Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 16
16 EYJAN 16 OKTÓBER 2020 DV Hver eru stóru málin næstu 12 mánuðina og hvaða stefnu viltu sjá Samfylkinguna taka í þeim? Hverjir eru þínir helstu kostir og gallar? Hvers vegna ættu félagsmenn að kjósa þig fremur en mótherja þinn? KAPPRÆÐUR VARAFOR­ MANNSEFNA Heiða Björg Hilmisdóttir, vara- formaður Samfylkingarinnar, og Helga Vala Helgadóttir þingmað- ur hafa báðar gefið kost á sér í sæti varaformanns Samfylk- ingarinnar. Báðar eru þær gífur- lega öflugar stjórnmálakonur og ljóst að varaformannsstóladans- inn verður fjörugur. Eyjan sló á þráðinn til þeirra og bað þær að svara þremur spurningum: HEIÐA BJÖRG HILMISDÓTTIR HELGA VALA HELGADÓTTIR Heiða segir að stóra málið næstu tólf mánuðina sé að standa vörð um þjóðina í gegnum COVID-19. „Stóra vekefnið fram undan er að standa vörð um heil- brigði og lífskjör fólks í gegnum COVID-faraldurinn og kreppuna sem honum fylgir. Við þurfum að tryggja að kreppan leiði ekki til aukins ójöfnuðar eða misskipt- ingar í samfélaginu eða bakslags í mannréttindum. Þó óvissan sé mikil þá er stefna Samfylkingarinnar skýr. Við viljum að Ísland sé velferðarríki þar sem allir hafa jöfn tækifæri óháð efnahag, kyni, uppruna, aldri, stétt og stöðu. Það þarf að ráðast í róttækar aðgerðir til að sporna við hamfarahlýnun og mengun. Í uppbyggingu efnahagslífsins þarf að vera áhersla á græna atvinnusköpun og að flýta stórum framkvæmd- um og fjárfestingar fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu. Við þurfum fjölbreytt atvinnuskapandi verkefni sem varða veginn til framtíðar um leið og við upprætum svik á vinnumarkaði og tryggjum launajafnrétti og tækifæri fyrir alla til að láta til sín taka. Eins sjáum við að það mæðir sérstaklega mikið á vel- ferðarkerfinu og við þurfum að stórefla bæði heil- brigðis- og félagslega hlutann til að vera í stakk búin til að aðstoða þá sem á því þurfa að halda. Mörg okkar eru að ganga í gegnum mjög erfiða tíma, einmanaleika, heimilisleysi, atvinnumissi, tekjufall, heimilisofbeldi, flosna upp úr námi og svo framvegis. Okkar sam- eiginlega samhjálp á að umfaðma alla sem þurfa á stuðningi að halda í gegnum þennan erfiða tíma, með fjölbreyttum og einstaklingsmiðuðum hætti.“ Helga Vala segir að stóra málið næstu tólf mánuðina sé að skapa störf og tryggja velferð þjóðar. „Stóru málin næstu tólf mánuði eru að skapa störf um allt land og tryggja velferð almennings. Stjórnarflokk- arnir hafa því miður ekki haft nægan kjark og skapandi hugmyndir til að koma fram með skýra stefnu í þeim efnum og því sjást fá bein störf í þeirra tillögum. Við í Samfylkingunni kynntum í síðustu viku „Ábyrgu leiðina“ sem setur áherslu á vinnu, velferð og græna uppbyggingu. Atvinnuleysiskreppan má ekki vara lengi og því verður að hugsa stórt og leggja línur strax. Það eru fjölmörg tækifæri í þessari stöðu til að skapa störf, hvort tveggja hjá hinu opinbera sem og einkageiranum en til þess þarf hugrekki og skapandi hugsun. Mæli eindregið með að fólk kynni sér tillögur okkar því plássið hér býður ekki upp á ítarlegri umfjöllun.