Fréttablaðið - 03.10.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 03.10.2020, Síða 8
REYKJAVÍK Líklegt er að umfangs- miklar framkvæmdir við Fossvogs- skóla hafi borið árangur í að upp- ræta rakavandamál í húsnæðinu. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, Náttúrufræði- stofnunar Íslands og foreldrafélags skólans í kjölfar fundar í vikunni. Eins og greint hefur verið frá hafa börn í skólanum veikst af völdum myglu þar og hefur því í tvígang verið ráðist í framkvæmdir á hús- næðinu. Hefur Fréttablaðið rætt við foreldri sem segir að dóttir sín finni enn fyrir einkennum myglu þrátt fyrir framkvæmdirnar. Í yfirlýsingunni, sem send var foreldrum, segir að í rannsókn NÍ á fjórum sýnum sem tekin voru í sumar hafi fundist tvær tegundir myglusvepps sem varhugavert er að séu innanhúss. Þar sem engar örverur hafi fundist í sýnunum gæti verið um að ræða mengum frá því áður en ráðist var í fram- kvæmdirnar. Verður húsið í kjölfarið þrifið til að draga úr rykmagni, eftir mánuð verða svo tekin f leiri sýni til tegundagreiningar hjá NÍ. Vakni grunur um raka eða leka í skólan- um eða um að enn séu skemmdir í byggingarefni verði brugðist við því með viðeigandi hætti. – ab Kynjahalli er í íslenskum skólum. Lumar þú á hugmynd fyrir miðborgina? Umsóknarfrestur er til og með 18.október nk. Nánar á rvk.is/midborgarsjodur Miðborgarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefna og viðburða sem efla miðborgina og varpa ljósi á fjölbreytileika hennar. HEILBRIGÐISMÁL „Íslenskir karl- menn sem hafa mök við karlmenn og eru á aldrinum 20-44 ára eru helsti áhættuhópurinn fyrir þessar sýkingar,“ segir Guðrún Aspelund, yfirlæknir á sóttvarnasviði hjá Embætti landlæknis, um aukna útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi. Útbreiðsla bæði sárasóttar og lekanda hefur aukist hér umtalsvert á síðastliðnum árum. Á fyrstu sex mánuðum ársins greindust 43 einstaklingar á Íslandi með sárasótt, sem er aukning miðað við fyrri ár. Árið 2019 greindust 38 einstaklingar með sjúkdóminn og árið 2018 voru tilfellin 22 talsins. Árið 2017 greindust óvenjumargir með sárasótt og það ár voru tilfellin yfir fimmtíu. Íslenskur karlmaður sem vill ekki láta nafns síns getið segir í samtali við Fréttablaðið að mikil umræða sé um sjúkdóminn í samfélagi sam- kynhneigðra karlmanna hér á landi. „Síðan í vor hef ég fengið fjögur sím- töl þess efnis að einhver sem ég hef stundað kynlíf með hafi greinst með sárasótt. Það er greinileg aukn- ing á tilfellum og þetta er eitthvað sem þarf að passa sig á.“ Bakterían sem veldur sárasótt smitast við óvarin kynmök og eru fyrstu einkenni sár á þeim stað sem bakterían komst í snertingu við. Einkenna verður vart tíu dögum til tíu vikum eftir smit. Gísli Ingvars- son, sérfræðingur í húð- og kyn- sjúkdómalækningum, segir mikil- vægt að þeir sem smitist af sárasótt leiti sér lækninga sem fyrst. „Sögulega þá er þetta mjög skæð- ur sjúkdómur sem lagðist þungt á mjög marga og var þekktur á síð- ustu 300 árum sem slæmur farald- ur,“ segir Gísli. „Svo kom pensilínið og eftir það er tiltölulega auðvelt að lækna sárasótt,“ bætir hann við. Sárasótt er greind með blóð- prufu hjá lækni og er sýklalyf gefið við sjúkdómnum, annað hvort í töflu- eða sprautuformi. Gísli segir einkenni sjúkdómsins koma fram í nokkrum stigum og sé hann greind- ur á fyrsta stigi sé auðvelt að með- höndla hann. „Ef þú kemst snemma undir læknishendur þá er auðvelt að lækna sjúkdóminn,“ segir hann. Þá segist Gísli ekki þekkja dæmi þess að sárasótt á þriðja stigi hafi greinst hér á landi svo áratugum skipti. „Þriðja stigið var það sem menn óttuðust. Þá geta innri líf- færi farið að skemmast og stundum heilastarfsemi. Þá gátu menn jafn- vel orðið ruglaðir eða séð ofsjónir.“ Aðspurður hvernig fólk geti forðast sjúkdóminn, segir Gísli sárasótt smitast með kynlífi svo mikil- vægt sé að nota verjur og gæta sín. birnadrofn@frettabladid.is Mesta áhættan meðal karla sem hafa mök við karlmenn Íslenskir karlmenn á aldrinum 20-44 ára sem hafa mök við aðra karlmenn eru í mestri hættu á að smitast af sárasótt. Tilfellum sjúkdómsins hefur farið fjölgandi síðustu ár. Sérfræðingur í kynsjúkdóma- lækningum segir tiltölulega auðvelt að lækna sjúkdóminn en mikilvægt sé að leita læknis sem fyrst. Sérfræðingur í kynsjúkdómalækningum segir snör viðbrögð mikilvægust ef sárasótt greinist. MYND/GETTY Sögulega er þetta mjög skæður sjúkdómur sem lagðist þungt á mjög marga. Gísli Ingvarsson, læknir Fleiri sýni að mánuði liðnum Húsnæði Fossvogsskóla var lokað að hluta í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR REYKJAVÍK Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisf lokksins vill að gerð verði úttekt á kynbundnum mun á námsárangri í grunn- og leikskól- um borgarinnar. Tillaga þess efnis verður lögð fyrir borgarstjórn eftir helgi. Fram kemur í greinargerð till- ög unnar að alkunna sé að stór hluti drengja geti ekki lesið sér til gagns og að mun fleiri konur en karlar fari í framhaldsnám í háskólum. „Námsárangur barna á Íslandi er lakari en í mörgum öðrum löndum. Þegar málið er skoðað nánar kemur í ljós að verulegur kynjahalli er á bæði háskólastigi og í grunnskóla. Menntamálaráðherra benti nýlega á að rót vandans sé að finna á fyrstu skólastigum þar sem drengir drag- ast aftur úr og jafnvel heltast úr lestinni,“ segir Eyþór Arnalds, odd- viti Sjálfstæðisf lokksins. „Þessu verðum við að breyta með sam- stilltu átaki en leik- og grunnskól- inn í borginni er ábyrgð Reykja- víkurborgar og nú er kominn tími til aðgerða. Einn af hverjum fjórum nemendum í framhaldsnámi í HÍ er karlkyns. Þetta eru sláandi tölur og á bak við hvern einstakling er löng þroskasaga.“ – ab Vilja úttekt á námsárangri 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.