Fjölrit RALA - 15.05.1996, Blaðsíða 25

Fjölrit RALA - 15.05.1996, Blaðsíða 25
23 mælingum hér slegið saman. Áætlaður fallþungi er reiknaður út frá þeirri forsendu að kjöthlutfall sé að meðaltali 49% en það er í samræmi við niðurstöður sem fundust í þessari tilraun (sjá 13. töflu). Eins og sést þá eykst lífþungi um sem næst 8 kg fyrir hvern cm sem brjóstmál eykst og fallþungi því um sem næst 4 kg. Breytileiki milli gripa er þó verulegur svo tölur sem þessar er einungis hægt að hafa til hliðsjónar. I saman- burði við athugun sem Halldór Eiðsson (1983) gerði á nautgripum sem komu til slátrunar á Suðurlandi og skv. mælingum á nautum á Nautastöð BÍ í Þorleifskoti (Jón Viðar Jón- mundsson, 1994) þá virðist brjóstmál mælt í þessari tiiraun gefa heldur meiri þunga heldur en fyrrnefndar mælingar benda til. Líklegasta skýringin á þessum mun er sú að brjóstmálið í þessari tilraun hafi verið mælt heldur stífara, þ.e. að fastar hafi verið tekið í málbandið við mælingarnar. 4. VAXTARHRAÐI Þungaaukning eða vöxturer yfirleitt skilgreindur sem magn á tímaeiningu og því er talað um vaxtarhraða eða þungaaukningu, t.d. í g eða kg á dag. Á 9. og 10. mynd má sjá samhengi þunga og aldurs hjá nautunum og línur fyrir stofna og fóðurflokka. Sambandið er í öllum tilfellum beinnar línu samband og engar bendingar komu fram um að um boglínu væri að ræða. Kúrfan er þó trúlega S-laga í eðli sínu eins og flestar vaxt- arkúrfur, en ala hefði þurfti gripina lengur til að ná fram þeirri lögun. Raunverulegan vaxtarhraða á hverjum tímapunkti má finna sem hallatölu snertils vaxtarlínunnar í þeim punkti en ef vaxtar- línan er bein er halli línunnar sá sami og snertilsins og því segir hallatalan beint til um vaxtarhraðann, sem er þá sá sami allt tímabilið. Ef þyngdar- ferillinn er boginn eða S-laga má eftir sem áður finna vaxtarhraðann á hverjum tíma sem halla snertils í þeim punkti og kallast sá vaxtarhraði raunverulegur eða jaðarvaxtarhraði (absolute growth rate, marginal daglig tilvækst). Meðal- vaxtarhraði (average daily gain, gennemsnittlig daglig tilvækst) er aftur á móti munur á upphafs- og lokaþunga deilt á dagafjölda en lýsir á engan hátt vaxtarferlinum þar á milli. Allt er þetta því spurning um lengd vaxtartímabilsins sem verið er að skoða og því styttri sem tímabilin eru því minni munur er á meðal- og jaðarvaxtarhraða. Það sama og hér hefur verið nefnt um vaxtar- hraða á einnig við um aðrar breytur sem tengjast þyngdarferlinum, t.d. fóðurnýtingu (FE/kg) og fóðurkostnað (kr/kg). Annars vegar má skoða meðalgildi, t.d. frá fæðingu að ákveðnum þunga, en hins vegar jaðargildi við ákveðinn aldur eða þunga. Aldur nauta og vaxtarhraði Þegar skoðaður var raunverulegur vöxtur (jaðar- vöxtur) nautanna á hverju vigtartímabili í sam- hengi við þunga þeirra eða aldur þá kom í ljós mikill breytileiki og ekkert samhengi sjáanlegt þarna á milli. Þetta skýrist af því að þungaaukn- ing hjá gripunum sveiflaðist mjög á milli vigtar- tímabila og einnig voru tiltölulega fáir gripir í hverjum meðferðarhóp en sveiflur í þunga eru algengar hjá jórturdýrum, sérstaklega þegar gripirnir fá gróffóður að vild. Hins vegar má reikna jaðarvaxtarhraða naut- anna við ákveðinn aldur út frá sambandi aldurs og meðalvaxtarhraða og þetta má sjá á 11. og 12. mynd. Líkingar fyrir samband aldurs og meðalvaxtarhraða eru gefnar við myndirnar en jaðarvaxtarhraði er í öllum tilfellum reiknaður sem: Jaðarvöxtur g/dag = ((aldur, x meðalvöxtur,- aldur! x meðalvöxtur,) / (aldur2 - aldur,)) Eins og sést á myndunum nær jaðarvöxtur yfirleitt hámarki í kringum 8 mánaða aldur en meðalvöxtur við 12 mánaða aldur og því sterkar sem fóðrað er þeim mun meiri verður vöxturinn, en meðalvöxtur er í hámarki þar sem línurnar skerast. Þungi nauta og vaxtarhraði Ekki var munur á milli stofna á þunga á fæti við slátrun (404 og 405 kg) en meðalvaxtarhraði íslensku nautanna var 6-8% minni heldur en blendinganna (787 vs 834 g/dag). Þeir þurftu því lengri fóðrunartíma til að ná fyrirfram ákveðinni þyngd og voru því eldri við slátrun (14. talla). Ekki var raunhæfur munur á meðalvaxtar- hraða milli þungaflokkanna, þótt tölulega fari hann vaxandi hjá blendingunum við hækkandi sláturþunga. Hjá íslensku kálfunum aftur á móti er þessi tilhneiging ekki fyrir hendi. Blendingarnir virðast því bæði hafa meiri vaxtargetu og halda

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.