Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Side 22

Þjóðhátíðarblaðið - 09.08.1936, Side 22
Þ JÖÐHÁTlÐ ARBLAÐIÐ 1936 Gagnfrœðaskólinn í Vestmannaeyjum. Eftir Árna Guðmundsson kennara. Mér er minnisstætt, þegar ég skrifaði fyrstu blaðagreinina mína fyrir ca. sex árum. Sú grein var um Unglingaskóla Vestmannaeyja, sem þá var í þann veginn að breyta um nafn og starfs- háttu — og hefir síðan verið Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum. Það er nú almennt viðurkennt, að slíkar stofnanir sem gagnfræða- og unglingaskólar eru flestar öðru nauðsynlegri í hverjum bæ. Þar fær æskulýður bæjanna ýmis viðfangsefni að glíma við, sem líkleg eru til að bjarga unglingunum heilum á sál og líkama yfir hættulegustu árin í lífi þeirra. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að ekkert er andlegri og líkamlegri heilsu æsku- lýðsins hættulegra en einmitt aðgerðarleysi. Það er því öllu öðru nauðsynlegra, að æskan fái nóg verkefni til að fást við, því að aðgerðarleysi æskuáranna elur upp duglausa, óreglusama og andlega og líkamlega óhrausta kynslóð. Skólar fyrir unglinga koma í veg fyrir slíkt, og þar læra unglingamir og margt gott og gagnlegt, sem getur komið þeim að haldi síðar í lífinu. — Með skólamenntun er venjulega átt við bóklegt nám, en því má ekki gleyma, að slíkt nám er ekki einhlítt, það má ekki gleyma líkamsupp- eldinu, því að það er ekki síður nauðsynlegt en hitt. Þess vegna er íþróttahreyfingin og skóla- starfsemin hliðstæður og forgöngumenn hvors- tveggja verða að taka höndum saman og vinna sameiginlega að því, að skapa hrausta og menntaða þjóð. Skólastjóri og kennari Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum hafa báðir fullan skilning á nauðsyn líkamsmenntunar jafnhliða hinu bók- lega námi. Á síðastliðnum vetri gerðu þeir margt og mikið til þess að örva íþróttaáhuga piltanna, m. a. með því að halda íþróttamót í skólanum og veita verðlaun þeim piltum, sem mestan áhuga sýndu. Þá má geta þess, að skólinn er nú að víkka starfsvið sitt með námskeiði í hagnýtum fræð- um og vinnubrögðum fyrir atvinnulausa ung- linga (sbr. augl. á öðrum stað í blaðinu). Ég vil því alvarlega brýna fyrir foreldrum hér í bæ að nota Gagnfræðaskólann vel með því að koma bömum sínum þar til náms. Allir, sem börn eiga eða hafa einhver afskifti af uppeldi þeirra, verða að vita það og breyta samkvæmt því, að menntun æskunnar til sálar og líkama er undirstaða heilbrigðrar, menntaðr- ar og siðferðilega sjálfstæðrar þjóðar. Á. G. Á víð og dreif. Flokki úr Knattspyrnufélaginu Fram í Rvík hefir verið boðið hingað á þjóðhátíðina til að keppa hér við K. V. Einnig kemur hingað flokk- ur Reykvískra íþróttamanna til að keppa í bæjakeppni Reykjavíkur og Vestmannaeyja, sem fer nú fram í fyrsta sinn. Sjá grein um bæjakeppni á öðrum stað í blaðinu. Á Olympiuleikina í Berlín fóru héðan fjórir menn, þeir Friðrik Jesson, sundkennari, Þor- steinn Einarsson, form. I R. V., Jón Ölafsson, verzlunarm., og Sig. Sigurðsson. Þrír hinir fyrst töldu sem gestir, en Sigurður sem keppandi. Sundmót. I sambandi við Þjóðhátíð Vestmannaeyja, laugardaginn 15. ágúst n. k. fer fram sund- keppni, 50 stiku, frjáls aðferð, um Sundbikar 1. S. I. Handhafi: Haraldur Haraldsson. Rétt til keppni hafa heimilisfastir Vestmannaeyingar. Þátttakendur gefi sig fram við Karl Jónsson fyrir 12. þ. m. Vestmannaeyjum 7. ágúst 1936. f. R. V. STEINDÖRSPRENT H.F. 22

x

Þjóðhátíðarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðhátíðarblaðið
https://timarit.is/publication/1476

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.