Þjóðhátíðarblaðið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Qupperneq 16

Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Qupperneq 16
Þ JÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐIÐ 1936 Dvöldum við þar í tvo tíma og gengum um skóg- inn með því að veður var hið ákjósanlegasta. Til bæjarins komum við aftur um kl. 6 um kvöldið. Frá Akureyri var lagt af stað heimleiðis kl. 6 að morgni þess 17. júní. Var fyrst staðnæmst á Blönduósi. Komum við þangað laust fyrir há- degi. Var haldið af stað aftur þaðan um kl. 1 og hvergi staðnæmst fyrr en komið var að Hreðavatni í Borgarfirði. Til Reykjavíkur komum við kl. 10 um kvöld- ið eftir 16 tíma hraðferð. Voru þá víst flestir okkar búnir að fá nóg af bílakstri í bili, enda mun það vera sjaldgæft, að ekið sé á einum degi milli Akureyrar og Reykjavíkur, þegar farin er leiðin fyrir Hvalfjörð. Þegar suður kom fór flokkurinn að tvístrast. Héldu sumir heim til Eyja daginn eftir. Aðrir voru um kyrrt í bænum um stund. Þó að margir haldi að ferðalög eins og þetta, séu til lítils gagns, þori ég alveg að fullyrða, að svo er ekki. Auk þess að vekja áhuga fyrir íþróttinni, samrýma þau mennina sjálfa betur en nokkuð annað og kenna þeim að þekkja hvern annan betur en áður, og ef allir eru jafn samhuga og allt gengur eins vel og í þessari ferð, hlýtur maður að eignast endurminningar, sem aldrei gleymast. Það væri óskandi að K. V. ætti ófarnar marg- ar ferðir jafn ánægjulegar og þessi Akureyrar- för var. Guðl. Gíslason. Sigurður Sigurðsson er orðinn einn með fræknustu íþróttamönnum þessa lands, og það á mjög skömmum tíma, einu ári. Síðastliðið ár setti hann nýtt met í þrístökki, 13,18. (Daníel Loftsson átti metið áður, 13,09). Á þessu ári hefir hann bætt met sitt um 82 cm. og bæti hann það annað eins næsta ár, verður hann með beztu þrístökkvur- um Norðurlanda. Fræknastur varð þó Sigurður af meti því, er hann setti í hástökki (1,80) á allsherjarmótinu síðasta og hlaut konungsbik- ar fyrir afrek þetta. Er þetta bezta íþrótta- afrek, sem gert hefir verið hér á landi. (Afrek Jóns Kaldal í 5000 metra hlaupi, sem er bezta afrek, er gert í Kaupmannahöfn). Afrek Sig- urðar í langstökki er 6,44 og í langstökki án atrennu 3,03 og er það íslenzkt met og betra en Danir hafa í því stökki (3,02). Sigurður er einn af þeim fjórum Islendingum, sem taka þátt í frjálsum íþróttum á Olympiuleikunum í Berlín þessa dagana og er hiklaust sá maður- inn, er vér væntum beztan árangurinn af. Enda hefir nú frétzt, að hann yrði sá eini af þeim fjórum, sem verður þar leikhæfur. J. 16

x

Þjóðhátíðarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðhátíðarblaðið
https://timarit.is/publication/1476

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.