Austri


Austri - 18.12.1986, Síða 26

Austri - 18.12.1986, Síða 26
26 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1986. Klukkan hálf sjö að morgni 9. júní nudda ég stírurnar úr augunum og átta mig á því að loksins er þessi dagur runninn upp, en stefnan er sett á Ítalíu, nánar til tekið sólarparadísina Rimini-Riccione við Adríahaf. Stúdentar frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1985-1986 höfðu ákveðið að fara í eina af þessum harðsoðnu hópferðum, þar sem það eina sem þarf að hafa áhyggjur af, er það hvort maður hafí nokkur þúsund lírur í vasanurn fyrir einum bjór enn. Ég var reyndar á hröðu undanhaldi undan mínuin eigin skoðunum, því að er ég best vissi hafði ég megnustu óbeit á þess konar ferðum. Kl.08.00 áttum við að mæta á Hótel Loftleiðir, en þaðan yrði farið með rútu út á KeflavíkurflugvöU þar sem farið yrði í loftið kl. 10.00. Engu munaði að tveir af okkur kæmust ekki lengra en á Hótel Loftleiðir, því þeir höfðu skellt sér inn á kaffiteríu staðarins og fengið sér morgunhressingu, hvorugur hafði tímamæli, þannig að það þurfti að senda hjálparsveit eftir þeim, því farþegar voru þegar mættir í rútuna og biðu. Ekið var sem leið liggur til Kefla- víkurflugvallar og loks komumst við inn í hið allra helgasta, Fríhöfn- ina, þar sem menn urðu helteknir af algeru kaupæði, en að því loknu var haldið á barinn til að æfa sig Hvenær skyldu íslensku lögregluþjón- arnir útbúa sigsvona? (Mynd: ÖPE). fyrir tilvonandi bjórþamb á henni Ítalíu. Voru sum okkar svo dugleg við þá iðju að það var ekki laust við að menn væru farnir að missa ör- lítið jarðsamband þegar loksins var kallað út í flugvélina, Boeing 737. Pegar svo flugvélin tókst á loft var að sjálfsögðu klappað fyrir flugstjóranum og fljótlega eftir það, kenndu flugfreyjurnar okkur hvernig við ættum að bera okkur að, ef í nauðir ræki, t.d. ef við hröpuðum, sem til allrar lukku gerðist ekki. Flugveður var mjög gott og sáum við vel yfir hluta Evr- ópu, úr þeirri hæð sem við vorum í, 33.000 fetum. Fyrsti ítalinn sem við sáum, gaf ekki góð fyrirheit því engu var lík- ara en hann hefði fengið upplýsing- ar þess efnis að við værum stórhættu- legir terroristar þangað komnir í þeim eina tilgangi að drepa hátt- setta menn eða að minnsta kosti sprengja nokkur stórmagasín í loft upp, því maður þessi var alvopnað- ur. Hann hafði víst engar slíkar upplýsingar fengið, því þetta reyndist bara vera ósköp venju- legur lögregluþjónn, en þarna úti í hinum stóra heimi þykir lögreglan vera að striplast ef ekki hangir byssa eða tvær við mjöðm. Loks komumst við í gegnum toll- skoðun sem fór fram í heljarinnar flugstöðvarbyggingu þar sem varla sást hræða á ferli. Paðan var haldið í rútur þær sem flytja áttu okkur í vistarverur þær sem vera áttu heimili'okkar næstu þrjár vik- urnar. Hótel það sem við fengum til umráða heitir Bonini og stendur í friðsælum hluta þess bæjarhluta sem flest hótelin voru í. Byrjuðum við á því að koma okkur fyrir og raða okkur í herbergi. Fjórir okkar heimtuðu að láta ekki fara alltof vel um sig og kröfðust þess að fá að vera fjórir í þriggja manna íbúð, í það mesta, en það fannst okkur alls ekki vera of þröngt. Fljótlega var farið að huga að einhverri skemmtan og var þeim málum bjargað er þeldökkur mað- ur benti okkur á skemmtistaðinn Club-Embassi, sem var handan götunnar, (þessi þeldökki maður reyndist síðan vera íslendingur sem dvalist hafði í þrjár vikur þarna og nýtt hverja stund til sól- baða). Embassi er alveg stórglæsilegur kapítuli út af fyrir sig. Skemmti- staður þessi skiptist í tvo hluta. í öðrum þeirra er inni-diskótek, þar sem háttstemmd diskómúsik glym- ur fram til 3 á nóttunni, en hinn helmingurinn er úti undir berum himni, þar sem ágætis hljómsveit leikur nokkur ódýr diskólög í bland Fararstjórar skála í veitingahúsinu Bastían. (Mynd: ÖPE). Flugferðin gekk stórslysalaust fyrir sig, að vísu vöknuðu sumir þegar einn ferðalangurinn steypti sér óvart yfir eina sætaröðina með fullt glas af vodka í kók. Lentum við um kl. 4.30 að ítölskum tíma á Rimini flugvelli, en hann mun aðal- lega vera notaður sem herflugvöll- ur og einnig var nokkuð um túrista- flug eins og það sem við vorum í. Engu var líkara en að maður gengi á vegg þegar dyr flugvélarinnar voru opnaðar því hitinn var um 35°C, sem er töluvert meira en 5 gráðurnar heima á íslandi þegar við lögðum af stað. við önnur betri fram að miðnætti. Þarna úti er mjög fallegt, tré vaxa upp úr gólfum og mikið laufþak er yfir dansgólfinu. Ekki má heldur gleyma geysistórum og enn betri bar sem var þarna og svo heljar- miklum vídeóskermi þar sem ýmist var hægt að líta leiki úr heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu, sem þá var í fullum gangi, eða eitthvað vafasamara efni. Staður þessi var vel sóttur af okkar hópi, enda höfðum við smá forréttindi, því ef við tókum með okkur Recommend- ed-miða sem lágu frammi í hótel- inu, þá fengum við tvo fría drykki Ævintýrafc Stúdentaferðalag M.E.