Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Side 18
HEIMSÓKNIR í SKÓLA
Félagsmenn úr Samtökunum '78, félagi lesbía og homma á Islandi, hafa
nokkrum sinnum sótt fundi meö nemendum í skólum. Þa6 hafa verið
nemendur e6a einstakir nemendahópar, sem hafa beðið okkur að koma í
heimsókn. Slík boð eru kærkomlð tækifæri fyrir okkur, til þess að
koma á framfæri kynningu á málefnum lesbía og homma, og nemendum til
þess að skiptast á skoðunum sem gefst oft ekki kostur á að ræða
annars. k fundunum hafa fulltrúar félagsins kynnt það og síðan
farið fram almennar umræður.
Við vitum að viða . í skólum er kynfræðsla lítil sem engin, hvað þá
að nemendur fái hlutlæga fræðslu um hómósexúalhneigð. Það er okkur
þvi kærkomið tækifæri að hitta ungt fólk og svara ýmsum spurningum,
sem þeim kunna að liggja á hjarta um þessi mál. Þannig getum við
hjálpað til þess að koma í veg fyrir að það ánetjist þeim fordómum,
sem hrjá marga fullorðna. -Og svo eru auðvitað lesbíur og hommar í
hópi nemenda, sem hljóta að fagna opinni umræðu af þessu tæi.
Nokkrir nemendur hafa siðan íeitað til félagsins til þess að fá upp-
lýsingar eða lánaðar bækur til að nota við að semja ritgerðir í
félagsfræði.
?ið viljum að lokum hvetja skólastjórnir og nemendur um allt land
að efna til slíkra funda í skólum sínum.
1«