Fjölrit RALA - 15.04.1995, Page 78
Veður1994
68
Skil milli vikna á Korpu eru kl. 9 að lokinni veðurmælingu. Tölur eiga því að jafnaði
við næstu 7 daga á undan. Sólskinsstundir og geislun reiknast þó til kvölds þess dags, er vikan
endar. Jarðvegshiti og lofthiti í 2 m hæð, þar með talið hámark og lágmark, er meðaltal
daglegra athugana ki. 9. Loftraki er meðaltal athugana kl 15. í árslok og enn fremur í
febrúarlok á hlaupári eru 8 dagar í „viku“.
Frostnótt er talin, þegar hiti fer niður fyrir frostmark í 5 sm hæð yfir jörðu, og gefinn er
upp meðallágmarkshiti vikunnar í þeirri hæð. Tölur um úrkomu, vind og sólskin eru summa
vikunnar. Sólskin er mælt á Öskjuhlíð, en allar aðrar tölur eru frá Korpu. Niðurstöður
geislunarmælinga voru ekki tiltækar, þegar gengið var frá skýrslunni.
Klaki fór mest í um 25 sm dýpt á athugunarstað og virðist hafa horfið upp úr 12. maí. í
búveðurathuguninni var þó enn klaki 14. maí. Um 25 sm voru niður á klakann og hann þar
undir 50 sm, en auðstunginn..