Fjölrit RALA - 15.05.1996, Blaðsíða 28
26
er rétt að hafa í huga að í þessari tilraun fá
nautin trúlega betra hey heldur en geldneyti fá
almennt. Einnig eru nautin bundin á bása en
búast má við heldur meiri vexti hjá nautum við
slíkar aðstæður heldur en ef þau eru fóðruð
saman í stíum.
Samanburðartilraun var gerð í Laugardælum
rétt fyrir 1960 með uxa og kvígur af íslenskum
stofni og Galloway-blendinga (Tilraunaráð Bú-
fjárræktar, 1961). Fyrsta veturinn þyngdust
blendingsuxarnir að meðaltali 742 g/dag en ís-
lensku uxarnir 684 g/dag, en í lok þessa fyrsta
vetrar voru þeir að meðaltali 7,5 mánaða gamlir.
Þessum gripum var síðan beitt úti í tvö sumur
Jaðarvöxtur, g/dag
Meðalvöxtur, g/dag
12. mynd. Samhengi aldurs og meðal- og jaðarvaxtarhraða milli töðurflokka.
—•— Flokkur 0: Meðalvöxtur g/dag = 544,8 + 30,16 x mán - 1,12 x mán2;
—0— Flokkur 15: Meðalvöxtur g/dag = 411,4 + 67,23 x mán - 2,81 x mán2;
—♦— Flokkur 30: Meðalvöxtur g/dag = 412,6 + 75,56 x mán - 3,11 x mán2
R2=0,40; Staðalfrávik=69.
R2=0,67; Staðalfrávik=76.
R2=0,79; Staðalfrávik=66.