Austri


Austri - 18.12.1986, Síða 42

Austri - 18.12.1986, Síða 42
42 AUSTRI Egilsstööum, jólin 1986. — Texti: Jón Kristjánsson. Ljósmyndir: Margrét Einarsdóttir. — JÓN KRISTJÁNSSON: Á slóðum soldána Tyrkland er ekki algengur áfanga- staður þegar íslendingar feröast erlendis, og landið er heldur fjar- lægt í hugum manna, miðað við það að hluti þess er í okkar heims- álfu. Eigi að síður er það svo, að á tímum mikilla ferðalaga þjóðar- innar hafa margir komið til Istan- bul, hinnar fornfrægu borgar sem eitt sinn bar nafnið Konstantínópel eða Mikligarður. fslendingar sem sólbaka sig á ströndum Svartahafs- ins í Búlgaríu og Rúmeníu, fara gjarnan í heimsóknir þangað. Nafn Tyrkja tengist enn í hugum íslendinga einni mestu ógn sem saga okkar greinir, strandhöggi sjóræningja frá Alsír á 15. öld. Þessir ræningjar voru þegnar veldis Tyrkjasoldáns og höfuðborg þess veldis var í Istanbul. Tyrkjaránið, eru þessir atburðir kallaðir þótt ræningjarnir sjálfir væru frá fjar- lægu landi. Ég dvaldist nokkra daga í Istan- bul í nóvember vegna fundarhalda. Þegar barst í tal fyrir ferðina þangað hvert ferðinni væri heitið, spurðu menn gjarnan hvort ég ætl- aði að heimsækja hundtyrkjann. Þctta skammaryrði virðist lifa, þótt vafalaust liggi minna að baki en áður. Mér þykir rétt að biðja jólablað Austra að geyma nokkrar línur um þessa ferð, þótt ekki sé um ferða- sögu að ræða eða nokkra úttekt á landi og þjóð, enda eru ekki efni til slíks, eftir nokkurra daga heim- sókn. Sögurík borg. Ekki þarf að staldra lengi við í Istanbul til þess að verða þess áskynja að við erum stödd á sögu- slóðum. Sögulegar minjar eru við hvert fótmál, enda er borgin forn- frægur staður. Hún var höfuðborg hins mikla Osmannaríkis, en blóma- skeið þess stóð í fjórar aldir, frá 1300 og fram undir 1700. Ríkið var kennt við hershöfðingjann Osman al Ghazi sem stofnaði sjálfstætt ríki í Litlu-Asíu um 1300. Árið 1473 náði Múhamed II Tyrkjasoldán Konstantínópel á sitt vald og var hún upp frá því höfuðborg ríkisins þar til eftir fyrri heimsstyrjöldina. Þetta veldi náði hámarki á tímum Suleimans II, hins dýrðlega sem ríkti á 16. öld, eða frá árinu 1520- 1566, en eftir það tók að halla undan fæti. Þegar veldi Osmanna stóð sem hæst réðu þeir Balkan- skaga, Norður-Afríku, og Egypta- landi auk Litlu-Asíu. Á leið af flugvellinum við Istan- bul blasa við rústir af gömlum borgarmúrum. Hallir eru miklar og veglegar þegar nær dregur mið- borginni, og moskurnar bera við himinn. Þær minna á að við erum í landi þar sem Múslimar ráða ríkjum. 99% Tyrkja játa trú á Allah og Múhamed spámann. Yfirbragð fólks ber þetta þó ekki með sér. Konur með blæju er afar sjaldgæf sjón, en þó mun staða konunnar ekki vera sambærileg og hér. Karlmenn eru í miklum meiri- hluta á götum borgarinnar, kon- urnar sjást minna úti við, halda sig inni á heimilunum meðan karlarnir spóka sig, tefla og drekka tyrk- Bláa moskan. neskt kaffi á kaffihúsum. Við komum inn á eitt slíkt í hliðargötu í borginni og reyndum þetta lút- sterka ketilkaffi, sem var hreint ekki svo slæmt á bragðið. Hér fá