Fjölrit RALA - 15.05.1996, Blaðsíða 35
33
16. tafla. Meðalfóðurnýting reiknuð út frá aldri nauta.
Aldur mánuðir Allir kálfar íslenskir Blendingar Fóður- flokkur 0 Fóður- flokkur 15 Fóður- flokkur 30
4 2,56 2,59 2,58 2,56 2,54 2,53
5 2,73 2,76 2,73 2,71 2,71 2,73
6 2,91 2,94 2,88 2,87 2,89 2,92
7 3,08 3,12 3,04 3,02 3,07 3,12
8 3,25 3,30 3,19 3,17 3,25 3,32
9 3,42 3,48 3,34 3,32 3,43 3,51
10 3,59 3,66 3,50 3,48 3,60 3,71
11 3,76 3,84 3,65 3,63 3,78 3,91
12 3,93 4,02 3,81 3,78 3,96 4,10
13 4,10 4,20 3,96 3,94 4,14 4,30
14 4,27 4,38 4,11 4,09 4,32 4,50
15 4,45 4,56 4,27 4,24 4,49 4,70
16 4,62 4,74 4,42 4,39 4,67 4,89
17 4,79 4,91 4,58 4,55 4,85 5,09
18 4,96 5,09 4,73 4,70 5,03 5,29
Fasti 1,88 1,87 1,96 1,95 1,82 1,74
Stuðull við X 0,171 0,179 0,154 0,153 0,178 0,197
R2 0,86 0,89 0,83 0,89 0,91 0,88
Staðalfrávik 0,25 0,23 0,23 0,21 0,21 0,24
fóðumýtingu. Á 18. og 19. mynd eru sýnd meðal-
töl einstakra nauta og munar um 40% á besta og
lakasta íslenska nautinu (7,9 vs 11,0 FE/kg kjöt)
en 26% á besta og lakasta blendingnum (7,0 vs
8,8 FE/kg kjöt) og mesti munur milli einstakra
nauta er því um 57%.
Fóðurnýting og aldur nauta
í sumum tilfellum er þægilegra að nota aldur
sem viðmiðun við áætlanagerð frekar en þunga
gripa. Þar sem fóðurnýting er grundvallarstærð
varðandi hagkvæmni kjötframleiðslu varreiknað
samhengi aldurs nauta og fóðurnýtingar og eru
niðurstöður varðandi nautastofna og fóðurflokka
í 16. töflu. Eins og áður kom fram var ekki
munur á meðaifóðurnýtingu milli fóðurflokka
þegar hún var tengd þunga gripanna á fæti. Hins
vegar kemur fram munur milli fóðurflokka ef
fóðurnýtingin er skoðuð í samhengi við aldur
gripanna, þar sem nautin sem sterkast voru
fóðruð vaxa hraðast og ná því ákveðnum þunga
við lægri aldur heldur en þau sem minna eru
fóðruð. Þetta má sjá á 20. mynd.
7. FÓÐURKOSTNAÐUR
í þessari tilraun er nokkuð vel vitað um fóður-
notkun og framleiðslu hvers einstaklings og því
fróðlegt að reyna að meta fóðurkostnað við
þessa framleiðslu. I 17. töflu er miðað við að
heyverð sé 15 kr/kg þe., kjarnfóðurverð 35 kr/
kg þe. og að verð á mjólk sé 35 kr/kg. Verðið á
mjólkinni er fundið þannig að gert varráð fyrir
að 30% af þeim 234 1 (70 1) af mjólk sem hver
kálfur fékk að meðaltali (sjá 5. töflu) reiknist á
engu verði þar sem ekki hefði verið hægt að
senda þennan hluta í samlag (broddur o.fl.) Hinn
hlutinn (1641) er reiknaður á 50 kr/1 og fæst þá
meðalverð 35 kr/1. Kjarnfóðurverðiðer ímyndað
meðalverð miðað við heimkomið kjarnfóður en
heyverðið er n.k. meðalverð skv. útreiknuðum
framleiðslukostnaði og hugsanlegu söluverði.
Miðað við þessar forsendur þá er fóðurkostnaður
um 10% lægri við að ala blendinga en íslenska
kálfa (223 vs 249 kr/kg kjöts) og einnig er
ódýrast að ala eingöngu á heyi. Þarna er þó
eingöngu um að ræða kostnað vegna fóðurs en
ekki er tekið tillit til þess að kálfar sem eingöngu
fá hey þurfa lengri fóðrunartíma og þar með
kemur meiri kostnaður vegna húspláss og hirð-
ingar. Minnsti fóðurkostnaðurinn reiknast hjá
blendingunúm sem eingöngu fengu hey (208 kr/
kg kjöts) en mesti hjá íslensku kálfunum sem
fengu mest af kjarnfóðrinu (262 kr/kg kjöts) og
munar þarna um 26%. Þetta segir þó ekki beint
til um hagkvæmni framleiðslunnar því einnig
þarf að taka tillit til þess hvort mismunandi verð