Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR 16. OKTÓBER 2020 DV og strikamerki. Tillit er orð dagsins. Síðan verð ég kominn með annað orð á morgun.“ Knáir epalhommar Auglýsingastofan Branden­ burg er til húsa á Lækjar­ torgi en flytur á næstu vikum í Grósku – hugmyndahús í Vatnsmýrinni. Húsinu er ætl­ að að vera suðupottur nýsköp­ unar og samstarfs háskóla og atvinnulífs. Hönnunarmiðstöð Íslands, CCP og Nýsköpunar­ setur eru meðal þeirra sem þarna verða til húsa, ásamt hinum ýmsu sprotafyrirtækj­ um. „Og síðan verður þarna ein auglýsingastofa. Þarna verður líka World Class – nýja stöðin sem mátti ekki opna um daginn.“ Bragi var upphaflega ráð­ inn inn á auglýsingastofuna Fíton árið 2005 þar sem hann starfaði við textagerð. Þeir fóru síðan nokkrir út úr Fíton og stofnuðu sína eigin stofu – Brandenburg – árið 2012. „Þetta er magnaður bransi. Maður er aldrei að gera það sama og alltaf krafa um að gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi.“ Hann segist almennt stoltur af þeim verkefnum sem stofan sinni hverju sinni. „Mér finnst skemmtilegast að vinna að stórum verkefnum og her­ ferðum sem vekja mikla at­ hygli. Við höfum gert margar herferðir fyrir Krabbameins­ félagið sem ég er mjög ánægður með. Mottumars hefur tekist mjög vel síðustu ár. Sopranos­herferðin fyrir Sorpu var vel heppnuð og vakti mikla athygli. Við gerð­ um líka skemmtilega auglýs­ ingu fyrir Epal sem var eins konar skyndiverkefni. Orðið epalhommi kom þá upp í sam­ félagsumræðunni og við grip­ um þetta á lofti. Ég hringdi þá í Ara Magg ljósmyndara og svo nokkra knáa epalhomma á borð við Bergþór Pálsson, og við skelltum í auglýsingu fyrir Epal. Það er mjög gaman þegar hugmynd kviknar, hún er útfærð og auglýsingin er komin út um allt. Þetta var til dæmis bara þriggja daga pró­ sess.“ Verkefni Brandenburg hafa síðustu mánuði að hluta litast af því sérstaka samfélags­ ástandi sem ríkir. Í sumar stóð yfir herferð sem miðaði að því að hvetja fólk til að ferðast innanlands og nýlega hófst herferð þar sem fólk er hvatt til að velja íslenskt undir yfirskriftinni Láttu það ganga. „Við höfum tekið þátt í að reyna að peppa mann­ skapinn. Það hefur ekki verið vanþörf á því.“ Allt botnfrosið Bragi er formaður STEFs, samtaka um höfundarrétt tónskálda og textahöfunda, og sömuleiðis formaður FTT, félags tónskálda og textahöf­ unda. Hann segir fólk í þess­ um samtökum upplifa að það hafi verið skilið eftir í björg­ unaraðgerðum stjórnvalda vegna áhrifa COVID. „Fólk er orðið mjög örvæntingarfullt. Þau úrræði sem hafa verið kynnt grípa ekki þetta fólk. Það kemur skýrt í ljós núna að það er ekkert net sem grípur fólk í þessari tegund starfa. Hér erum við ekki bara að tala um tónlistarfólk heldur líka sjálfstætt starfandi lista­ menn og sviðslistafólk.“ Hann segir þessa endalausu bið og óvissu taka á. „Sumir eru búnir að vera tekjulausir í tíu mánuði. Það er búið að auka við styrktarfé á ýmsum sviðum sem og listamanna­ laun. Þetta er hins vegar ekki sú innspýting sem gagnast þessum hópi. Eðli málsins samkvæmt eru tónlistarmenn og sviðslistafólk bara heima núna þegar það má ekki koma fram. Fólk er ekki einu sinni að syngja í afmælum og ferm­ ingum. Stjórnvöld hafa lofað aðgerðum sem eiga einnig að gagnast aftur í tímann. Ég hef hins vegar miklar áhyggjur ef ástandið verður svona áfram. Þá er þessi skapandi fram­ komubransi í svokölluðum djúpum skít, vægast sagt.