Fjölrit RALA - 06.12.1991, Blaðsíða 29
25
24. tafla. Hlutdeild vallarfoxgrass eftir því hvort túnin hafa skemmst af kali eða ekki.
Fjöldi Vallarfoxgras
túna %
Kalið 107 10,7
Ekki kalið 110 28,1
Útbreiðsia helstu grasa og umhverfisþættir
Samband þekju helstu grastegunda, annarra en vallarfoxgrass og háliðagrass við umhverfisþætti
var einnig reiknað á sama hátt og lýst er hér að ofan. Eftirtaldir þættir voru prófaðir:
Svæði (átta flokkar).
Aldur (flokkað).
Jarðvegur (fimm flokkar).
Rakastig jarðvegs (ekki flokkað).
Halli (fimm flokkar).
Kal (tveir flokkar).
Lega bæjanna (7 flokkar, t.d. í dal, á flatlendi, undir háu fjalli, í firði o.s.frv.).
Niðurstöður útreikninga af þessu tagi verður að túlka með varfæmi vegna þess að þessir þættir
eru tengdir með ýmsum hætti og áhrif geta verið ýmist bein eða óbein. Af greiningunni má þó
fá ýmsar vísbendingar. Það var nokkuð misjafnt eftir tegundum hvaða þættir höfðu mest að segja.
Vallarsveifgras
Eftirtaldir þættir gáfu marktækt samband við þekju vallarsveifgrass en skýrðu þó einungis 18%
af breytileikanum: Svæði, aldur, rakastig jarðvegs, jarðvegur og lega bæjanna. Hlutdeild
vallarsveifgrass var heldur meiri í þuirum túnum en blautum og ívið meiri á mólendi en á
mýrlendi.