“ „Mínir helstu kostir eru að ég hef gífurlegan áhuga á samfélaginu og brenn fyrir því að gera það betra og réttlátara fyrir okkur öll. Það er mikilvægt fyrir mig sem manneskju að finnast ég ná árangri, þannig fæ ég drifkraft til að halda áfram og ég tel mig vera á réttum stað hvað það varðar. Almennt er ég skipulögð og hef vilja til að leita allra leiða til að skilja ólík sjónarhorn og hef lært að það kemur manni vel í pólitík. Mér finnst gaman að takast á við ólíkar skoðanir, ræða saman og komast að niður- stöðu sem hópur. Hins vegar hvað galla varðar hef ég oft mikinn áhuga á mörgum hlutum og því fljótt að hlaðast á dagskrána og þá þarf að skera niður sem getur verið flókið.“ „Mínir helstu kostir eru réttsýni, dugnaður og hug- rekki. Ég er óhrædd við að taka slaginn þar sem það þarf, er eldheit baráttukona fyrir hvers kyns réttlæti og jöfnuði og svo er ég tilfinningabúnt sem ég held að sé bara ágætis kostur í pólitíkinni. Það er alltof algengt að fólk verði flatt og vélrænt í þessu starfi og ég vona að það muni ekki henda mig. Þetta eru líkast til einnig gallar mínir, a.m.k. fyrir andstæðinga mína í pólitík.“ Ég hef mikla þekkingu á sveitarstjórnarstiginu sem borgarfull- trúi og varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, en stór hluti kjörinna fulltrúa Samfylkingarinnar starfar einmitt á þeim vettvangi. Síðast, en ekki síst, stend ég auðvitað fyrir þeim mál- efnum sem hafa verið drifkraftur í öllu mínu stjórnmálastarfi – kvenfrelsi, velferð og að samfélagið sé sannarlega fyrir okkur öll. Þær áherslur þurfa að mínu mati að hafa sterka rödd í forystu Samfylkingarinnar.“ „Ég hef verið varaformaður í þrjú ár og Samfylkingar- fólk þekkir mín störf. Mikil eindrægni og samstaða hefur ríkt í flokksstarfinu og saman höfum við á þessum tíma endurreist flokkinn, nánast frá grunni, bæði hvað varðar innra starf og fylgi kjósenda. Öll finnum við að Samfylkingin er á réttri leið. Þá tel ég það skipta máli að í forystu flokksins sé ákveðin breidd. „Kosningaveturinn er hafinn og fram undan eru gríðar- lega mikilvægar alþingiskosningar sem Samfylkingin ætlar sér að stóra hluti í. Ég gef flokkssystkinum mínum val með framboði mínu. Þau fá með því að velja þann persónuleika sem þau telja gagnast Sam- fylkingunni best í forystunni á næstu misserum. Það er alltof algengt að fólk blandi persónulegum tilfinningum sínum inn í svona stólaval en ég lít alls ekki svo á. Að starfa í stjórnmálum er hópverkefni þar sem við skiptumst á eftir því hver verkefnin eru og hver mót- herjinn er. Ég hef áður sinnt málefnastarfi, bakað vöffl- ur og hellt upp á kaffi, hringt í kjósendur í aðdraganda kosninga og borið út rósir og bæklinga. Núna er ég í þeirri stöðu að vera á sviðinu, úti á vellinum, og býð fram krafta mína í forystu flokksins til að láta heyrast betur í okkur í Samfylkingunni um allt land, hvort sem er í fjölmiðlum eða á fundum. Það þarf kraft í þessa vinnu sem og áhuga á því sem er að gerast hjá fólki um allt land. Aðildarfélögin þurfa að vera öflugri til að bera út okkar áherslur á kosninga- vetri og þar getur forystan lagt ríka hönd á plóg til að styðja við þau. Ég hef baráttugleðina fyrir komandi kosningar sem ég held að verði ótrúlega spennandi og skemmtilegar. Það er lykilatriði í mínum huga fyrir almenning í landinu að hugsjónin um jöfnuð og jöfn tækifæri allra, sem við í Samfylkingunni berjumst fyrir, verði ráðandi í stjórnar- ráðinu og verði miðlað þaðan út um allt samfélagið.“ MYND/AÐSEND MYND/ANTON BRINK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.