Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 28
Amma velur FIMM UPPÁHALDS BÆKURNAR Regína Birkis er margföld amma og lestrarhestur. Hún er í bókaklúbb í blokkinni þar sem hún býr og segist leita eftir bókum sem virkja allan til­ finningaskalann, allt frá gleði í sorg. SÖGUR ÚR SÍÐUNNI eftir Böðvar Guðmundsson Útgáfuár: 2007 Sögur úr Síðunni eru tengdar sög- ur með sameiginlegum persónum. Sögusviðið er íslensk sveit um miðja síðustu öld. Fjölskyldan á Bóli er í forgrunni og í fylgd yngsta barnsins, sögumannsins Kára, kynnumst við heillandi ver- öld sem er ekki fjarlæg, hvorki í tíma né rúmi, en gæti þó stundum verið í aldarfjarlægð því svo margt hefur breyst síðan þá. Hér segir frá góðu fólki, sumu broslegu en jafnframt örlátu og höfðinglegu þegar á reynir. Eftirminnilegir atburðir lifna á ný í frásögn sem leiftrar af kímni. IÐRUN eftir Hanne-Vibeke Holst Útgáfuár: 2013 Iðrun er saga fjögurra kynslóða Tholstrup-ættarinnar og spannar sjötíu ár, saga sem einkennist af einlægri ást, ástríðum og metnaði en líka blekkingum og lygum sem eitra líf fjölskyldunnar. Ættfaðir- inn Thorvald er vinsæll prestur á Jótlandi þegar Þjóðverjar her- nema Danmörku. EDDUMÁL eftir Jónínu Leósdóttur Útgáfuár: Fyrsta bók kom út 2016 Edda er nýhætt að vinna og dauð- leiðist tíðindalaus tilvera eftir- launaþegans. Hún getur ómögu- lega verið til friðs. Milli þess sem hún skellir sér í sund og verslar í Melabúðinni leysir hún hin og þessi sakamál – oftast óumbeðin – og alltaf börnum sínum til mikils ama. Fimm bækur hafa komið út um Eddu og hennar óþrjótandi forvitni, ást á rauðvíni og gömlum ofskreyttum húsgögnum. Spennu- bækur sem eru þó lausar við allan viðbjóð og grafískar lýsingar á ofbeldi. BLÁ eftir Maju Lunde Útgáfuár: 2019 Hvað gerist ef vatnið hverfur? Áríð- andi, áhugaverð og ógnvekjandi skáldsaga um áhrif umhverfis- breytinga. 2017: Signe er komin á sjötugsaldur þegar hún heimsækir æskustöðvarnar í Noregi. Þar blasa við umfangsmiklar virkjunarfram- kvæmdir, og hún siglir skelkuð á braut til að hitta mann sem hún eitt sinn elskaði. Hún á við hann áríðandi erindi. Hún er ein um borð í skútunni sinni, sem heitir Blá – en neðan þilja geymir hún undarlegan farm. 2041: Aldarfjórðungi síðar er David á flótta norður eftir Frakk- landi með lítilli dóttur sinni. Enda- lausir þurrkar hafa hrakið þau að heiman þar sem miskunnarlausir eldar geisa. Dag einn finna þau vel falinn bát á eyðibýli langt úti í sveit og ótal spurningar vakna … Næturgalinn eftir Kristin Hannah Útgáfuár: 2016 Líf frönsku systranna Vianne og Isabelle hefur ekki alltaf verið dans á rósum og þegar nasistar hertaka landið fer tilveran á hvolf. Enda þótt ógnin lúri í hverju skúmaskoti láta þær ekki bugast og finna hvor um sig leið til að takast á við napran stríðsveru- leikann. Næturgalinn er mögnuð söguleg skáldsaga um ástir, harm og hug- rekki kvenna á stríðstímum, sem hefur selst í meira en 1,5 milljón- um eintaka. Hún grípur lesandann föstum tökum; hann hverfur inn í fortíð sem aldrei má gleymast og upplifir atburðarás sem sýnir hvers mannleg reisn er megnug gagnvart illskunni. 28 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV Í tilefni þess að nú fer að örla á aukinni bókaútgáfu fyrir jól og þeirrar staðreyndar að fleiri og fleiri eru fastir heima við í leit að afþreyingu, verður ein síða helguð bókum í öllum tölublöðum DV fram að jólum. Ekki er um hefðbundna gagnrýni að ræða heldur verður leitað eftir áliti og um- sögnum alls konar fólks á öll- um aldri. Fyrst ríður á vaðið Regína Margrét Birkis en hún les mikið og er í bókaklúbb. „Við hittumst nokkrar sem búum í sömu blokk og skipt- umst á skoðunum. Það er virki- lega skemmtilegt og ég hef í gegnum klúbbinn lesið svo margar dásamlegar bækur,“ segir Regína sem á 10 barna- börn og 7 langömmubörn. „Ég er ríkasta kona í heimi.“ Regína og eiginmaður henn- ar Guðberg Haraldsson búa í Árskógum þar sem blómlegt félagslíf er að finna. Einnig skiptist Regína mikið á bókum við dætur sínar og barnabarn auk þess sem bókabíllinn hefur fært henni mikla gleði síðustu ár. „Ég er svo lánsöm að hafa verið lestrarhestur alla mína ævi. Fyrst voru það Nonna- bækurnar, norsk ævintýri og álíka. Svo var það Pollý anna þegar ég eltist en ef ég ætti að velja nýlegar bækur sem sköruðu fram úr í mínum huga væru það þessar fimm.“ n Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Umsögn: „Þetta eru frásagnir um hvernig bændur og búalið brást við komu herliðsins og margt í því sambandi. Bókin er ótrúlega fyndin og ég grét oft úr hlátri.“ Umsögn: „Bókin er um tvíburana Leif og Leo. Hún gerist á Norður- löndunum og í Evrópu um og eftir stríð. Bókin heillaði mig mikið og plottið í lokin er frábært!“ Umsögn: „Ég er alltaf veik fyrir bókum eftir Jónínu Leós. Ég hef lesið allar Eddubækurnar og bíð eftir næstu.“ Umsögn: „Sagan gerist í framtíðinni þegar spár um eyðingu jarðar eru að koma fram. Átakanleg og skelfi- leg saga sem er vel sögð. Virkilega flottur höfundur.“ Umsögn: „Ég gat varla lagt þessa bók frá mér. Bæði spennusaga og ástarsaga.“ Regína með nöfnu sinni og langömmubarni sem er einnig mikill bókaormur. MYND/REGÍNA DILJÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.