Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Side 36
Melania Trump
í gegnum árin
Útlit Melaniu Trump hefur breyst mikið í gegnum
árin. Margar grunar að það sé ekki aðeins vegna
aldurs heldur vegna aðstoðar fegrunaraðgerða.
Á ður en Melania Trump varð forsetafrú Banda-ríkjanna var hún fyrir-
sæta. Hún sat fyrst fyrir að-
eins sextán ára og þegar hún
var átján ára komst hún á skrá
hjá ítalskri umboðsskrifstofu
og þá byrjaði boltinn að rúlla.
Þegar myndir af Melaniu í
gegnum árin eru skoðaðar er
eitt ljóst, útlit hennar hefur
breyst og þá ekki aðeins vegna
aldurs.
Margir telja Melaniu Trump
hafa gengist undir nokkrar
fegrunaraðgerðir, þó að hún
neiti því staðfastlega. „Ég er á
móti bótoxi, ég er á móti fylli-
efni. Að mínu mati eyðileggur
það andlitið og skemmir taug-
arnar. Þetta er allt ég. Ég ætla
að eldast með reisn, eins og
móðir mín gerði,“ sagði Mel-
ania í viðtali við GQ í apríl
2016. n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
36 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV
2020
Þá erum við komin til dagsins í
dag. Hún virðist hafa minnkað að-
eins fylliefnið og fá augu hennar
að njóta sín aðeins betur. Hún er
með fallegar ljósbrúnar strípur og
sumarlegar kinnar.
1987
Melania, eða Melanija Knavs
eins og hún hét á þessum tíma,
er nær óþekkjanleg á myndinni,
enda aðeins sautján ára gömul.
Augu hennar eru mun opnari en
við erum vön að sjá í dag.
2010
Það sem vekur mesta athygli á
þessari mynd eru vel mótuð kinn-
bein hennar. Það virðist sem hún
sé með fylliefni í kinnum til að
„lyfta andlitinu“ og þess vegna
eru augu hennar „kattarlegri“ en
áður.
1999
Spólum áfram til ársins 1999. Mel-
ania Trump er 29 ára og nýlega
búin að kynnast Donald Trump.
Hár hennar er ljósara og auga-
brúnirnar þynnri. Hún virðist ekki
vera búin að gera neitt við andlitið
á sér á þessum tímapunkti.
2011
Það getur tekið fylliefni smá tíma
þar til það „kemur sér“ almenni-
lega fyrir. Myndin hér er frábært
dæmi um það. Á myndinni frá ár-
inu 2010 hefur hún líklegast verið
nýbúin að láta sprauta í andlitið á
sér, en hér hefur efnið „komið sér
fyrir“ og er hún náttúrulegri.
2004
Árið 2004 var hún með fallega
karamellubrúnt hár sem fór litar-
hætti hennar mjög vel. Á mynd-
inni má sjá hana með mun léttari
augnförðun en við erum vön að sjá
hana með í dag.
2005
Á þessum tíma var Melania byrjuð
að fara í brúnkusprautun. Hér má
sjá fallegar tennur hennar sem
hún hefur fengið með aðstoð
tannlæknis.
2008
Um þetta leyti byrjaði Melania að
píra augun fyrir myndir eins og
eiginmaðurinn. Að sögn ljósmynd-
ara er það góð leið til að koma í
veg fyrir að líta skringilega út til
augnanna á myndum. Þannig að
það er hugsanlega málið en ekki
einhvers konar fegrunaraðgerð.
2014
Það virðist sem Melania hafi tekið
sér pásu frá fegrunaraðgerðum í
smá tíma. Það er náttúrulegri
hreyfing á andliti hennar. Hún er
hér 44 ára.
2009
Árið 2009 var Melania að nálgast
fertugt. Varir hennar virðast fyllri,
einnig kinnar hennar og undir
augnsvæðinu. Það gerist ekki með
aldrinum þannig margir hafa sett
fram þá kenningu að hér hafi hún
verið búin að gera eitthvað við
andlitið á sér.
2016
Hér virðist Melania vera aftur
byrjuð að fikta aðeins með fegrun-
araðgerðir. Það er engin sjáanleg
hrukka á enni hennar og augn-
svæðið orðið minna. Það er einnig
spurning um hvort hún sé búin að
láta fylla aðeins í efri vörina.
MYNDIR/GETTY