Austri - 18.12.1986, Qupperneq 33
Egilsstöðum, jólin 1986.
AUSTRI
33
*?«■»-» 'nu,-'
„Eigum við ekki aðhættaað leita að kúlunni og reyna að finna völlinn “ ?
Fjögurra ára gamall snáði var að
leika sér inni í stofu þar sem faðir
hans, sem var vörubílsstjóri, lá á
bakinu og hraut. Skyndilega sneri
hann sér á hliðina og hætti að
hrjóta. Drengurinn hljóp þá inn til
móður sinnar og sagði: „Mamma,
mamma, komdu fljótt og athugaðu
hvað er með hann pabba. Hann
hefur drepið á sér“.
nn
Pað var ekki alltaf mikið unnið í
setuliðsvinnunni á Keflavíkurvelli.
íslendingur og Færeyíhgur höfðu
legið heilan dag og ræðst við. Talið
barst meðal annars að fjölskyldum
þeirra og lét íslendingurinn þess
getið að hann ætti 12 börn. „Þú
hefur þá ekki alltaf legið kyrr“,
sagði Færeyingurinn.
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Fjallagarpur mikill og öræfafari
sofnaöi eitt sinn við borðhald á veit-
ingahúsi enda hafði hann drukkið
stíft með steikinni. Undir lok borð-
haldsins var borinn fram ís á gríð-
arstóru fati. Þá rumskaði ferðagarp-
urinn lítið eitt, leit yfir ísflákann og
umlaði kvíðafullur: „Það skyldi þó
ekki eiga eftir að liggja fyrir mér að
verða úti“.
Flestir kannast við orðatiltækið
„að hefna þess í héraði sem hallað-
ist á Alþingi". Páll lögmaður Vída-
lín (1667-1727) orti þessa vísu um
sýslumann nokkurn:
Kúgaði fé af kotungi
svo kveini undan þér almúgi.
Þú hefnir þess í héraði
sem hallaðist á Alþingi.
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
„Manstu þá daga þegar við
vorum að springa úr monti yfir
! orðunum hennar“?
Magnús, sem er um fertugt, hitti
afa sinn á götu. Gamli maðurinn
veitti því athygli að sonarsonur
hans tók upp glas og úr því pillu
sem hann gleypti. „Hvað er nú
þetta?“, spurði afinn. „Pillur, sem
eru mjög vinsælar og kosta 5 kall
stykkið. Þær eru ætlaðar til að
hressa upp á menn á mínum aldri
svona undir vissum kringumstæð-
um“. „Þá held ég að mér veiti ekki
af einni“, sagði sá gamli, tók við
pillu af Magnúsi og gleypti hana.
Nokkrum dögum seinna hittust
þeir aftur og rétti afinn Magnúsi
umsvifalaust 3 fimmkalla sem
greiðslu fyrir pilluna. „En hún
kostaði bara fimmkall“, sagði
Magnús. „Veit ég það“, sagði
afinn, „hinir tveir eru frá ömmu
þinni“.
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Úr mannlýsingu: „Þegar maður
horfir á hnakkann, sér maður bæði
munnvikm samtímis".
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Einar H. Kvaran rithöfundur
(1859-1938) dvaldist um skeið við
nám í Kaupmannahöfn. Þar gaf
hann út tímaritið Verðandi ásamt
Hannesi Hafstein, Gesti Pálssyni
og Bertel Þorleifssyni. Eitt sinn
ljóðaði Einar svo á Bertel í gamni:
Ekkert getur gert vel
gengur þó með sperrt stél
Bertel.
Og Bertel, sem er minnst þekkt-
ur þeirra fjögurra, varð auðvitað
að svara fyrir sig:
Kvenmannlega kveinar
kveifarlega veinar
Einar.
„Heyrðu, elskan, saumaðirðu
hnappinn aftur á jakkann minn“?
„Nei, égfann hann hvergi, svo ég
saumaði bara saman hnappagat-
ið“.
Það voru gestir heima hjá Sigga
litla og fólk sat undir borðum. Siggi
segir við mömmu sína:
„Verður mér illt af desertinum
eða er til nóg af honum,,?
„Konan mín hefur hræðilegt
minni“.
„Hvernig má það vera“?
„Hún gleymir aldrei neinu“.
í kaupfélaginu
f ærðu allt til jólanna
Vöruúrval í öllum deildum:
Leikföng í miklu úrvali:
Fisher Price, Matchbox,
Barbie, Ken, Lego,
Masters of the universe
o.fl. o.fl.
Allt fyrir þá sem þurfa að
mála og lagfæra fyrir jólin.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
Fáskrúðsfirði
Bókaverslun
Sigbjörns Brynjólfssonar
Hlöðum v/Lagarfljótsbrú
ó5Har við5kipta[/inum 5ínum
gleðilegra jóla
með þöHH fyrir viðsHiptin
á árinu se/r? er að iíða.