Fjölrit RALA - 15.05.1996, Page 11
9
blendingarnir þá 79 kg (66-90 kg) en þeir ís-
lensku 76 kg (66-89 kg). Að loknu mjólkurskeiði
voru kálfarnir fóðraðir eins áfram á kjarnfóðri
og heyi að vild þangað til hægt var að binda þá á
bása. Þessi tími stóð að jafnaði í 39 daga (14-69
daga) hjá blendingunum en í 43 daga (28-70
daga) hjá íslensku kálfunum. Við lok undirbún-
ingstímans vógu blendingarnir að meðaltali 107
kg (100-124 kg) en íslensku kálfarnir 108 kg
(99-126 kg).
5. SLÁTRUN OG MÆLINGAR Á
FÖLLUM
Þegar nautin höfðu náð tilætluðum þunga voru
þau send næsta fimmtudag á eftir í sláturhús
KEA á Akureyri milli klukkan 11 og 12 eftir að
hafa verið vigtuð og brjóstmæld. Þeim var síðan
slátrað milli klukkan 13 og 14. Ein undantekning
var á þessari reglu en þá voru tvö naut send í
sláturhús miðvikudagskvöldið 13. janúar 1993
og þeim síðan slátrað morguninn eftir. Mælingum
sem gerðar voru á kjötinu er nánar lýst í köflunum
um slátur og kjötgæði.
Þess var gætt að hafa þau bundin á flutn-
ingskerru, í stíum í sláturhúsi og að þau væru
ekki látin bíða lengi fyrir slátrun til að minnka
hættuna á streitu. Eftir slátrun var þess gætt að
hiti í kæli fyrstu 5-6 tímana eftir slátrun væri um
10 stig til að koma í veg fyrir kælilherpingu.
Eftirtaldar mælingar og aðgerðir voru fram-
kvæmdar á hverjum skrokk:
- Blautvigt, kaldvigt, þyngd á nýrmör.
- Gæðamat samkvæmt þeim reglum sem giltu
fyrir 1. sept. 1994.
- Sýrustig í langa hryggvöðva 24 klst. eftir
slátrun.
- Útvortismál:
A - Lengd lærskanka frá hnélið að liðfleti
á enda læris.
B - Lengd miðlæris frá hnélið að mjaðma-
lið.
C - Lengd læris mæld frá liðfleti á enda
læris að mjaðmalið.
D - Ummál læris við mjaðmalið.
E - Lengd skrokks frá enda læris að bana-
kringlu.
F - Ummál framparts við enda á bringu-
beini.
Oa- Lengd pístólu frá enda læris að enda
framhryggjar.
Ob - Lengd framparts frá enda framhryggjar
að banakringlu.
Oc- Lengd skrokks frá mjaðmalið að
fremsta rifi við bringubein.
- Ljósmynd af helmingi á kvörðuðum bak-
grunni.
- Skrokkar skornir í pístólu og frampart á
milli 5. og 6. rifs.
Kg þe./FE Prótein g/kg þe.
1. mynd. Heygæði á tilraunatíma.