Fjölrit RALA - 15.04.1995, Page 69

Fjölrit RALA - 15.04.1995, Page 69
59 Veðurfar og vöxtur 1994 BÚVEÐUR (132-1047). Tilraun nr. 588-91. Veðurfar og bygg. Þessi athugun stóð nú 14. sumarið í röð. Tilraunin á Korpu var með sama sniði og undanfarin ár, en aðrar tilraunir eru fallnar niður. Afbrigðin 6 voru í tveimur samreitum, uppskerureiturinn var 0,45 m2 og varðbelti þar utan um. Áburður var 75 N á ha í Græði 1 (14-8-15). Sáð var 13.5. og uppskorið 13.9. Hæð aðalsprota er fengin með einni mælingu á bindinu. Fjöldi korna í axi og fjöldi hliðarsprota er fenginn með talningu á 10 plöntum úr hverjum reit. Komþungi er meðalþungi 100 koma. Staðalfrávik er reiknað milli reita og frítölur em því 5, þar sem um það er að ræða. Öll árin 14 hefur komið verið í sama blettinum á Korpu. Þar er vatnsheldinn, méluríkur móajarðvegur og hefur sennilega verið flagmór fyrir ræktun. Bletturinn hefur verið stunginn upp vor hvert. Með árunum hefur samkomabygging jarðvegsins tekið stakkaskiptum og er nú með ágætum. Uppskera fer líka vaxandi með ári hverju. Skýringar á dálkum í töflum: 1. Miðskriðdagur, dagar eftir 30.6. 2. Aðalsproti, hæð undir ax, sm. 3. Aðalax, fjöldi koma. 4. Hliðarsprotar, fjöldi á 10 plöntum. 5. Uppskera alls, þe. hkg/ha. 6. Uppskera, korn, þe. hkg/ha. 7. Þúsundkomaþungi, g. 8. Hlutur korns af heild, %. Atriði: 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. Akka 21 83 17 9 71 24 38 34 Mari 26 68 19 14 82 28 30 34 01 33 117 22 3 100 14 27 14 046 22 79 15 9 71 30 37 42 Svarthöfði 29 101 16 8 73 20 38 28 Sigur 27 93 35 9 68 23 23 34 Meðaltal 26 90 21 9 78 23 32 31 Staðalfrávik 0,9 2,8 1,0 1,4 7,6 2,0 1,2 1,9 Meðaltal 14 ára 29 82 21 10 73 16 25 23 Sáð er í búveðurathugunina sem næst 15. maí ár hvert og uppskorið nákvæmlega 4 mánuðum síðar eða eftir 123 daga. Síðustu 13 ár hefur meðalhiti þess tíma á Korpu verið 9,4°C og meðalfrávik 0,7°C. Kaldast var 1983, 8,2°C, og hlýjast 1991, 10,6°C. Sumarið 1994 var hitinn 9,7 °C.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.