Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.10.2020, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 03.10.2020, Qupperneq 35
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa. Hlutverk framkvæmdastjóra er að stjórna daglegum rekstri fyrirtækisins. • Leitað er að einstaklingi með góða þjónustulund, sem á auðvelt með að umgangast fólk og tjá sig í ræðu og riti. • Umsækjandi þarf að hafa reynslu af fyrirtækjarekstri, mannaforráðum og markaðssetningu og hafa menntun sem nýtist í starfinu. • Almenn tölvu- og enskukunnátta er nauðsynleg og þekking á einu Norðurlandatungumáli er æskileg. FRAMKVÆMDASTJÓRI Útfararstofan er sjálfstætt starfandi fyrirtæki í eigu Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Upplýsingar um Útfararstofuna má finna á heimasíðunni www.utfor.is Óskað er eftir að umsókninni fylgi starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til 13. október nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Með umsókn um störfin þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða traustan leiðtoga í starf framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra. Viðkomandi heyrir undir seðlabankastjóra. Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir málefni, rekstur og starfsemi bankans, styður við störf bankaráðs og nefnda bankans auk seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Skrifstofan er leiðandi í stefnumótun bankans og samhæfir starfsemi og upplýsingamiðlun bankans ásamt því að hafa yfirsýn yfir stöðu og þróun peningastefnu, fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits. Skrifstofa bankastjóra ber ábyrgð á þjónustu við seðlabankastjóra, varaseðlabankastjóra, peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd, fjármálaeftirlitsnefnd og bankaráð. Skrifstofan ber jafnframt ábyrgð á stjórnsýslu bankans, reglusetningu, samningagerð og lögfræðistörfum sem ekki eru unnin á öðrum sviðum bankans. Þá ber hún ábyrgð á alþjóðasamskiptum bankans, ytri upplýsingamiðlun, áhættustýringu, regluvörslu og persónuvernd. FRAMKVÆMDASTJÓRI SKRIFSTOFU BANKASTJÓRA Helstu verkefni: • Stýrir og leiðir starfsemi sviðs skrifstofu bankastjóra • Mótar stefnu og framtíðarsýn hvað varðar verkefni sviðsins í samræmi við stefnu og markmið bankans • Ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun verkefna skrifstofu bankastjóra • Hefur yfirsýn yfir starfsemi og verkefni Seðlabankans og ber ábyrgð á að framfylgja stefnumótun bankans • Ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf við bankaráð, seðlabankastjóra, varaseðlabankastjóra, peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd • Ber ábyrgð á aðstoð við undirbúning vinnu, sem varaseðlabankastjórar leiða hver á sínu sviði, fyrir peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd og fer með rýni á viðurlagamálum bankans • Ber ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni ákvarðana seðlabankastjóra • Ber ábyrgð á samræmingu upplýsingamiðlunar frá skrifstofunni til annarra sviða bankans og tryggir upplýsingaflæði til seðlabankastjóra, varaseðlabankastjóra og framkvæmdastjóra bankans • Ber ábyrgð á samstarfi bankans við aðra seðlabanka og öðru alþjóðlegu samstarfi • Byggir upp sterka liðsheild stjórnenda og sérfræðinga á sviðinu • Tryggir traust samstarf við önnur svið með áherslu á að þekkja vel þeirra starfsemi, þarfir og áskoranir Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í lögfræði • Reynsla af stefnumótun og innleiðingu breytinga • Sterkir leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla • Góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála, þar á meðal viðurlagamála • Góð þekking á laga- og regluumhverfi Seðlabankans • Góð þekking á fjármálakerfinu • Góð þekking á fjármunarétti • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni. Nánari upplýsingar veita: Íris Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til 13. október nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.