Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Síða 10
BLEIKI þRÍHYRNINGURINN ■ MINNISMERKI
Nú er í undirtmningi gerð alþjáðlegs rainnismerkis um lesbíur og
homma. Að þessu standa öll samtök hómðsexúalfólks í Hollandi með
miklum stuðningi þekkts fálks, svo sem listamanna, kirkjunnar manna,
menntamanna, stjórnmálamanna og fðlks frá fjölmiðlunum.
Minnismerkið, sem er ætlaður staður við Keizergracht í hjarta horgar-
innar, er í raun gríðarstór bleikur þríhyrningur, 36 metrar á hverja
hlið. ðtlínur þríhyrnin. sins eru bleikur marmari, sem er felldur
inn í stéttar, grasflöt og götu, en í hverju horni hans eru þrír
minni þríhyrningar úr marmara og upphækkaðir, 10 metrar á hvern veg.
Þarna er ýmiss konar starfsemi ætlaður staður, svo sem útisamkomum,
leikjum og útiveru.
Bleiki þríhyrningurinn er sem kunnugt er merki frelsisbaráttu lesbía
og homma. Hommar í fangabúðum nasista voru látnir bera slxkt merki.
Nefndin sem stendur að minnismerkinu hefur sent Samtökunum '78 bréf,
þar sem ðskað er eftir fjárframlagi til gerðar þess frá félaginu og
einstaklingum. Félagið kemur framlögum ykkar til skila. Heildar-
kostnaöur verður um 4 milljónir króna.
ÓLYMPÍULEIKAR LESBÍA OG HOMMA
Dagana Z8. ágúst ti-1 5.':-heptember fóru fram í San Francisco Olympíu-
Leikar lesbía og homma. ,Þangað komu keppendur frá mörgum löndum, og
þeim íslensku íþróttahommum og -lesbium, sem ætla að taka þátt í næstu
leikjum, er bent á aö ekki eru gerðar kröfur um glæstan árangur á
fyrri mótum.
Samfara leikjunum verður haldin menningarvika þar sem boðið verður
/ upp á leikrit, kvikmyndir og ýmislegt annað úr menningarlífi homma
og lesbía.
LESBÍA VÍGÐTIL PRESTS
Mlkið er það misjafnt hversu kreddufastar hinar ýmsu kirkjudeildir
eru. Nú hefur fyrsta lesbían, sem ekki er £ felum, verið vígð til
prests' £ Bandarlkjunum. Hún heitir Anne Holmes og.er f Hinni samein-
uðu mótmælendakirkju Krists, en hún hefur 1,8 milljónir safnaðar-
barna.
10