Austri - 18.12.1986, Page 40
40
AUSTRI
Egilsstöðum, jólin 1986.
EIÐAKIRKJU
FÆRÐAR
GJAFIR
Á þessu ári eru liðin eitt hundrað
ár síðan Eiðakirkja var byggð. Af
því tilefni hafa kirkjunni borist
góðar gjafir að undanförnu.
Lionsklúbburinn Múli hefur látið
setja upp og gefið kirkjunni ljós-
kastara til að flóðlýsa hana. Ljósin
kvikna sjálfkrafa þegar skyggir og
slokkna í birtingu. Lýsingin setur
óneitanlega svip á staðinn og
kirkjan nýtur sín einstaklega vel í
daufgulu ljósinu, enda fallegt hús
þótt látlaust sé.
Systkinin frá Ormsstöðum hafa
gefið spennubreyti og tilheyrandi
búnað til að tendra ljós á leiðum í
kirkjugarðinum yfir jólahátíðina.
Þetta er gefið til minningar um
föður þeirra, Þórhali Helgason,
sem hefði orðið 100 ára á þessu ári.
Kvenfélag Eiðaþinghár hefur
látið prenta minningarkort og skal
ágóði af sölu þeirra renna til kirkj-
unnar. Kortin verða fyrst um sinn
a.m.k. til sölu hjá Sigríði Zophon-
íasdóttur á Eiðum og í versluninni
Krummafæti á Egilsstöðum.
Að undanförnu hefur verið farið
á heimilin í Eiðasókn og leitað eftir
fjárstuðningi til lagfæringa þeirra
sem standa yfir á kirkjunni og hefur
þannig safnast nokkur upphæð.
Sóknarnefnd þakkar öllu ofan-
greindum gefendum hlýhug og
stuðning.
Kirkjan hefur tekið talsverðum
stakkaskiptum að innan upp á síð-
kastið. Klæðning í hvelfingu hefur
verið endurnýjuð, veggir lagfærðir
og kirkjan máluð í upprunalegum
lit. Verið er að smíða nýja kirkju-
bekki og eru þeir smíðaðir hjá
Birkitré s.f. á Egilsstöðum. Þess er
vænst að þeir verði komnir upp
fyrir jól.
En ýmsu er ólokið af því sem
gera þarf til að kirkjan komist í það
horf sem fyrirhugað er. Má þar
nefna bólstrun kirkjubekkjanna,
en einnig á að eikarmála þá ásamt
predikunarstól, gluggum og altari.
Pá þarfnast gólfið talsverðra við-
gerða.
Að lokum skal þess getið að
sóknarnefnd Eiðakirkju hefur
gefið út bækling um sögu kirkjunn-
ar. Nefnist hann „Eiðakirkja eitt
hundrað ára—1886-1986“. Sóknar-
presturinn sr. Einar Þ. Þorsteins-
son hefur tekið efni hans saman og
er hann til sölu hjá sr. Einari sími
3826, Valgerði sími 3820, Þórarni
sími 3833 og Halldóri sími 3831.
V.K.G.
Eiðakirkja.
5endum starfsmönnum oKKar
og viðsKiptavinum
bestu ósKir um
gleðilegjól
gott og farsælt
Komandi ár
ÞöKKum 5am5tarfið
á liðnu ári.
Bvúnás hf.
700 EGILSSTÖÐUM SÍMI 97-1480,97-1481
Bíla- og búvélaverkstæðið
Ljósalandi Fáskrúðsfirði
óskar starfsmönnum sínum
og viðskiptamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
með þökk fyrir árið sem er að líða
Óskum öllum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum ánægjuleg viðskipti
á árinu sem er að líða.
Samvinnubanki íslands hf.
Útibúið Egilsstöðum
Símar 97-1233 og 1423
Borgey hf.
Höfn Hornafirði
óskar Hornfirðingum
i
og öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs.