Fjölrit RALA - 15.04.1995, Blaðsíða 25
15
Túnrækt 1994
Tilraun nr. 693-92. Grasstofnar í garðflatir, Keldnaholti.
Sáð var í tilraunina á Keldnaholti 22.6. 1992. I henni er 21 vallarsveifgrasstofn, 23
túnvingulsstofnar, 10 língresisstofnar, 8 sauðvingulsstofnar og 3 snarrótarstofnar. Reitastærð
er 1,5 m2 og endurtekningar 3.
Metið er vor, sumar og haust, þekja sáðgresis, innblöndun og heildaráhrif. Slegið
u.þ.b. vikulega frá miðjum maí og fram í september. Töluverður munur er milli tegunda bæði í
þekju og þó sérstaklega í heildaráhrifum. Innan tegunda er stofnamunur einnig merkjanlegur.
Þekja (0-9) Heildarmat (0-9)
18.5. 15.7. 28.9. 15.7. 28.9.
Vallarsveifgras 3,6 8,0 8,9 7,0 7,7
Túnvingull 5,2 7,3 7,6 6,7 6,8
Snarrót 2,8 7,0 6,7 6,7 4,9
Língresi 5,6 4,8 6,2 3,7 3,8
Sauðvingull 5,5 5,3 6,3 5,5 4,6
Tilraun nr. 736-94. Grös frá Magadan, Korpu.
Tilraunin er liður í samstarfsverkefni við Rannsóknastofnun landbúnaðarins í Magadan í
austanverðri Síberíu. í Magadan var 1. ágúst 1993 sáð fræi af sex stofnum sem var sent frá
íslandi og tveimur þarlendum til samanburðar. Sáð var Leik túnvingli og íslenskum túnvingli,
Öddu vallarfoxgrasi, Norcoast beringspunti, Lavang og Fylking vallarsveifgrasi og
samanburðarstofnanir eru af skriðliðagrasi (Alopecurus arundinacea) og pólgresi
(Arctagrostis arundinacea). Gert er ráð fyrir tveim sláttutímum, hvorum á þrem samreitum.
Ulgresi var verulegt, einkum haugarfi sáðárið og gras af ættkvísl liðagrasa, Alopecurus
aequalis, árið eftir. Þar í landi bera menn ekki á við sáningu og telja sig með því draga úr
samkeppninni við illgresið. Túnvingullinn virtist hafa staðist samkeppnina við illgresið illa (5-
15% þekja), en aðrir stofnar þöktu 55-95%, mest beringspuntur (95%) og pólgresi (90%).
Sáð var í samsvarandi tilraun á Korpu 8. júní 1994. Áburður var 100 kg/ha N í Græði 5.
Spírun fræs frá Magadan var mæld á Möðruvöllum og var sáðmagn tveggja stofna aukið
vegna lélegrar spírunar.
Fræ tveggja tegunda var svo loðið, að ekki var unnt að sá því með vél (c og h liður). Af
tveimur stofnum var ekki nóg fræ til að sá í 6 reiti eins og til stóð. Óvenjumikið var af einæru
illgresi og var landið slegið 31. ágúst til að eyða því. Einnig kom upp mikið af innlendu grasi.
Sáningin tókst ekki sem skyldi og erfitt var að greina sáðgresið og meta reitina. Það var þó
gert 26. ágúst og gefin stig frá 0-9.
Afbrigði Samreitir Spírun Fræ Mat
og uppruni % kg/ha 26.8.
a. Vallarfoxgras Adda, Islandi 6 - 18 8
b. Vallarsveifgras Fylking, Svíþjóð 6 - 22 6
c. Alopecurus arundinacea Colima 6 79 15 5
d. Arctagrostis arundinacea Susuman 6 83 15 1
e. Arctagrostis latifolia Anadir 6 75 15 2
f. Arctopoa eminens Nucla 2 9 50 0
g- Beckmannia syzigachne Szednecan 6 33 36 7
h. Calamagrostis langsdorffti Ola 6 1240* 30 2
k. Arctagrostis latifolia Arcticsona, Chukotka 4 74 15 3
1. Túnvingull Leik, Noregi 6 - 25 5
* Fjöldi fræja sem spírar í einu grammi.