Fréttablaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 80
„Hvaða munsturrugl
er þetta nú eiginlega,“
sagði Kata önug. „Eigum
við að velja munstur
á sófasett?“ bætti hún
við og leist augljóslega
ekkert á þessa þraut.
„Og hvað er þessi plús
að gera þarna, eigum
við kannski að fara að
hanna veggfóður. Ég hef
aldrei kunnað að meta
veggfóður.“ Lísaloppa
las leiðbeiningarnar.
„Hér stendur: Ef þessar
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
423
Sérð þú hvernig munstur verður til þegar þessar tvær munsturmyndir eru lagðar saman??
?
?
?
tvær munsturmyndir
eru lagðar hvor ofan á
aðra, hvernig munstur
verður þá til? Er það
eins og á mynd 1, 2, 3,
4 eða 5?“ Þær horfðu
á munsturmyndirnar
drykklanga stund. „Nei,“
sagði Kata. „Þetta er bara
ein hringavitleysa fyrir
mér, þú mátt reyna að
leysa þessa þraut, ég
gefst upp.“ „Gefst upp?“
Sagði Lísaloppa og glotti.
„Allt í lagi, sagði Kata og
dæsti. „Reynum þá að
nna eitthvað vitrænt
út úr þessari þraut.“ Hún
léti það sko ekki fréttast
að hún gæst upp svona
auðveldlega. Svo gerði
það líka þrautina aðeins
auðveldari að glíma
við að fá að sjá mm
möguleika og vita að
einn þeirra væri sá rétti.
1
2
3
4
5
Lausn á gátunni
Það er munsturmyndin númer eitt?
Bergþóra Hildur Andradóttir er ell-
efu ára og leikur hlutverk Kamillu
í Kardemommubænum á sviði
Þjóðleikhússins, til skiptis við Völu
Frostadóttur. Hún segir það mjög
skemmtilegt.
Kynnumst við eitthvað foreldrum
Kamillu í leikritinu? Já, Soffía
frænka er víst mamma hennar, þó
að Kamilla kalli hana alltaf Soffíu.
Í leikritinu fær Kamilla líka nýjan
pabba, ég vil ekki segja hver hann
er.
Hvenær vissir þú að þú fengir hlut-
verkið? Það er svona ár síðan, ég
byrjaði að æfa það í nóvember 2019
og loksins vorum við að frumsýna
um síðustu helgi.
Lágu æfingar niðri lengi? Já, en
í fyrstu COVID-bylgjunni tókum
við krakkarnir nokkra danstíma í
gegnum app í símanum sem heitir
Zoom, ég var bara heima en sá hina
og kennarana. En 4. maí, stuttu eftir
að samkomubanninu var af létt,
byrjuðu æfingar, svo kom sumar-
frí og eftir það hefur allt gengið
hrukkulaust.
Hefur þú getað sinnt skólanum?
Það er reynt að láta leikæfingar
ekki hitta á skólatíma og við vorum
stundum á æfingum frá fjögur til
tíu. Samt kom fyrir að ég varð að
sleppa skóla. Oftast náði ég ein-
hverjum kennslustundum en tók
svo strætó niður í Þjóðleikhús.
Fenguð þið eitthvað að borða þar?
Við fengum hádegismat, svo hress-
ingu og ef við vorum fram á kvöld
fengum við kvöldmat.
Finnst þér álagið þess virði? Já,
það er svo æðislegt að vera á svið-
inu, ekki bara á sýningu heldur líka
á æfingum. Mér líður mjög vel þar.
Hefurðu leikið áður? Bara í skóla-
leikritum, þetta gefur miklu meiri
reynslu. Þegar maður fer inn í Þjóð-
leikhúsið þá er það – ég veit ekki
hvernig ég á að útskýra það – eitt-
hvað svo góð tilfinning. Það er svo
gaman að vera þar.
Hefurðu ekki kynnst mörgum
nýjum krökkum? Jú, tuttugu og
þremur og það eru allt skemmti-
legir og jákvæðir krakkar og með
mikla hæfileika. Það er alltaf gleði
í hópnum.
Ertu að æfa söng eða á hljóð-
færi utan leikhússins? Ég æfi söng
í kór Vídalínskirkju, sem er undir
stjórn Jóhönnu Guðrúnar söng-
konu, og hún kennir okkur.
Áttu f leiri áhugamál? Mér finnst
gaman að skrifa og semja leikrit
og sögur. Líka að dansa. Kamilla
dansar svolítið í sýningunni. Svo
finnst mér gaman í fótbolta og alls
konar íþróttum.
Það er svo
æðislegt að
vera á sviðinu
„Mér finnst gaman að skrifa og semja leikrit og sögur. Líka að dansa. Ka-
milla dansar svolítið.” segir Bergþóra Hildur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Söngur Kamillu
Heyrið lagið hljóma
hreina bjarta óma.
Einn og tveir og þrír
og einn og tveir og þrír.
Áfram enn skal telja
aðrar nótur velja.
Einn og tveir og þrír og einn og
tveir og þrír.
Töfratrillur nettar
teljum hratt og léttar.
Einn og tveir og þrír
og einn og tveir og þrír.
Nýjan vikivaka
við nú skulum taka.
Einn og tveir og þrír
og einn og tveir og þrír.
Ef ég íþrótt stranga
æfi daga langa.
Einn og tveir og þrír
og einn og tveir og þrír.
Eykst mér lag og leikni
leik ég þá með hreykni.
Síðar sannið til
þá sést hvað í mér býr.
Höfundur: Torbjörn Egner
Þýðing: Kristján frá Djúpalæk
Lagið
1. Hvaða garður er alltaf blautur?
2. Hvað er það sem brosir við
öllum en hlær þó ekki að neinum?
3. Hvaða blað er ekki hægt að rífa?
4. Stundum hef ég höfuð, stund-
um ekki, stundum er ég með tagl
en stundum ekki. Hver er ég?
5. Hvað er það sem er hnöttótt
eins og egg, hefur fjölda augna en
er þó sjónlaust?
Gátur
SVÖR 1. Tanngarður 2. Sólin 3.
Hnífsblað 4. Hárkolla 5. Kartafla
Það er mikið um dýrðir í Kardemommubæ eins og hér má sjá.
3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR