Fréttablaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 35
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa.
Hlutverk framkvæmdastjóra er að stjórna daglegum rekstri fyrirtækisins.
• Leitað er að einstaklingi með góða þjónustulund, sem á auðvelt með að umgangast fólk og tjá sig í ræðu
og riti.
• Umsækjandi þarf að hafa reynslu af fyrirtækjarekstri, mannaforráðum og markaðssetningu og hafa
menntun sem nýtist í starfinu.
• Almenn tölvu- og enskukunnátta er nauðsynleg og þekking á einu Norðurlandatungumáli er æskileg.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Útfararstofan er sjálfstætt starfandi
fyrirtæki í eigu Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma. Upplýsingar
um Útfararstofuna má finna á heimasíðunni
www.utfor.is
Óskað er eftir að umsókninni fylgi
starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til 13. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Um er að ræða 100% starfshlutfall með
starfsstöð í Reykjavík. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn um störfin þarf að fylgja
ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka
Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og
jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast
samkvæmt kjarasamningi samtaka
starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir
gilda í sex mánuði og öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Vakin er athygli umsækjenda á því að um
ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr.
37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða traustan leiðtoga í starf framkvæmdastjóra
skrifstofu bankastjóra. Viðkomandi heyrir undir seðlabankastjóra.
Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir málefni, rekstur og starfsemi
bankans, styður við störf bankaráðs og nefnda bankans auk seðlabankastjóra og
varaseðlabankastjóra. Skrifstofan er leiðandi í stefnumótun bankans og samhæfir
starfsemi og upplýsingamiðlun bankans ásamt því að hafa yfirsýn yfir stöðu og þróun
peningastefnu, fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits. Skrifstofa bankastjóra ber
ábyrgð á þjónustu við seðlabankastjóra, varaseðlabankastjóra, peningastefnunefnd,
fjármálastöðugleikanefnd, fjármálaeftirlitsnefnd og bankaráð. Skrifstofan ber jafnframt
ábyrgð á stjórnsýslu bankans, reglusetningu, samningagerð og lögfræðistörfum sem ekki
eru unnin á öðrum sviðum bankans. Þá ber hún ábyrgð á alþjóðasamskiptum bankans,
ytri upplýsingamiðlun, áhættustýringu, regluvörslu og persónuvernd.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SKRIFSTOFU BANKASTJÓRA
Helstu verkefni:
• Stýrir og leiðir starfsemi sviðs skrifstofu
bankastjóra
• Mótar stefnu og framtíðarsýn hvað varðar
verkefni sviðsins í samræmi við stefnu og
markmið bankans
• Ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun
verkefna skrifstofu bankastjóra
• Hefur yfirsýn yfir starfsemi og verkefni
Seðlabankans og ber ábyrgð á að framfylgja
stefnumótun bankans
• Ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf við
bankaráð, seðlabankastjóra,
varaseðlabankastjóra, peningastefnunefnd,
fjármálastöðugleikanefnd og
fjármálaeftirlitsnefnd
• Ber ábyrgð á aðstoð við undirbúning vinnu,
sem varaseðlabankastjórar leiða hver á sínu
sviði, fyrir peningastefnunefnd,
fjármálastöðugleikanefnd og
fjármálaeftirlitsnefnd og fer með rýni á
viðurlagamálum bankans
• Ber ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni
ákvarðana seðlabankastjóra
• Ber ábyrgð á samræmingu
upplýsingamiðlunar frá skrifstofunni til
annarra sviða bankans og tryggir
upplýsingaflæði til seðlabankastjóra,
varaseðlabankastjóra og framkvæmdastjóra
bankans
• Ber ábyrgð á samstarfi bankans við aðra
seðlabanka og öðru alþjóðlegu samstarfi
• Byggir upp sterka liðsheild stjórnenda og
sérfræðinga á sviðinu
• Tryggir traust samstarf við önnur svið með
áherslu á að þekkja vel þeirra starfsemi,
þarfir og áskoranir
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í lögfræði
• Reynsla af stefnumótun og innleiðingu
breytinga
• Sterkir leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla
• Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
og meðferð stjórnsýslumála, þar á meðal
viðurlagamála
• Góð þekking á laga- og regluumhverfi
Seðlabankans
• Góð þekking á fjármálakerfinu
• Góð þekking á fjármunarétti
• Gott vald á íslensku og ensku
og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Færni í mannlegum samskiptum
og árangursríkri teymisvinnu
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að
ná árangri í starfi
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð
stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir
forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi,
fjármálastöðugleika og traustri og öruggri
fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn
sinna viðfangsefnum sem samrýmast
hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem
að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla
að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá
Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og
leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt
og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist
af trausti, fagmennsku, þekkingu og
framsækni.
Nánari upplýsingar veita: Íris Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs,
iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 13. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is