Austri - 18.12.1986, Side 34
34
AUSTRI
Egilsstöðum, jólin 1986.
Jólahald í Færeyjum
spjallað við Susan Ellendesen
Jólaball I Roynhellinni í Hvalba. „Lúcíurnar" ganga hring í salnum, en það er tekið
upp eftir sænskum sið.
Jólunum fylgja ýmsar hefðir og
siðir, það er gaman að kynna sér
þessar venjur og þá má oft sjá að
sinn er siður í landi hverju. Við
höfum í jólablöðum Austra undan-
farin ár rætt við útlendinga búsetta
hér og þeir hafa sagt okkur frá
jólum í sínu hcimalandi. Við
höfum hins vegar aldrei forvitnast
um það hvernig næstu nágrannar
okkar, Færeyingar, halda jól. Til
þess að fræðast um það sló ég á
þráðinn til Susan Ellendesen á
Seyðisfirði. Hún er fædd og upp-
alin á Hvalba á Suðurey, en fluttist
12 ára gömul til íslands með móður
sinni. Hún bjó aftur í Færeyjum
1977-1979, en þá fluttist hún til
Seyðisfjarðar og hefur búið þar
síðan. Hún er gift Birni Á. Ólafs-
syni og eiga þau 3 börn.
— Hvernig undirbúa Færey-
ingar jólin?
Undirbúningurinn er mjög svip-
aður og hér á landi, það er bakað
og gert hreint, en það er byrjað fyrr
að skreyta inni á heimilunum. Það
er yfirleitt búið í byrjun desember
og þá er algengast allskonar heima-
tilbúið pappírsskraut. Svona klippi-
skraut er líka notað á jólatréð og
þá kramarhús með sælgæti og mál-
aðar hnetur. Annars er notað
svipað skraut og hér. í búðum er
minna um skraut en hér og það er
ekkert langt síðan jólaskraut og
ljós fóru að sjást í búðargluggum í
Færeyjum. Kaupæðiö er líka miklu
minna þar og jólagjafirnar ekki
eins dýrar — það eru frekar gefnir
ýmis konar nýtilegir hlutir.
— Er jólasveinn í Færeyjum?
Já það er svona jólasveinn svip-
aður og í Danmörku. Hann fer af
stað nokkru fyrir jól og gefur
góðum börnum eitthvað og setur
það þá undir koddann hjá þeim.
Það eru engir prakkarajólasveinar
sem heita sérstökum nöfnum eins
og hér á landi.
— Segðu mér frá aðfangadegi
og jóladegi í Færeyjum.
Hér áður fyrr var víða venja að
borða á aðfangadag „ræstan fisk“
sem er siginn fiskur og „speril“, en
það er langinn úr kindum, fylltur
með mör, saltaður og soðinn. Þetta
tíðkast enn sumstaðar á norður-
eyjunum. Núna borða flestir
kalkún eða gæs svipað og gert er í
Danmörku. Hátíðin byrjar kl. 6
með mat og pakkastandi, en það er
aldrei messað á aðfangadag og
aldrei boðin gleðileg jól fyrr en á
jóladag. Eftir matinn fara menn á
flakk milli húsa. Fjölskyldur og
vinir koma saman og dansa í
kringum jólatréð. Að sumu leyti
líkist aðfangadagur Þorláksmessu
hér, því margir fara hreinlega á
fyllerí þetta kvöld.
Jóladagur er helgidagur. Þá fara
nær allir í kirkju og þennan dag er
siður að borða skerpukjöt.
— Er ekki dansaður færeyskur
dans einhverntíma á jólunum?
Á annan í jólum er alltaf dans-
aður færeyskur dans. Áður en fólk
fer að heiman er dekkað borð
þannig að ef einhver kemur í heim-
sókn á meðan húsráðendur eru á
dansinum er ætlast til að hann
bjargi sér sjálfur og fái sér að
borða. Það er mikið um að fólk
gangi á milli húsa og heimsæki vini
og vandamenn alla jóladagana og
þá verða menn alltaf að þiggja veit-
ingar, því annars er sagt að þeir
beri út jólin.
Færeyskur dans er líka dansaður
á þrettándanum og þá er alltaf
sungið sérstakt lag um jóladagana
— það er kallað að telja jólin.
— Hvernig eru áramót í Fær-
eyjum?
Það eru brennur og flugeldar
svona eins og hér. Áður voru flestir
með litla brennu heima í garði hjá
sér, en nú er farið að safna í stærri
brennur. í seinni tíð hefur verið
tekið uppá því að setja bensín og
tvist í dósir meðfram götunum og
kveikja í. Þetta er aðeins gert í
góðu veðri, en það er mjög fallegt
að sjá svona blys meðfram götun-
um. Annars líður gamlárskvöldið
svipað og hér, menn gera sér daga-
mun og borða góðan mat, fá sér
neðan í því og fagna nýju ári.
— Heldur þú í einhverja fær-
eyska siði þegar þú heldur jól núna
á íslandi?
Ég hafði alltaf skerpukjöt, þar til
fyrir nokkrum árum. Það er bann-
að að flytja það hingað inn í landið
og síðustu árin hefur verið tekið
strangar á því og það er tekið úr
pökkum sem ég fæ frá Færeyjum.
Það er of dýrt til þess að láta henda
því, svo það er hætt að reyna að
senda mér skerpukjötið. Mér þykir
leiðinlegt að geta ekki haft skerpu-
kjöt á jólunum því þetta er besti
matur í heimi. Ég hef alltaf möndlu-
graut, sem er raunar siður hér eins
og í Færeyjum. Annars held ég að
jólin hjá mér séu bara eins og
gengur og gerist hér á landi.
5endum Austfirðingum
bestu ósKir um gleðilegjól
og farsælt Komandi ár
Samábyrgð Islands
á fiskiskipum
Bílaleigan Freyfaxi
Egilsstöðum
óskar viðskiptavinum sínum
og öðrum Austfirðingum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
með þökk fyrir liðin ár.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum ánægjuleg
viðskipti
á árinu sem er að líða.
Fiskimj ölsver ksmiðj a
Hornafjarðar hf.
Jólasveinar að úthluta pökkum á aðfangadagskvötd.