menn að taka myndir af fólki óáreittir, og fleira mætti nefna, sem bendir til vestrænna sið- venja. Hins vegar komumst við fljótt að því að ástæðurnar fyrir þessu, eru framar öðru þær að snemma á 20. öld áttu sér stað miklar þjóðlífsbreytingar í Tyrk- landi og áttu þær rætur að rekja til þess að þá komst til valda herfor- ingi sem bar nafnið Mustafa Kemal, og tók sér síðan nafnið Ataturk. Hann reyndist mikill leið- togi, og stofnaði lýðveldi í Tyrk- landi árið 1923. Hann studdist við þjóðernishreyfingar sem vildu ekki játast undir skilmála Bandamanna eftir fyrri heimsstyrjöldina, og þessi sjálfstæðisneisti dugði til þess að sameina Litlu-Asíu og stofna nýja höfuðborg inni í landi sem ber nafnið Ankara. Þar eru stjórnar- skrifstofurnar nú, og þar býr um 1/2 milljón manna. Ataturk vann skipulega að því að minnka þau menningaráhrif sem trúarbrögðin höfðu á þjóðina og taka upp evrópska hætti. Hann lét taka upp latneskt stafróf og gregorí- anskt tímatal, konur fengu kosn- ingarétt og evrópskur klæðaburður var tekinn upp. Hann lagði bann við fjölkvæni, og verða Tyrkir nú að láta sér nægja að vera kvæntir einni konu, en kvennabúrin, eða „Haremin" standa auð og tóm. í kjölfar þessara breytinga fylgdi evrópskur hugsunarháttur hjá hluta þjóðarinnar, en aðrir þegnar, einkum í dreifbýlinu voru lítt hrifnir af þessum breytingum. Ataturk bjó í Ankara, en hann lést í Istanbul í nóvember 1938 í Dolmabache höll, sem stendur við Bosporussundið. Hann dvaldist í þessari miklu höll, gestkomandi í Istanbul, en í henni hafði hann neitað að búa. Nú er þessi höll til sýnis, en þar standa allar klukkur á þeim tímapunkti sem þessi leiðtogi lést. Þetta er tákn um þann hug sem þjóðin bar til hans. Fjöldi mann- virkja eru við hann kennd, þar á meðal alþjóðaflugvöllurinn við Ist- anbul. í móttökuherbergi sem við vorum leidd inn í við komuna þangað er stór mynd af honum og ber yfirbragðið vott um mikla festu sem áreiðanlega hefur ekki veitt af í þeim þjóðfélagsátökum sem voru í landinu. Tyrkland nútímans. Það rennur upp fyrir okkur við komuna til Tyrklands að landið er geysistórt og fjölmennt. Þjóðin telur 51 milljón manna, þetta er stórþjóð að mannfjölda, álíka fjöl- menn og Bretar svo eitthvað sé haft til viðmiðunar. í Istanbul einni búa um 6 milljónir manna, og borgin telst til stórborga á heimsmæli- kvarða. Landið er tæplega átta sinnum stærra en ísland, 780 þús- und ferkílómetrar að flatarmáli með 8.000 kílómetra strandlengju að þremur höfum, Svartahafi, Marmarahafi og Miðjarðarhafi, en Dardanella og Bosporussund tengja þessi höf saman. Leiðin frá Ataturk flugvelli liggur meðfram Bosporussundi til miðborgarinnar. Fyrstu áhrifin eru oft minnisstæð, og það sem mætir auganu, þegar komið er til fram- andi lands. Það fyrsta sem við ökum fram hjá er herstöð, gráir kampar og varðturnar mannaðir vopnuðum vörðum. Við erum minntir á það að hér eru það her- foringjar sem ráða, þótt þjóðþing starfi í landinu og kosningar séu haldnar. Næst verður manni starsýnt á sútunarverksmiðju við veginn. Þessi bygging er til lítillar