Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 36
Melania Trump í gegnum árin Útlit Melaniu Trump hefur breyst mikið í gegnum árin. Margar grunar að það sé ekki aðeins vegna aldurs heldur vegna aðstoðar fegrunaraðgerða. Á ður en Melania Trump varð forsetafrú Banda-ríkjanna var hún fyrir- sæta. Hún sat fyrst fyrir að- eins sextán ára og þegar hún var átján ára komst hún á skrá hjá ítalskri umboðsskrifstofu og þá byrjaði boltinn að rúlla. Þegar myndir af Melaniu í gegnum árin eru skoðaðar er eitt ljóst, útlit hennar hefur breyst og þá ekki aðeins vegna aldurs. Margir telja Melaniu Trump hafa gengist undir nokkrar fegrunaraðgerðir, þó að hún neiti því staðfastlega. „Ég er á móti bótoxi, ég er á móti fylli- efni. Að mínu mati eyðileggur það andlitið og skemmir taug- arnar. Þetta er allt ég. Ég ætla að eldast með reisn, eins og móðir mín gerði,“ sagði Mel- ania í viðtali við GQ í apríl 2016. n Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is 36 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV 2020 Þá erum við komin til dagsins í dag. Hún virðist hafa minnkað að- eins fylliefnið og fá augu hennar að njóta sín aðeins betur. Hún er með fallegar ljósbrúnar strípur og sumarlegar kinnar. 1987 Melania, eða Melanija Knavs eins og hún hét á þessum tíma, er nær óþekkjanleg á myndinni, enda aðeins sautján ára gömul. Augu hennar eru mun opnari en við erum vön að sjá í dag. 2010 Það sem vekur mesta athygli á þessari mynd eru vel mótuð kinn- bein hennar. Það virðist sem hún sé með fylliefni í kinnum til að „lyfta andlitinu“ og þess vegna eru augu hennar „kattarlegri“ en áður. 1999 Spólum áfram til ársins 1999. Mel- ania Trump er 29 ára og nýlega búin að kynnast Donald Trump. Hár hennar er ljósara og auga- brúnirnar þynnri. Hún virðist ekki vera búin að gera neitt við andlitið á sér á þessum tímapunkti. 2011 Það getur tekið fylliefni smá tíma þar til það „kemur sér“ almenni- lega fyrir. Myndin hér er frábært dæmi um það. Á myndinni frá ár- inu 2010 hefur hún líklegast verið nýbúin að láta sprauta í andlitið á sér, en hér hefur efnið „komið sér fyrir“ og er hún náttúrulegri. 2004 Árið 2004 var hún með fallega karamellubrúnt hár sem fór litar- hætti hennar mjög vel. Á mynd- inni má sjá hana með mun léttari augnförðun en við erum vön að sjá hana með í dag. 2005 Á þessum tíma var Melania byrjuð að fara í brúnkusprautun. Hér má sjá fallegar tennur hennar sem hún hefur fengið með aðstoð tannlæknis. 2008 Um þetta leyti byrjaði Melania að píra augun fyrir myndir eins og eiginmaðurinn. Að sögn ljósmynd- ara er það góð leið til að koma í veg fyrir að líta skringilega út til augnanna á myndum. Þannig að það er hugsanlega málið en ekki einhvers konar fegrunaraðgerð. 2014 Það virðist sem Melania hafi tekið sér pásu frá fegrunaraðgerðum í smá tíma. Það er náttúrulegri hreyfing á andliti hennar. Hún er hér 44 ára. 2009 Árið 2009 var Melania að nálgast fertugt. Varir hennar virðast fyllri, einnig kinnar hennar og undir augnsvæðinu. Það gerist ekki með aldrinum þannig margir hafa sett fram þá kenningu að hér hafi hún verið búin að gera eitthvað við andlitið á sér. 2016 Hér virðist Melania vera aftur byrjuð að fikta aðeins með fegrun- araðgerðir. Það er engin sjáanleg hrukka á enni hennar og augn- svæðið orðið minna. Það er einnig spurning um hvort hún sé búin að láta fylla aðeins í efri vörina. MYNDIR/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.