Samtökin '78 - Úr felum - 01.12.1982, Qupperneq 28
Frelsisvika lesbía og
homma var haldin i Stokk-
hólmi dagana 16..-22. ágúst.
Þessi vika er nú orðin ár-
viss viðhurður og var nú
haldin £ sjöttá skipti.
Kjörorð vikunnar voru "Lög
gegn misrétti" og "Mann-
réttindi til handa hómó-
sexúalfólkihvarvetna í
heiminum". Dagskráinvar
fjölhreytt sem fyrr. Mið-
stöð okkar alla vikuna
varáveitingastað RFSL,
Timmy, og í útvarpsstöð
félagsins, en útsendingar
voru stórauknar þessa
viku. Margir aðilar, sem
hafa tíma í staðarútvarp-
inu létu RFSL eftir tíma
í tilefni vikunnar. Dag-
lega voru haldnir umræðu-
fundir: Með fulltrúum
stjórnmálaflokkanna, með
nefndarmönnum í þingnefnd
sem vinnur að lagasetn-
ingu til þess að tryggja
lesbíum og hommum fullt
jafnrétti, og með framá-
mönnum í skólamálum.
Gestir frá Bandaríkjunum
og Bretlandi fluttu fynr-
lestra, um menningu okk-
ari "Fram í dagsbirtuna",
um kynlif án kynna, og
um sögu og eðli kynlifs-
mynda. Mótmælastaða var tvisvar við sendiráð, Rúmenía og Kanada
fengu áminningu í þetta skipti. 1 stað hefðbundins dansleiks á föstu-
dagskvöldið.var haldin-mikil hátíð í Konserthúsinu, þar sem fjöldi
frægs listafólks, og þar á meðal lesbíur og hommar, stóð fyrir stór-
kostlegri 4 tíma dagskrá. Um hádegisbil á laugardag gengum við 5000
í kröfugöngu um götur miðborgarinnar, þar blakti íslenski fáninn í
annað sinn.' Á útifundi á eftir var fjölbreytt dagskrá, þ.á m. ræða
þingmanns. Lokahóf var haldið í stærstu sýningarhöll Stokkhðms um
kvöldið. Á sunnudeginum var-m.a. haldin guðsþjónusta með altaris-
göngu í Stórkirkjunni.
\Þ
DEMONSTRATION LÖRDAG21.8
SAMLING I HUMLEGÁRDEN KL10.30
RFSL-stockholm
FRELSISVIKA LESBIA OG HOMMA
í STOKKHÓLMI
-hh