prýði, hrófatildur, hálfopið þar sem skinnin hanga til þerris að því er virðist. Verksmiðjan minnir okkur á mikilvægan atvinnuveg í Tyrk- landi, en það er skinnaverkunin. Leður er mikilvæg framleiðslu- og verslunarvara í landinu, og eru leð- urvörur seldar í búðum fyrir svona þriðjung af því sem slíkar vörur kosta hérlendis. Seinna fréttum við að til stæði að rífa þessa verk- smiðju, og þá væntanlega að byggja nýja. Þá ber fyrir augu fiskmarkað á ströndinni, þar sem fiskimenn hafa lagt afla sinn á börur og bjóða til sölu. Tyrkir eru fiskveiðiþjóð og draga afla úr Svartahafi og Marm- arahafi. Við borðuðum fisk í ferð- inni og hann virtist ferskur og ágætur matur, einhvers konar tún- fiskur. Fjöldi fisktegunda er á boð- stólum og kann ég ekki að nefna þær allar. Markaðurinn er hins vegar frumstæður, er undir beru lofti á malarkambi í vegkantinum. Þegar nálgast miðborgina þyng- ist umferðin og nær hámarki við brýrnar yfir Gyllta horn. Gyllta horn er sund sem liggur út úr Bosp- orussundi Evrópumegin og skilur að gamla og nýja Evrópuhlutann af Istanbul. Handan Bosporussunds er önnur heimsálfa, Asía, en megin- hluti landsins er í Litlu-Asíu. Ein brú liggur á milli Evrópu og Asíu, yfir Bosporussund. Gamli borgarhlutinn í Istanbul er stórmerkilegur, og þar er mikill fjöldi merkra bygginga. Hæst ber moskurnar, sem tróna á öllum hæðum. Moskurnar eru bænahús múhameðstrúarmanna og eru al- veg einstaklega fallegar og sér- kennilegar byggingar með miklum hvolfþökum og fimm turnum. Ein þeirra, Blá moskan, sem er þeirra fegurst er með sex turnum. Mér varð starsýnt á moskurnar þann tíma sem ég var þarna, ekki síst á kvöldin, þegar þær gnæfa flóðlýstar yfir borgina. Það er kannski tím- anna tákn að í nýja hlutanum voru háhýsi alþjóðlegra hótelhringa á bestu útsýnisstöðum, í gamla hlut- anum voru moskur, í nýja hlut- anum Hilton og Sheraton hótel og önnur ámóta. ★ ★ ★ Maður fær fljótlega á tilfinning- una að þjóðin búi við nokkuð þröngan kost, og lífsbaráttan sé hörð og óvægin í landinu. Atvinnu- leysi er gífurlega mikið, og mill- jónir farandverkamanna frá Tyrk- landi leita sér að atvinnu í Vestur- Evrópu, og í Vestur-Þýskalandi einu er um ein og hálf milljón Tyrkja, sem vinna þar lægst laun- uðustustörfin. Okkurtilnokkurrar undrunar fundum við inn á það að heima fyrir er þetta fólk álitið vera að gera það gott. Við fréttum það einnig að þjóðartekjur Tyrkja eru um 40 þúsund krónur íslenskar á mann, svo að einhverjir hljóta að búa við skarðan hlut, því varla er þeim jafnt skipt á milli allra frekar en annars staðar. Þó er okkur sagt að efnahagur- inn sé á uppleið, og við sjáum merki um framkvæmdir á ýmsum sviðum. íbúðarblokkir rísa í út- hverfum borgarinnar, hafist er handa um lagfæringar miðborgar- Austfirðingar og aðrir! Qleðilegjól gott og farsælt komandi ár, með þökk fyrir liðnu árin. Mjólkurfélag Reykjavíkur sími 1 11 25 5endum viðskiptavinum okkar nær og fjær, bestu jóla- og nýársóskir. Lifið heil. Bifreiðaþjónusta Borgþórs Gunnarssonar S 1436 Egilsstöðum.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.