Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS 16. OKTÓBER 2020 DV M ér finnst matur ekkert eðlilega góður. Eitt af því sem ég hlakka mest til að gera á hverjum degi er að fá mér góðan há- degisverð. Stundum sit ég við tölvuna frá því að ég mæti í vinnuna og hugsa og spekúl- era í því hvað ég eigi að fá mér í hádegismat. Er það ham- borgaratilboð eða salat, fæ ég mér gott vínar-schnitzel eða tvær pulsur og kók? BÚMM, ritstjórinn minn slær mig utan undir og segir mér að koma aftur í kaldan raunveruleikann. Í dag fékk ég nefnilega ekki að velja mér hvað ég ætti að fá mér í hádegismat, ekki frekar en síðustu tvo daga. Ég var nefni- lega plataður í að fara á ein- hvern djúskúr. Þá má maður víst ekki borða neitt heldur drekkur maður bara djús. „Þetta er ekkert mál,“ sagði ritstjórinn sem plataði mig grunlausan tvítugan dreng- inn. „Þetta eru svo góðir djús- ar og síðan máttu drekka átta svoleiðis á dag – maður verður ekkert svangur.“ Þræll hamborgarans Þegar ég hugsaði um að slá til og skella mér í þennan djúskúr heyrði ég í efasemda- röddunum í kringum mig. „Þú munt aldrei ná þessu,“ sagði einn. „Þú munt svindla fyrsta daginn,“ sagði annar. „Þú ert síðasta manneskjan í heiminum sem gæti klárað svona djúskúr,“ sagði þriðja manneskjan og þá ákvað ég að sýna þeim í tvo heimana og bara fara á þennan and- skotans djúskúr. Ég er ekki þræll hamborgaratilboðsins! Ég pantaði mér 24 stykki af djúsflöskum á föstudegi og hugsaði ekki mikið meira út í það fyrr en ég mætti til vinnu á mánudaginn. Þá gerði ég mér fyrst grein fyrir því að ég væri bara að fara að drekka djús næstu þrjá dagana. Ég ætlaði samt að klára þetta svo ég skellti í mig einum ís- köldum banana- og berjadjús. „Þetta var bara fínt,“ hugs- aði ég með mér en ég átti svo sannarlega ekki eftir að hugsa það næstu tvo daga. Það er nefnilega ekkert mál að fá sér einn og einn djús en það að fá sér ekkert nema djús er alveg gífurlega erfitt. Ég þurfti að leita djúpt inn á við. Byrjaði vel Fyrsti dagurinn gekk þó al- veg ágætlega, ég svindlaði ekkert. Ég drakk appelsínu- safa, sem var frekar góður, rauðrófusafa, sem var ekkert alltof góður, og síðan drakk ég grænmetissafa, sem var ekk- ert annað en viðbjóðslegur á bragðið. Allt í allt var þetta þó allt í lagi þennan fyrsta dag- inn, fjölbreytileikinn var fínn ÉG DRAKK EKKERT NEMA SAFA Í ÞRJÁ HEILA DAGA Menn leggja brattir af stað. SKÁL Í GUL- RÓTARSULLI! MYND/TM og gerði það að verkum að mér leið ekki eins og ég væri að borða það sama allan daginn. Annan daginn gerði ég mér þó grein fyrir því að fjöl- breytileikinn var ekki eins mikill. Ég átti að drekka ná- kvæmlegu sömu djúsa og í gær – en bara í annarri röð. Alveg var það hreint frá- bært, ég sem hélt að ég fengi að smakka nóg af skrýtnum og skemmtilegum djúsum átti bara að drekka það sama þrjá daga í röð. Allt í einu varð appelsínusafinn ekki svo góður, berjasafinn varð sömu- leiðis slappur og grænmetis- safinn varð enn viðbjóðslegri. Mig langaði heitt og innilega að tyggja eitthvað. Allt fór þó til andskotans þegar ég gerði mér grein fyrir því að ekki má fá sér bjór í djúskúr. „Þetta er bara hveiti djús,“ sagði ég með tárin í augunum við ritstjór- ann sem sparkaði í hnéskelj- arnar á mér og reif bjórinn af mér. „Þú færð þetta aftur á fimmtudaginn og ekki einu sinni hugsa um að fá þér bjór á leiknum í kvöld.“ Ömurlegur leikur Alveg rétt, ég var að fara að horfa á fótboltaleik í kvöld með strákunum, ég ætlaði að fá mér bjór og horfa á Þrótt vinna Magna í Lengjudeild- inni. Hvorugt af þessu gerðist, Þróttur tapaði og ég drakk ógeðslegan eplasafa í staðinn fyrir bjór með leiknum. „Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað?“ hugsaði ég með mér þegar ég horfði á lið frá 300 manna bæjarfélagi vinna liðið mitt og ég þurfti að sötra volg- an eplasafa á meðan. Ég fann hamborgaratilboðið hvísla nafn mitt. Síðasta daginn sem ég var á djúskúrnum gat ég varla hugs- að um annað en hvað ég ætti að fá mér að borða á morgun. Ég hlakkaði svo til, ekki bara til að fá gott bragð heldur líka bara til að tyggja matinn minn frekar en að drekka hann. Saf- arnir sem mér fannst vera góðir fyrsta daginn voru orðn- ir fyrirsjáanlegir, leiðinlegir og vondir. Safarnir sem mér fannst vera vondir voru orðnir verri. Ég fann lífsvilja minn leka í burtu með hverjum sopa. Ég var meira að segja hættur að nenna að ropa. Keisarinn er nakinn Ég náði að klára þetta en ef það er eitthvað sem ég hef lært af þessu þá er það að fara ekki á svona djúskúr. Ég fann að ég varð líka að miðla reynslunni minni áfram til fólks og þess vegna er ég að skrifa þetta, svo engum sem les þetta muni detta það í hug að fara á svona djúskúr. Þetta er það allra versta sem ég hef gert, meira að segja var þetta verra en að drekka piss. Ef yfirmaður þinn, kæri lesandi, reynir einhvern tím- ann að plata þig á djúskúr þá skaltu einfaldlega segja þetta: „Nei. Ég læt ekki plata mig í svona vitleysu. Þú ert að ljúga að sjálfum þér og öðr- um þegar þú segir að þetta sé gott. Er ég sá eini sem sér að keisarinn er nakinn? Þetta er ekki gott, þetta er viðbjóður og ég ætla aldrei að gera þetta.“ Gerið það fyrir mig, ekki fara á djúskúr. Farið frekar á Hanann og fáið ykkur kjúkl- ingaborgara með frönskum og extra skammti af Le- mon&Herb sósu. Og já, ég léttist slatta og naut þess óheyrilega að raða þeirri þyngd fallega á mig aftur eins og arkitekt að vinna að næsta meistaraverki sínu. n BLAÐAMAÐUR FÓRNAR SÉR Máni Snær Þorláksson manisnaer@dv.is Máni Snær fór á sinn fyrsta djúskúr. Hann stóð sig eins og hetja, svindlaði ekkert þrátt fyrir geðvonsku og hótanir um að panta pitsu á miðnætti þegar kúrnum lyki og þótt hann ákalli hamborgara í draumi. Þrátt fyrir gúrkuskrautið var þetta viðbjóður! MYND/TM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.