vallanesi til Eskifjarðar, um Eskifjarðarheiði, og þaðan til Kaupmannahafnar og átti þaðan ekki afturkvæmt. Hann lést vorið 1845. Þess skal getið að lokum, til skýringar hinum jarðfræðilegu út- listunum Jónasar, að á hans tímum höfðu menn nokkuð ólíkar hug- myndir um jarðsögulega uppbygg- ingu landsins og notuðu ýmis jarð- fræðiorð í annarri merkingu en nú tfðkast. Þannig var orðið trap eða trapberg (sem líklega er dregið af orðinu trappa, mætti því þýða sem stallaberg eða hjallaberg) oftast notað um elsta berggrunn landsins, eða það sem nú væri kallað eldra blágrýtið (basaltið). Orðið basalt virðist þá aðeins hafa verið notað um stuðlað berg og orðið dolerít um yngra blágrýtið eða það sem einnig var kallað grágrýti. Ljóst er að Jónas gerir mikinn mun á trapp- inu og hinu unga sprunguhrauni (Klöftlava), sem hann telur vera ríkjandi bergtegund á Upphéraði. Ak. nóv. 1986 H.Hall. Sandsteinslögin í ,surtarbrandsmynduninni“, hafa hér tekið á sig furðulegar myndir, sem helst minna á austurlensk hof eða pagóður. Par er m.a. að finna, lögin þrjú, sem Jónas undraðist mest, því honum fannst þau minna svo mikið á stuðlaberg og eldhraun í örsmáum stíl. Tryggingamiðstöðin hf. óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum ánœgjuleg viðskipti á liðnum árum. Útsýni frá Brekku inn í Fljótsdalinn. (Allar myndir eru teknar afH.Hg. Tilvitnanir í myndaskýringum eru úr Hulduljóðum Jónasar).

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.