Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Page 7

Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Page 7
27. JÚNÍ FRELSISDAGUR LESBÍA OG HOMMA Við í Samtökunum '78, félagi lesbía ög-homma á Islandi, héldum í fyrsta sinn upp á baráttudaginn nú í ár. Við höfðum upphaflega hugsað okkur að hafa fjölbreytt atriði, en vegna undirbúningsskorts varð aðeins af einu þeirra, dreifingu flugrits á Lækjartorgi föstu- daginn 25. júní. Það vildi svo til, að þennan dag var haldin þarna útisamkoma, þegar hjólreiðamenn lögðu af stað hringinn um landið. Var því talsverður fjöldi fólks á torginu, auk þeirra sem áttu leið þar um. Við vorum sex, sera tókum þátt í dreifingunni, fjórir félagsmenn og tveir gestir okkar, Svíar, annar þeirra formaður RFSL. Alls drelfðum við um 1200 eintökum af flugritinu á tveimur tímum. Viðbrögð fólks voru yfirleitt góð. Flestir tóku við flugritinu athugasemdalaust. Nokkur dæmi um viðbrögð: -Þarf ég nokkuð að borga? -Nei takk, ég þarf þetta ekki! -Þið eruðað brjóta lög! -Eg vona að ykkur gangi vel. Ég þekki einn svona mann, sem vinnur með mér. -Loksins farið þið að gera eitthvað! -Nei, ég er búinn að fá, en látt'ann fá þennan, hahaha! Við létum alla fjölmiðla vita um þennan atburð með fyrirvara, svo að þeir gætu fylgst með okkur og viðbrögðum vegfarenda, og tekið viðtöl við okkur eða Svíana sérstaklega. Enginn þeirra sinnti þessu. Einn blaðamaður hitti okkur þarna, var að skrifa niður ræðu hjólreiðaræsingarráðherrans. Hún lét 1jósmyndarann taka af okkur myndir og við ákváðum tíma fyrir hana og Svíana að ræðast við. Af því varð þó ekki. er % ■ v* r.“* fll * 1168 ^0% ',JST< a»aí tb Si Ií'v»n4'- nSn * At*»* - n 6«vr ■ »e5 -.81"» no»’ *i •»;v.**i8í u* he ^ £/7 ■ .er.l„á V'í'fÍJj’p f. Ir°- *íinl*", '«íV*V. o l«e ^tV**.^ VJ55 e«* VAv\í»Pvxr’ °d «<5. ee* %7? %""»« OA%/ ^8. ’ « *•„ _ *** ** rfP-!?2ííV' mv»V ISÖSSSS- nsst- I«»“. 7

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.