Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR 16. OKTÓBER 2020 DV
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir hjá lögmannsstofunni Rétti. MYND/AÐSEND
S íðan í ársbyrjun 2018 hafa 219 konur leitað til fæðingarorlofssjóðs
vegna umsóknar um atvinnu-
leysisbætur eftir að hafa verið
sagt upp vinnu sinni samhliða
töku fæðingarorlofs. Uppsagn-
ir á barnshafandi konum eða
konum í fæðingarorlofi hafa
verið bannaðar með lögum
síðan 1987, um hálfri öld eftir
að sambærilegt bann var sett
á í Svíþjóð. Með lögum um
fæðingar- og foreldraorlof
árið 2000 var þessi réttur
tryggður báðum foreldrum.
Sigrún Ingibjörg Gísla-
dóttir, lögmaður á lögmanns-
stofunni Rétti, segir að lögin
tryggi rétt foreldra í orlofi,
en þó megi segja þeim upp
af öðrum ástæðum. „Það er
því ekki þannig að algjört
bann sé lagt við að segja
manneskju upp sem ýmist á
von á barni eða er í fæðing-
arorlofi.“ Sigrún segir þó að
sönnunarbyrðin sé hjá fyrir-
tækinu þegar uppsögn á sér
stað undir þessum kringum-
stæðum. „Fyrirtækið þarf að
sýna fram á að uppsögn sé
vissulega af öðrum ástæðum
en töku eða fyrirhugaðri töku
fæðingarorlofs. Ef fyrirtæki
til dæmis fara á hausinn,
er auðvelt að ímynda sér að
„réttlæting“ uppsagnar sé
til staðar. Í öðrum tilfellum
getur það reynst fyrirtækjum
erfitt að sýna fram á rétt-
mæta ástæðu uppsagnar og
geta starfsmenn í þeim til-
fellum átt rétt á bótum.
Dæmi ólöglegar tilfærslur
„Ef þér er sagt upp almennt,
og uppsögnin reynist svo
ólögmæt getur þú átt rétt á
bótum,“ segir Sigrún en lögin
taka ekki á upphæð bótanna.
„Það er misjafnt hvernig
bæturnar eru reiknaðar. Þetta
geta verið miskabætur, eða
bætur vegna tjóns.“ Lögin,
að sögn Sigrúnar, ganga út
á það að einstaklingur eigi
að geta farið í fæðingarorlof
og komið til baka í sitt sama
starf, eða sambærilegt starf.
„Auðvitað er hugsanlegt að
það geti komið upp réttmæt-
ar ástæður fyrir því að ein-
staklingur fái ekki nákvæm-
lega sama starf og fyrir töku
fæðingarorlofs, en starfið
verður þá að minnsta kosti
að vera sambærilegt.“ Sigrún
segir að hún þekki dæmi þess
að vinnuveitendur sinni þess-
ari skyldu sinni ekki. Bóta-
fjárhæðir taki gjarnan mið
af þessu, enda getur reynst
þrautin þyngri fyrir konu að
finna vinnu með nýfætt barn.
„Þetta er einmitt það sem
lögin eiga að koma í veg fyrir,
að foreldrar séu settir í þá
stöðu,“ segir Sigrún.
Dagvistunarvandi kallar
á sveigjanleika
„Það eru þessi mál sem eru á
mjög gráu svæði og við erum
að sjá of mikið af. Um þau eru
samt til fordæmi sem gefa það
skýrt til kynna að þetta megi
ekki,“ segir hún jafnframt.
Sigrún bendir á tvennt í þessu
samhengi. Fyrst er að réttar-
vernd þessara laga hefst við
tilkynningu um fyrirhugaða
töku fæðingarorlofs. Þannig
lúta uppsagnir eða tilfærslur
í starfi, sem koma til eftir
að sú tilkynning berst, jafn-
réttislögum og lögum um
fæðingarorlof. Hitt er að lögin
taka ekki bara á uppsögnum.
Þannig hefur Úrskurðar-
nefnd jafnréttismála fjallað
um og bent á að fyrirtæki eigi
að sýna sveigjanleika og að
skylda hvíli á vinnuveitanda
um að reyna að koma til móts
við foreldra er þeir reyna að
samræma vinnuskyldu og
breyttar aðstæður á heimili
vegna nýrra fjölskyldumeð-
lima.
Sem dæmi nefnir Sigrún
foreldra sem lenda í vand-
ræðum með dagvistun og
vilja koma til baka í hluta-
starf. Undir þeim kringum-
stæðum gæti hvílt skylda á
vinnuveitanda til að verða
við þeirri ósk að fullu eða
að hluta. „Við þekkjum þess
dæmi að konum sé mætt með
algjörum ósveigjanleika hjá
vinnuveitanda sínum eða að
konunum sé til dæmis sagt
að þegar þær snúa til baka þá
verði þær að vera í 100 pró-
sent starfi, í 8-4 vinnu. Þessi
skilyrði gætu virkað sem hlut-
laus skilyrði vinnuveitenda
sem starfsmaður verður að
sætta sig við, en geta falið
í sér ólögmæta óbeina mis-
munun,“ segir Sigrún.
Vannýtt úrræði foreldra
Aðspurð um hvernig og hvert
fólk ætti að snúa sér í þessari
ímynduðu stöðu svarar Sig-
rún að Úrskurðarnefnd jafn-
réttismála sé vannýtt úrræði
að hennar mati. „Úrskurðar-
nefndin er bindandi og úrræði
sem einstaklingar mættu nota
meira í þessari stöðu. Jafn-
réttislögin eru ekki fullkomin
á mörgum sviðum, en á þessu
tiltekna sviði eru þau mjög
góð. Úrskurðir nefndarinnar
eru bindandi sem þýðir að
dómsúrskurð þarf til þess
að hnekkja þeim.“ Þá bendir
hún á að nefndin geti gert
vinnuveitanda skylt að greiða
kostnað lögmanns vegna mála
sem til meðferðar eru hjá
nefndinni og að hún fjalli um
málin „heildstætt“ og út frá
lagalegum skyldum vinnuveit-
enda til þess að aðstoða fólk á
barneignaraldri í gegnum þá
flóknu tíma í sínu lífi.
„Við vitum auðvitað öll
að þetta er bara dæmi sem
gengur ekki alltaf upp, hve-
nær orlofi lýkur og dagvistun
tekur við og sömuleiðis eftir
það, hvenær dagvistun hefst
eða klárast á daginn út frá
vinnuskylda foreldra. Það
er í raun ógerningur að láta
dæmið ganga upp nema allir
gefi eitthvað eftir og sýni
sveigjanleika,“ segir Sigrún
að lokum. n
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
219 MÆÐRUM SAGT UPP
Í MIÐJU FÆÐINGARORLOFI
Algengt er að einstaklingar standi uppi atvinnulausir eftir töku
fæðingarorlofs þrátt fyrir ólögmæti. Lögmaður segir lögin skýr um
þessi mál, en að úrræði sem standi almenningi til boða séu vannýtt.
Jafnréttislögin
eru ekki full-
komin á mörgum
sviðum, en á
þessu tiltekna
sviði eru þau
mjög góð.