-sti Allur hópurinn, semfór með til Flórens. Fararstjórarnir eru með íslenska fánann. íbaksýn sést í turn Uffizi-safnsins og í kúpil kirkju heila (Nafn Ijósm. óþekkt). af þeirri einni ástæðu að við vorum íslendingar. Fyrstu dagarnir fóru að miklu leyti í það að koma sér inn í hlut- ina, venja sig við matinn, sem ég átti mjög bágt með, t.d. var aldrei hægt að fá sósu á nokkurn mat. Rekstur veitingahúsa var með þeim undarlega hætti, að í morgunverð var nær alls staðar einungis hægt að kaupa „Panini caldi“ með einhvers konar kaffileðju eða þá einhverj- um gosdrykk og var undirritaður ekki ósjaldan búinn að bölva þessum morgunverði. Fljótlega eftir að við komum til Rimini var á dagskránni eins dags ferð til „menningar“-borgarinnar Flórens eða Firenze eins og Ital- arnir segja. Par stóð til að skoða merkar kirkjubyggingar eins og t.d. skírnarkapellu Jóhannesar skírara og einnig var litið inn í Uff- izi-safnið sem ku vera eitt af merk- ari listasöfnum heims. Vegna þess hvað ég og fleiri vorum lítið menn- ingarlega sinnuð, þá þreyttumst við fljótt á því að þramma um enda- lausa ganga og sali safnsins þar sem hvergi mátti tylla sér niður og vorum því hálffegin þegar við sluppum þaðan út. Þar fyrir utan tókst nokkrum kræfum götuteikn- urum að plata suma til að sitja fyrir hjá sér og þaðan fóru þeir einni skrípateikningu ríkari, en 30.000 lírum fátækari. Á heimleiðinni var komið við í stórskemmtilegu veitingahúsi til að borða kvöldmat, (að vísu höfð- um við fengið okkur morgunverð þar á leið til Flórens og fengum þá ekkert nema „Panini Caldi“). Par fengum við grillað kjöt og sem lyst- auka fengum við „Grappa“ sem er geysilega sterkur brenndur drykk- ur og var hvert tækifæri eftir þetta notað til að fá sér þennan drykk. (Það slys gerðist einu sinni að einn úr hópnum ætlaði að fá sér Gin í grape, en afgreiðslumanninum misheyrðist geinilega, því það kom skrýtinn svipur á hann, en afgreiddi drykkinn samt. Síðar kom í ljós að hann hafði afgreitt Gin í Grappa!) Fram til þessa höfðu sumir gert mjög lítið af því að snúa sér í átt til sólar og nú var komið að því að bæta þar úr. Nokkrum tugum þús- unda líra var komið fyrir í öruggum vösum til að hafa nóg fyrir leigu á legubekk og svo fyrir bjór til að kæla sig niður. Einn af herbergis- félögum mínum átti ekki mjög auð- velt að öðlast litarhátt innfæddra svo að fljótlega gáfumst við upp á þessari sólbaðsiðju og eftir að hafa sullað svolítið í hafinu á hjólabát- um, ákváðum við að gera eitthvað annað, enda fannst okkur að þessar þrjár vikur hlyta að eyðast fljótt ef við eyddum öllum okkar tíma í svona letilíf. Dag einn var okkur boðið upp á ferð á diskótek sem hét því tígu- lega nafni Paradíso, en það er eitt af virðulegri diskótekunum á þessu svæði. Var meiningin að við reynd- um að kynnast öðrum hópi stúdenta sem var þarna um leið og við, en þeir voru úr Kvennaskólanum í Reykjavík. Par kynntumst við her- bergisfélagarnir fjórum hressum stelpum og skemmtum við okkur mikið saman það sem eftir var ferðar. í þessari ferð fengum fjögur okkar far með einum af fararstjórunum vegna þess að rútan var full, öku- tæki það sem hann var á var eins ólöglegt og hægt var, ótryggt, ó- skoðað og þar að auki skráð í einu mesta glæpahéraði Ítalíu. Var ekki laust við að manni fyndist að löggan hlyti að banka á rúðu bílsins fljótlega, því ofan á allt annað var fararstjórinn blindþreifandi fullur, mjög þó skemmtilegur fararstjóri. Fljótlega eftir þessa ferð okkar á diskótekið var farin hópferð að kvöldi til á veitingastaðinn „Basti- an“ sem hefur þá sérstöðu að eig- endur hans hafa hina megnustu óbeit á öllum nýjungum í matar- gerðarlist og bjóða einungis upp á gamaldags ítalskan mat. Einn af fararstjórunum sagði okkur að ef okkur skyldi detta til hugar að biðja um hamborgara þá mættum við eiga von á því að verða hent út samstundis. Petta var geysi- skemmtilegt borðhald þar sem fólk var drifið utan úr sal til að skemmta F.h. Kc kirkjun F.U. Viggi, Steinar og Böggi mjög svo þjóðlegir á 17. júní fyrir framan inngang kastalans í Sai (Mynd: ÖPE).

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.