“ Sem formaður þessara sam­ taka hefur Bragi setið fjölda funda síðustu mánuði og upp­ lifað örvæntingu fólks á eigin skinni. „Það er bara allt botn­ frosið. Það er líka sorglegt því þetta er það fólk sem er fyrst til að stökkva til þegar þarf að hjálpa öðrum og halda styrkt­ artónleika. Í sumar var komin smá bjartsýni í mannskapinn og margir ferðuðust um landið og héldu tónleika. Ýmsir náðu jafnvel tveimur góðum mán­ uðum. Í september var síðan farið af stað með miðasölu á þessa hefðbundnu jólatónleika og þá bankar þriðja bylgja CO­ VID upp á. Desember er risa­ vaxinn mánuður og ég hef ekki tölu á öllum þeim jóla­ tónleikum sem eru haldnir árlega. Þá eru ótaldar allar kirkjuathafnirnar sem tón­ listarfólk tekur þátt í. Fólk vill halda í gleðina á jólunum og það er hart að þagga það niður.“ Grúskar í gömlum ljóðum Mögulegar takmarkanir á tón­ leikahaldi fyrir jólin snerta Braga beint sem meðlim Baggalúts. „Við höfum verið með átján jólatónleika árlega síðustu ár. Þetta er hins vegar stærra en hljómsveitin því það er heilt hagkerfi sem myndast í kringum stóra tónleikaröð. Það eru hátt í fjörutíu manns sem hafa unnið að tónleik­ unum okkar í desember. Síðan er það starfsfólk í miðasölu, Háskólabíói, Tix, veitingasala í tengslum við tónleika. Um­ fang tónleikahalds á Íslandi er vel rannsakað og senan hefur blásið út síðustu ár. Við eigum líka frábært tónlistarfólk sem hefur verið að gera það gott á erlendri grundu, svo sem Of Monsters and Men, Kaleo, Ólafur Arnalds og Björk. Allt þetta fólk er núna bara heima hjá sér.“ Af Baggalúti er það annars helst að frétta að sveitin er að gefa út plötu með lögum við texta vestur­íslenska skáldsins Káins. „Káinn dó árið 1936 þannig að þetta er kannski ekki mest hipp og kúl. Ég komst í ljóðasafnið hans og byrjaði að búa til lög við þau. Mér finnst virkilega gaman að grúska í svona gömlum ljóðum og stundum gjörsamlega missi ég mig í nördaskapnum. Káinn bjó í Norður­Dakóta, starf­ aði sem vinnumaður og var sagður svolítið blautur. Ævi­ sagan hans, eftir Jón Hjalta­ son, er einmitt að koma út í haust, þannig að það er algert Káin æði í uppsiglingu. Oft eru þessi gömlu ljóð frekar stirð en ljóð Káins eru alþýðleg. Hann hefur verið kallaður grínskáld en ljóðin voru líka gjarnan melankólísk. En þetta er svona það sem ég hef verið að dunda mér við í heimsfar­ aldrinum.“ Bragi segir að sér hafi tekist að raða lífi sínu þann­ ig niður að hann fái tæki­ færi til að gera skemmtilega hluti. „Stundum verður maður þreyttur á atinu en ég hef gaman af því að hafa mikið að gera. Ég fann snemma að það átti ekki við mig að hjakka í sama hjólfarinu og vil vinna við skapandi hluti. Ég vil líka sýna stelpunum mínum að það er hægt að framkvæma skrýtna og skemmtilega hluti. Yfirleitt er bara aðeins hægt að draga andann og sjá að maður getur gert það sem maður vill við lífið. Ég bara vona að þessi vetur verði ekki eitthvert helvítis fokking fokk.“ n Í heimsfaraldrinum hefur Bragi verið „að dunda sér“ við að semja lög við ljóð Káins. MYND/VALLI Ég brjálaðist á netinu um daginn. Hvatti fólk til að fara inn á netspjallið hjá Mikka mús og taka trylling- inn yfir því að það sé ekkert efni á íslensku á Disney plús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.