Fjölrit RALA - 06.12.1991, Qupperneq 41

Fjölrit RALA - 06.12.1991, Qupperneq 41
37 Vallarfoxgras Hlutdeild vallarfoxgrass í þessari könnun er í heildina heldur meiri en á Austurlandi, tæp 14% á Vesturlandi og 12% á Vestfjörðum. Á Austurlandi var hún tæp 9%. Mest var á Mýrunum (20%) en minnst á Snæfellsnesi (tæp 8%). Hlutdeildin lækkar með aldri túnanna eins og við er að búast. f eins árs gömlum túnum er hlutdeildin 58% en tæp 22% í 6-10 ára gömlum túnum og er komin niður í 8% í eldri túnum en 30 ára. En breytileikinn er mikill, bæði milli túna og bæja. Þess ber að geta að hátt hlutfall vallarfoxgrass á fyrsta ári stafar að hluta til af því að annar gróður hefur ekki náð sér á strik til að fylla í eyðumar, en svörðurinn er oft gisinn fyrsta árið eftir sáningu. Vallarfoxgras er viðkvæmt fyrir ýmsum meðferðarþáttum t.d. beit, slætti, áburði og áburðartíma. Áhrif beitarinnar eru þó umdeild og vissulega má finna niðurstöður sem gefa til kynna að beitin hafi ekki áhrif á endingu vallarfoxgrass (Áslaug Helgadóttir, 1987) og á þessari könnun hafa sést mikið beitt tún og gömul með miklu vallarfoxgrasi. Það er þó oftar sem beitin virðist til skaða (Guðni Þorvaldsson, 1981; Guðni Þorvaldsson, 1990). í þessari könnun fékkst þó ekki marktækt samband milli beitar og hlutdeildar vallarfoxgrass enda eru gögn af þessu tagi ekki vel til þess fallin að finna slíkt samband. í þessum útreikningum var það notað sem mælikvarði á beitina hvort túnin voru beitt árlega, oft, sjaldan eða aldrei. Það er mjög erfitt að áætla beitarþungan vegna þess að mat manna á því hvað sé þung beit er misjafnt, þama koma líka inn stærðir eins og lengd beitartfmans, uppskera á túnunum þegar beit hefst o.s.frv. Háliðagras Fræ af háliðagrasi hefur lítið verið notað í seinni tíð og er því mest í gömlum túnum. Ástæðan fyrir því að meira er af því í Kjósarsýslu og í ísafjarðarsýslum er sú að mikið er af því á þremur bæjum á þessum svæðum, Bakka á Kjalamesi og Mýmm og Sæbóli í Dýrafirði. Háliðagras þolir beit vel en er viðkvæmt fyrir sýrastigi og hverfur þar sem jarðvegur er mjög súr. Vallarsveifgras Vallarsveifgras er algengasta grastegundin í túnum á Vestfjörðum (29%) og einnig á Vesturlandi (23%). Þó var meira af því á Austurlandi (37%). Af 20. töflu sést að vallarsveifgras er í því sem næst hverju einasta túni á þessu svæði. Mest er af því á Ströndum (40%) en að öðra leiti er ekki mikill munur milli svæða. Ef tún verða fyrir áföllum, t.d. af völdum kals, kemur vallarsveifgras gjaman í eyðumar. Það ber því meira á því í slíkum túnum en þeim sem ekki hafa skemmsL Ein ástæða þess að meira er af vallarsveifgrasi í túnum á Austurlandi en á Vesturlandi gæti verið sú að tún á Austurlandi hafa oftar orðið fyrir kalskemmdum.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.