Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 20
BÖRNIN HEIMA Í SJÖ MÁNUÐI OG RÓLUVELLIR INNSIGLAÐIR Ína Valgerður býr í Bandaríkj- unum ásamt fjölskyldu sinni. Takmarkanir þar eru mun meiri en hérlendis en skólar hafa loks verið opnaðir að hluta til aftur. Enn er margt lokað og aðeins má kaupa eina klósettpappírs- pakkningu í einu. Ína Valgerður Péturs-dóttir söngkona fluttist til Bandaríkjanna fyrir þremur árum þegar eigin- maður hennar Þórarinn Árni Bjarnason hóf sérnám í lyf- læknisfræði og stundar nú áframhaldandi sérnám í hjartalækningum. Bandaríkin hafa síðast- liðið ár verið land innri átaka en þrátt fyrir það segir Ína að fjölskyldunni líði þar vel. „Ekkert land í heiminum er fullkomið og USA er engin undantekning. Hins vegar höfum við aðlagast vel hér og liðið vel frá fyrsta degi. Við erum búin að eignast vini frá öllum heimshornum og það að flytja til útlanda stækkar svo sannarlega sjóndeildar- hringinn hjá manni. En auð- Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Fjölskyldan á góðri stundu. MYNDIR/ AÐSENDAR vitað erum við að búa hér á sögulegum tímum þetta árið. COVID, Black Lives Matter og Trump er forseti, svo þetta ár er búið að vera svolítið eins og að vera fastur í einhverri bíómynd.“ Fjölskyldan býr í hjarta miðvestursins, Iowa City í Iowa, en hefur varið sumr- unum á Íslandi þar til veiran lét til sín taka. „Ég kom síðast heim til Íslands sumarið 2019. Við höfum farið heim á hverju ári og að sama skapi er alltaf gestagangur hjá okkur, en að sjálfsögðu er 2020 undanskil- ið. Við höfum ekki farið heim til Íslands og ekki fengið gesti á árinu. Nema systur manns- ins míns sem er búsett og í námi í Washington DC. Hún kom og var hjá okkur í allt vor og sumar sem hjálpaði mikið við að létta undir á heimilinu. Það var ómetanlegt. Ég og dætur mínar ætluðum að eyða sumrinu á Íslandi með fólkinu okkar en auðvitað varð ekkert úr því, vonandi komumst við til Íslands næsta sumar,“ seg- ir Ína og vísar til þess hversu erfitt til lengdar það er að vera fastur inni á heimilinu. Langaði að smúla eiginmanninn „Það er klárlega erfitt að vera svona mikið fastur heima. Ég hef samt reynt að vera alltaf jákvæð og bara láta þetta allt ganga sem best og reyna að hafa hlutina þann- ig að við séum öll hamingju- söm saman. Það er í raun það eina sem hægt er að gera í stöðunni. Fyrst var ég líka auðvitað áhyggjufull yfir manninum mínum í vinnunni. Það var skortur á hlífðar- búnaði í byrjun fyrir heil- brigðisstarfsfólk. Mig langaði því helst að smúla hann með garðslöngunni og sótthreinsa hann úti í bílskúrnum þegar hann kom heim af vöktum, en ég gerði það nú auðvitað ekki. En við þurftum að út- skýra fyrir stelpunum að þær mættu ekki hlaupa í fangið á honum eins og þær gera vana- lega þegar hann kemur heim, engin pabba knús fyrr en hann væri búinn að fara í sturtu.“ Auka ísskápur og frystir Ína segist hafa lengi vel aðeins hafa farið út af heimilinu til að versla á tveggja vikna fresti. „Við þurftum að fá okkur auka ísskáp og frysti til þess að koma öllum matnum fyrir. Einu búðirnar sem ég fór í voru búðirnar sem settu strax grímuskyldu eins og Costco, Trader Joe’s og Target. Það var líka alveg ótrúlega skrítið að fara í búð þessa fyrstu mán- uði í ástandinu. Klósettpappír var uppseldur í öllum búðum í margar vikur, einu sinni kom ég í búðina og þá var ekki til neinn kjúklingur, næst kom ég og þá var engin mjólk eða egg. Hillurnar stóðu tómar í stórum stíl, þetta var alveg ótrúlegt ástand.“ Hún segist hafa verið mjög hrædd til að byrja með en með tímanum læri fólk að lifa með ástandinu. „Núna erum við aðeins slak- ari, en samt mjög varkár. Við gerum engan óþarfa eins og að fara út að borða. Ég er búin að fara einu sinni í klippingu á þessu ári og hef ekki stigið 20 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.