Fjölrit RALA - 15.04.1995, Blaðsíða 43
33
Smári 1994
NORÐSMÁRI (132-9934).
Tilraun nr. 700-92. Samanburður á hvítsmárastofnum.
Bomir era saman 10 finnskir, 12 sænskir, 6 norskir og tveir íslenskir stofnar af hvítsmára. Era
þetta allt norðlægir stofnar og era þeir einnig í prófun annars staðar á Norðurlöndunum.
Stofnunum er plantað út í gróið tún á Korpu. Hver reitur er 1 m2 og í hann var plantað 7x7
plöntum. Endurtekningar era þrjár.
Fræ af sænskum og finnskum stofnum kom frá Norræna genbankanum. Af hverjum
norsku stofnanna komu 50 lifandi plöntur. íslensku stofnamir era annars vegar 30 bestu
arfgerðimar úr samanburðinum á Hesti (sjá 677-90), og hins vegar 100 arfgerðir sem safnað
var 1991 úr tilraun nr. 649-86, þar sem sáð hafði verið UNDROM hvítsmára vorið 1986.
Þremur stofnum, sem ekki náðist að fjölga 1993 var plantað út 19.5. 1994. Reitirnir
era metnir og slegnir þrívegis yfir sumarið. Einnig er vorvöxtur og haustvöxtur metinn.
Þar sem ekki náðist að planta öllu á sama tíma, þá er tilraunin varla marktæk þetta
árið. Þrátt fyrir það var allt unnið samkvæmt áætlun og virtist verulegur stofnamunur.
Tilraun nr. 690-91. Frumsamanburður á norrænum rauðsmára, Korpu.
Tilraunin er liður í samnorrænu verkefni, NORÐSMÁRA, þar sem velja skal úr stofna og
víxla saman á hverjum stað. Einnig skal velja „besta“ stofninn.
Sáð var 33 stofnum af rauðsmára frá norðurhéraðum Norðurlandanna 31.5. 1991 í
blöndu með Öddu vallarfoxgrasi í 1 m2 reiti. Endurtekningar eru 4.
Vorið 1994 var þekja smára metin. Sams konar mat var gert á tilraunastöðunum í
Skandinavíu. Á grandvelli vorþekju ásamt smáraþekju- og uppskeramati 1993 vora valdir 9
stofnar.