Austri


Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 32

Austri - 18.12.1986, Blaðsíða 32
32 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1986. „Þú hefur kannski séð hann í rósabeðinu þínu“ Kári litli kom of seint í skólann og gaf þá skýringu að það hefði verið svo mikill mótvindur að fyrir hvert skref sem hann hefði tekið áfram hefði hann fokið tvö aftur- ábak. „En hvernig komstu þá á leiðar- enda Kári minn“? spurði kennar- inn. „Nú ég sneri bara við og ætlaði heim“. „Já hann er aldeilis fljótur að skipta um átt“, sagði Sveina gamla þegar hún kom inn í bæ, — „þegar ég fór út hafði ég snarpan vind í fangið, en þegar ég kom inn aftur hafði ég hann í rassinn“. Hefurðu heyrt um Eskfirðinginn sem fór til hugsanalesara? Nei, hvað kom fyrir hann? Hann fékk endurgreitt. „Fyrst þú ert nú staðinn upp, viltu þá ekki fara í leiðinni og skræla kartöflurnar og leggja á borðið“? Einu sinni var prófessor sem ætl- aði að gifta sig. Á Ieiðinni varð hann fyrir óvæntum töfum ogsendi því tilvonandi konu sinni svohljóð- andi skeyti. „Hefur seinkað. — Giftu þig ekki fyrr en ég kem“. Hanna hafði nýlega komist að því að á íslandi væri herstöð og var að spyrja móður sína um þetta. „Já“, sagði móðirin, „það kom hér útlendur her í seinni heims- styrjöldinni“. „í seinni heimsstyrjöldinni“! sagði Hanna. „Vá, þeir hljóta sko að vera orðnir gamlir". Milli vinkvenna: „Sigga lá aldeilis í því þegar hún giftist Nonna nýríka". „Jæja hvernig þá“? „Hann er tuttugu árum yngri en hún hélt að hann væri“. Milli vina: „Ég steig á vigtina í gær og held- urðu að hún hafi ekki sýnt áttatíu og fimm kíló“! „Hvað ertu að segja — en varstu þá ekki í fötunum"? „Nei, nei, -— ég hélt á þeim. Tveir sumarbústaðagestir hittust snemma morguns. „Hvað ertu að gera“? „Mala kaffi“. „Hvers vegna blótarðu svona“? „Pað á að vera gróft“. „Hver hugsar um hvað tímanum líður ígóðra vina hópi“? „Klukkan er núna 22 mínútur og 37 sekúndur yfir 12“... „Síðast þegar ég fékk slæmar einkunnir kenndi ég arfgengum eiginleikum um —nú erégaðhugsa um aðprófa vítamínskort“. „Þetta hafa trúlega verið mistök með þakgarðinn“. „Sá sem hefur slátrað þessum kjúklingi, hefur verið hjartagóður maður“. „Hvers vegna“? „Hann hefur verið ein 5 eða 6 ár að taka ákvörðun". „Ertu hjónabarnsbarn“? „Já, að hluta“. Að hluta ' „Jú, sjáðu til pabbi var giftur en ekki mamma“. „Stóð þér ekki nokkurn veginn á sama um þennan gamla möl- étna páfagauk frænka“? í þorpi einu norðanlands var haldinn sunnudagaskóli og starfaði við hann maður sem hafði þá at- vinnu að stjórna skurðgröfu. Sjö ára gamall drengur sem sótti sunnu- dagaskólann, var eitt sinn spurður, þegar hann kom heim, hvað gerst hefði í skólanum: „Hann Tryggvi (en það hét skurðgröfustjórinn) sagði okkur frá voðalega góðum manni, sem hét Jesús, en svo dó hann“. „Hvernig dó hann?“, var spurt. „Ætli hann hafi ekki orðið undir skurðgröfu“, svaraði dreng- urinn. Hannes Hafstein er í hópi þeirra, sem allir íslendingar, sem komnir eru til vits og ára, hafa heyrt getið og flestir vita einhver deili á honum. Hannes orti m.a. þessa snjöllu stöku: Fegurð hrífur hugann meira ef hjúpuð er, svo andann gruni ennþá fleira en augað sér. Húsgagnasmiður nokkur brá sér eitt sinn til útlanda til að kynna sér nýjungar í iðngrein sinni. Þegar heim kom sa^ði hann svo frá at- burði sem fyrir hann kom f París: „Kvöld eitt fór ég á veitingahús. Við næsta borð sat ung og löguleg stúlka ein síns liðs og ég tók eftir því að hún var alltaf að gefa mér auga. Ég kann ekkert í frönsku en mér tókst með bendingum að gera henni skiljanlegt að hún skyldi koma að borðinu mínu og ég gaf henni öl. Hún dró þá blýant upp úr töskunni sinni og teiknaði kampa- vínsflösku á servíettuna. Ég gerði henni það til geðs að panta vínið og við gæddum okkur á hinum dýru veigum. En þegar komið var niður í miðja flöskuna teiknaði hún rúm á servíettuna. Ég hef aldrei getað skilið hvernig hún vissi að ég var húsgagnasmiður“. „En ég get þó sagt þér þær gleði- fréttir að kötturinn hennar Gunnu frænku komst sjalfur niður seinna um daginn“. Ýmsar sögur eru til um merkileg tilsvör nemenda á prófum og í kennslustundum. Meðan landspróf- ið gamla var við lýði áttu nemendur eitt sinn að skrifa ritgerð um Húna- vatnssýslu. Ein ritgerðin var eitt- hvað á þessa leið: „Húnavatnssýsla er stærsta sýsla á landinu. Þar er ekkert nema fjöll og firnindi. Þó er þar einn dalur og heitir hann Svarfaðardalur. Eftir honum rennur Svarfaðardalsá út í Svarfaðardalsvatn“. Á gagnfræðaprófi í sögu voru nemendur beðnir að gera grein fyr- ir Fabiusi Maximusi, sem fæstir þekkja haus eða sporð á. Einn nemandi var ekki lengi að afgreiða þetta og svaraði: „Hann fann upp stéttabaráttuna sem síðan er kölluð marxismi“. Því má svo bæta við að fyrir um það bil 40 árum voru lagðir spurningalistar fyrir skólaunglinga í Bandaríkjunum í einhvers konar könnun. Var m.a. spurt um hver Karl Marx hefði verið. Um 80% nemendanna svöruðu því til að hann væri einn Marx-bræðra. Hér kemur brot út ritgerð um Brynjólf biskup Sveinsson: „...Einu sinni var Brynjólfur á ferð í Þýskalandi. Gekk hann þá eitt sinn fram hjá smiðju. Heyrði hann þá sáran barnsgrát inni í smiðjunni. Gékk hann inn í smiðj- una og sá þá að stór og ljótur smiður var að flengja lítinn, góðan dreng. Brynjólfur tók þennan litla, þýska dreng að sér, kenndi honum íslensku og fór með hann til íslands. Þegar drengurinn stækk- aði varð hann sálmaskáldið Hall- grímur Pétursson..." í Samvinnuskólanum greiddu nemendur að sögn eitt sinn atkvæði um hver væri mesti maður mann- kynsins fyrr og síðar. Jónas frá Hriflu sigraði naumlega, hlaut einu atkvæði fleira en Jesús Kristur. í inntökuprófi í menntaskóla var eitt verkefnið að nefna nokkra merka íslendinga á 17. öld. Meðal svara: „Merkustu íslendingar á 17. öld voru þeir Napoleon mikli og Árni Pálsson, prófessor“.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.