Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Síða 28
Amma velur
FIMM UPPÁHALDS
BÆKURNAR
Regína Birkis er margföld amma og lestrarhestur.
Hún er í bókaklúbb í blokkinni þar sem hún býr
og segist leita eftir bókum sem virkja allan til
finningaskalann, allt frá gleði í sorg.
SÖGUR ÚR SÍÐUNNI
eftir Böðvar Guðmundsson
Útgáfuár: 2007
Sögur úr Síðunni eru tengdar sög-
ur með sameiginlegum persónum.
Sögusviðið er íslensk sveit um
miðja síðustu öld. Fjölskyldan
á Bóli er í forgrunni og í fylgd
yngsta barnsins, sögumannsins
Kára, kynnumst við heillandi ver-
öld sem er ekki fjarlæg, hvorki í
tíma né rúmi, en gæti þó stundum
verið í aldarfjarlægð því svo margt
hefur breyst síðan þá. Hér segir
frá góðu fólki, sumu broslegu en
jafnframt örlátu og höfðinglegu
þegar á reynir. Eftirminnilegir
atburðir lifna á ný í frásögn sem
leiftrar af kímni.
IÐRUN
eftir Hanne-Vibeke Holst
Útgáfuár: 2013
Iðrun er saga fjögurra kynslóða
Tholstrup-ættarinnar og spannar
sjötíu ár, saga sem einkennist af
einlægri ást, ástríðum og metnaði
en líka blekkingum og lygum sem
eitra líf fjölskyldunnar. Ættfaðir-
inn Thorvald er vinsæll prestur
á Jótlandi þegar Þjóðverjar her-
nema Danmörku.
EDDUMÁL
eftir Jónínu Leósdóttur
Útgáfuár: Fyrsta bók kom út 2016
Edda er nýhætt að vinna og dauð-
leiðist tíðindalaus tilvera eftir-
launaþegans. Hún getur ómögu-
lega verið til friðs. Milli þess sem
hún skellir sér í sund og verslar
í Melabúðinni leysir hún hin og
þessi sakamál – oftast óumbeðin
– og alltaf börnum sínum til mikils
ama. Fimm bækur hafa komið út
um Eddu og hennar óþrjótandi
forvitni, ást á rauðvíni og gömlum
ofskreyttum húsgögnum. Spennu-
bækur sem eru þó lausar við allan
viðbjóð og grafískar lýsingar á
ofbeldi.
BLÁ
eftir Maju Lunde
Útgáfuár: 2019
Hvað gerist ef vatnið hverfur? Áríð-
andi, áhugaverð og ógnvekjandi
skáldsaga um áhrif umhverfis-
breytinga. 2017: Signe er komin á
sjötugsaldur þegar hún heimsækir
æskustöðvarnar í Noregi. Þar blasa
við umfangsmiklar virkjunarfram-
kvæmdir, og hún siglir skelkuð á
braut til að hitta mann sem hún
eitt sinn elskaði. Hún á við hann
áríðandi erindi. Hún er ein um borð
í skútunni sinni, sem heitir Blá – en
neðan þilja geymir hún undarlegan
farm. 2041: Aldarfjórðungi síðar er
David á flótta norður eftir Frakk-
landi með lítilli dóttur sinni. Enda-
lausir þurrkar hafa hrakið þau að
heiman þar sem miskunnarlausir
eldar geisa. Dag einn finna þau vel
falinn bát á eyðibýli langt úti í sveit
og ótal spurningar vakna …
Næturgalinn
eftir Kristin Hannah
Útgáfuár: 2016
Líf frönsku systranna Vianne og
Isabelle hefur ekki alltaf verið
dans á rósum og þegar nasistar
hertaka landið fer tilveran á
hvolf. Enda þótt ógnin lúri í hverju
skúmaskoti láta þær ekki bugast
og finna hvor um sig leið til að
takast á við napran stríðsveru-
leikann.
Næturgalinn er mögnuð söguleg
skáldsaga um ástir, harm og hug-
rekki kvenna á stríðstímum, sem
hefur selst í meira en 1,5 milljón-
um eintaka. Hún grípur lesandann
föstum tökum; hann hverfur inn í
fortíð sem aldrei má gleymast
og upplifir atburðarás sem sýnir
hvers mannleg reisn er megnug
gagnvart illskunni.
28 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV
Í tilefni þess að nú fer að örla á aukinni bókaútgáfu fyrir jól og þeirrar staðreyndar
að fleiri og fleiri eru fastir
heima við í leit að afþreyingu,
verður ein síða helguð bókum
í öllum tölublöðum DV fram að
jólum. Ekki er um hefðbundna
gagnrýni að ræða heldur
verður leitað eftir áliti og um-
sögnum alls konar fólks á öll-
um aldri. Fyrst ríður á vaðið
Regína Margrét Birkis en hún
les mikið og er í bókaklúbb.
„Við hittumst nokkrar sem
búum í sömu blokk og skipt-
umst á skoðunum. Það er virki-
lega skemmtilegt og ég hef
í gegnum klúbbinn lesið svo
margar dásamlegar bækur,“
segir Regína sem á 10 barna-
börn og 7 langömmubörn. „Ég
er ríkasta kona í heimi.“
Regína og eiginmaður henn-
ar Guðberg Haraldsson búa í
Árskógum þar sem blómlegt
félagslíf er að finna. Einnig
skiptist Regína mikið á bókum
við dætur sínar og barnabarn
auk þess sem bókabíllinn hefur
fært henni mikla gleði síðustu
ár. „Ég er svo lánsöm að hafa
verið lestrarhestur alla mína
ævi. Fyrst voru það Nonna-
bækurnar, norsk ævintýri og
álíka. Svo var það Pollý anna
þegar ég eltist en ef ég ætti
að velja nýlegar bækur sem
sköruðu fram úr í mínum huga
væru það þessar fimm.“ n
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Umsögn: „Þetta eru frásagnir um
hvernig bændur og búalið brást
við komu herliðsins og margt í
því sambandi. Bókin er ótrúlega
fyndin og ég grét oft úr hlátri.“
Umsögn: „Bókin er um tvíburana
Leif og Leo. Hún gerist á Norður-
löndunum og í Evrópu um og eftir
stríð. Bókin heillaði mig mikið og
plottið í lokin er frábært!“
Umsögn: „Ég er alltaf veik fyrir
bókum eftir Jónínu Leós. Ég hef
lesið allar Eddubækurnar og bíð
eftir næstu.“
Umsögn: „Sagan gerist í framtíðinni
þegar spár um eyðingu jarðar eru
að koma fram. Átakanleg og skelfi-
leg saga sem er vel sögð. Virkilega
flottur höfundur.“
Umsögn: „Ég gat varla lagt þessa
bók frá mér. Bæði spennusaga og
ástarsaga.“
Regína með nöfnu sinni og langömmubarni sem er einnig mikill bókaormur. MYND/REGÍNA DILJÁ